Greinir á um hvort tónlistargoð skuli undanþegin herskyldu

Kóreska poppsveitin BTS skilar millj­örðum inn í kóreskt efna­hags­líf og hefur vakið heims­at­hygli á menn­ingu lands­ins, en nú gætu sjömenn­ing­arnir sem skipa hljóm­sveit­ina farið að þurfa að skipta úr sviðs­gall­anum og í her­bún­ing.

BTS hefur hlotið heimsfrægð og hefur komið suður-kóreskri menningu rækilega á kortið.
BTS hefur hlotið heims­frægð og hefur komið suður-kóreskri menn­ingu ræki­lega á kortið. Mynd: EPA

Eins og mörgum er kunn­ugt er í gildi her­skylda fyrir alla unga karl­menn, sem til þess hafa lík­am­lega burði, í Suður-Kóreu, enda á landið tækni­lega í stríði við nágranna sinn í norðri þó vopna­hlé á milli land­anna tveggja hafi staðið yfir í nokkra ára­tugi. Þannig þurfa ungir menn að gera hlé á lífi sínu í minnst 18 mán­uði á meðan þeir eru á aldr­inum 18 til 28 ára til þess að sinna her­skyldu. Skiptar skoð­anir eru á því hvort, eða þá hverjir, eigi að fá und­an­þágu frá her­skyld­unni.

Umræðan nú snýr helst að liðs­mönnum K-pop sveit­ar­innar BTS og hvort þeir eigi að hljóta und­an­þágu frá her­skyld­unni vegna ann­ars konar fram­lags þeirra til sam­fé­lags­ins, en BTS hefur hlotið heims­frægð og hefur komið suður-kóreskri menn­ingu ræki­lega á kortið, auk þess sem vel­gengni þeirra skilar gíf­ur­legum fjár­hæðum inn í efna­hags­lífið í land­inu. Þannig hefur hljóm­sveitin selt yfir 30 milljón plötu­ein­tök á heims­vísu, verið til­nefnd til Grammy-verð­launa og ratað ofar­lega á vin­sæld­ar­lista bæði í Bret­landi og í Banda­ríkj­unum, og hafa vanga­veltur um und­an­þágu popp­goð­anna, sem öll eru á þrí­tugs­aldri, verið í umræð­unni í Suður-Kóreu frá árinu 2020 þegar lagið Dynamite með BTS varð fyrsta kóreska lagið til þess að ná á topp vin­sæld­ar­list­ans í Banda­ríkj­unum.

[adspot]Nú er tím­inn hins vegar að renna út, enda eru minna en þrjár vikur þangað til Yoon Suk-yeol tekur við emb­ætti for­seta af Moon Jae-in, sem brást við árangri BTS með því að leyfa popp­stjörnum að fresta her­skyld­unni þangað til þær yrðu þrí­tugar, en elsti söngv­ari sveit­ar­innar er 29 ára og mun þurfa að gefa sig fram til her­skyldu fyrir lok árs. Hinir liðs­menn BTS eru allir fæddir á árunum 1993 til 1997 og hafa því örlítið meiri tíma, að því er fram kemur í umfjöllun Guardian um málið.

Samkvæmt núgild­andi lögum eru aðeins íþrótta­menn sem hafa kom­ist á pall á Ólympíu- eða Así­leikum og tón­list­ar­menn sem eru þekktir eða hafa hlotið alþjóð­leg verð­laun á sviði klass­ískrar tón­listar und­an­þegnir her­skyldu. Þeirra á meðal eru til dæmis Cho Seong-jin, sem varð fyrstur kóreu­manna til þess að sigra alþjóð­legu Chopin-píanó­leik­ana og Son Heung-min, sókn­ar­maður breska efstu­deild­ar­liðs Totten­ham í knatt­spyrnu. Að öðru leyti hafa suður-kóresk stjórn­völd litla þol­in­mæði fyrir mönnum sem reyna að kom­ast undan her­skyldu. Til að mynda var leik­ar­anum Steve Yoo, einnig þekktum sem Yoo Seung-jun, vísað úr landi og honum meinuð end­ur­koma í kjöl­far þess að hann kom sér undan her­skyldu með því að verða sér úti um banda­rískan rík­is­borg­ara­rétt skömmu áður en til stóð að boða hann til her­skyldu árið 2002.

Kunni að setja varhugavert fordæmi

Eins og áður segir hefur hljóm­sveitin BTS skapað mikil verð­mæti fyrir Suður-Kóreu, en samt sem áður eru um það afar skiptar skoð­anir hvort liðs­menn hennar eigi að fá und­an­þágu vegna þessa. Mörgum finnst þeir eiga það skilið en ótt­ast að það muni setja var­huga­vert for­dæmi þar sem erfitt verði að leggja mat á það hverjir eigi raun­veru­lega rétt á und­an­þág­unni og ótt­ast að for­dæmið verði mis­notað af öðrum sem ekki séu verð­ugir þess að vera und­an­skyldir her­skyld­unni. Öðrum finnst aðrar leiðir fær­ari, svo sem að veita meiri sveigj­an­leika þannig að stjörnur geti unnið störf sín og þjónað landi sínu sam­hliða.

Til stendur að taka málið fyrir á suður-kóreska þing­inu og von­ast for­svars­menn sveit­ar­innar eftir því að ákvörðun verði tekin áður en nýr for­seti tekur við völdum, en þeir ótt­ast að málið týn­ist í enda­lausum umræðum verði það raunin. Tíminn er í hið minnsta naumur og ekki síst fyrir Jin, eða Kim Seok-jin, elsta liðs­mann sveit­ar­innar. Þeir eiga, undir núgild­andi lögum, allir yfir höfði sér her­skyldu innan fárra ára, en eng­inn þeirra hefur tjáð sig opin­ber­lega um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár