Hælisleitendum frá öruggum löndum vísað úr landi fyrr

Frumvarp að breyt­ingum á útlend­inga­lögum gerir ráð fyrir að fólk sem er með til­hæfu­lausar hæl­is­um­sóknir og ekki talið í hættu verði sent úr landi eftir fyrsta stjórn­sýslu­stig.

Hægt verður að vísa hæl­is­leit­endum, sem koma frá ríkjum sem þykja örugg og umsóknir þeirra metnar ber­sýni­lega til­hæfu­lausar, úr landi strax og Útlend­inga­stofnun hefur úrskurðað í málum þeirra. Þetta er meðal þess sem lagt er til í frum­varpi meiri­hluta alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis um breyt­ingar á útlend­inga­lögum. Frum­varp­inu er ætlað að bregð­ast við miklli fjölgun flótta­manna og hæl­is­leit­enda hér á landi.

Und­an­farin ár hefur fjöldi fólks frá ríkjum Balkanskag­ans sótt um hæli hér á landi. Þannig komu 42% allra hæl­is­um­sókna í fyrra frá þessum ríkjum, og þar af voru Alban­íu­menn fjöl­menn­astir, 30% allra hæl­is­leit­enda hér­lendis. Ríki eins og Albanía eru hins vegar talin örugg ríki og nán­ast öllum umsóknum um hæli er hafnað.

Samkvæmt útlend­inga­lögum má ekki láta umsækj­endur um hæli eða vernd gegn ofsóknum yfir­gefa landið fyrr en ákvörðun í málum þeirra er end­an­leg. Þetta gildir þó ekki þegar efn­is­með­ferð umsóknar er synjað, þegar hæl­is­um­sóknir eru komnar til með­ferðar í öðru landi eða þegar Útlend­inga­stofnun telur aug­ljóst að aðstæður séu ekki þannig að við­kom­andi sé flótta­maður eða hafi ástæðu til að ótt­ast ofsóknir. Við þessi skil­yrði má vísa fólki strax úr landi og það er við þennan kafla lag­anna sem til stendur að bæta við lið um fólk sem kemur frá öruggum upp­runa­ríkjum og er ekki talið vera flótta­menn.

Þessir ein­stak­lingar munu þó áfram geta kært úrskurði stofn­un­ar­innar til kæru­nefndar útlend­inga­mála, en þurfa að fara til síns heima og bíða nið­ur­stöðu þaðan.

Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis, segir að þetta sé þröngur hópur fólks sem breyt­ing­arnar taki til. Hæl­is­leit­enda­kerfið sé lítið og það sé ætlað fólki í neyð. „Við viljum að neyð­ar­kerfið sé fyrir þá sem eru í neyð.“

Hún segir að þegar heild­ar­end­ur­skoðun á útlend­inga­lögum, sem nú er í umsagn­ar­ferli hjá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, verði orðin að lögum muni aðstæð­urnar breyt­ast. Þá verði auð­veld­ara fyrir fólk frá þessum ríkjum að sækja um dval­ar­leyfi hér­lendis. Þessi laga­breyt­ing er því eins konar milli­leikur til að bregð­ast við miklum fjölda og álagi í kerf­inu. Nauð­syn­legt sé að hafa útlend­inga­lög í sífelldri end­ur­skoðun, þannig sé það í nágranna­ríkjum okkar.

Stækka kærunefnd útlendingamála

Einnig stendur til að fjölga nefnd­ar­mönnum í kæru­nefnd útlend­inga­mála úr þremur í sjö, og þar af verða tveir í fullu starfi við að úrskurða í kæru­málum.

Kæru­nefnd útlend­inga­mála er fremur ný, en hún hóf störf 1. jan­úar 2015. Hjörtur Bragi Sverr­is­son er for­maður nefnd­ar­innar og er í fullu starfi hjá nefnd­inni. Í byrjun síð­asta árs störf­uðu fjórir lög­fræð­ingar ásamt honum hjá nefnd­inni en þeim hefur þegar verið fjölgað í sjö. Þá starfar einn rit­ari hjá nefnd­inni. Verði frum­varpið að lögum verður vara­for­maður nefnd­ar­innar einnig í fullu starfi og for­maður og vara­for­maður munu geta úrskurðað einir í ákveðnum málum. Með fleiri nefnd­ar­mönnum á að vera hægt að funda oftar, auk þess sem nefndin mun geta starfað í deildum.

Fjöldi umsókna um alþjóð­lega vernd á Íslandi tvö­fald­að­ist frá 2014 til 2015 og gert er ráð fyrir því að þessi fjölgun haldi áfram og yfir 600 manns muni sækja um hæli á Íslandi áður en árið 2016 er liðið. Kæru­nefnd útlend­inga­mála hefur ekki náð að halda í við mark­mið stjórn­valda um að máls­með­ferð­ar­tími sé ekki lengri en 90 dagar. „Brýnt er að brugð­ist verði strax við til að styrkja og hraða máls­með­ferð umsókna um alþjóð­lega vernd,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár