Skipting innanríkisráðuneytis kostar 120 milljónir á ári

Alþingi ræðir nú um var­an­lega skipt­ingu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í tvö ráðu­neyti. Flestir umsagn­ar­að­ilar styðja til­lög­una, en minni­hluti þings­ins gagn­rýnir kostnað og segir ástæð­una fyrst og fremst vöntun á ráð­herra­stólum.

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar á fyrsta ríkisráðsfundi sínum.
Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar á fyrsta rík­is­ráðs­fundi sínum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alþingi ræðir nú um áform stjórn­ar­meiri­hlut­ans um að skipta upp inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu á nýjan leik í tvö ráðu­neyti, ann­ars vegar dóms­mála­ráðu­neyti og hins vegar sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyti. Ráðu­neytin voru sam­einuð í eitt inn­an­rík­is­ráðu­neyti eftir hrun, rétt eins og önnur ráðu­neyti voru sam­einuð.

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra lagði fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um þetta í jan­úar, þegar ný rík­is­stjórn tók við völdum. Ný rík­is­stjórn fjölg­aði ráð­herrum og er með tvo ráð­herra í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, þau Sigríði Andersen dóms­mála­ráð­herra og Jón Gunn­ars­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra. Það var gert með for­seta­úr­skurði, rétt eins og venja er þegar ráðu­neytum er skipt. Tillagan snýst hins vegar um að ráðu­neyt­inu sjálfu verði skipt í tvennt, og ráðu­neytin verði því níu í stað átta. Verið er að ræða málið í seinni umræðu á Alþingi.

Sex umsagnir hafa borist stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd vegna þess­ara breyt­inga, og allir sem taka afstöðu til þess fagna áform­uðum breyt­ingum. Dóm­stóla­ráð fagnar til­lög­unni og seg­ist telja meðal ann­ars í ljósi þeirra umfangs­miklu breyt­ingar sem framundan séu í dóms­kerf­inu að það sé mik­il­vægt að mála­flokk­ur­inn falli undir sér­stakt fagráðu­neyti dóms­mála.

Land­helg­is­gæslan fagnar breyt­ing­unni og „tekur undir þau meg­in­sjón­ar­mið sem liggja að baki breyt­ing­unni, þ.e. að með stofnun dóms­mála­ráðu­neytis verði hin póli­tíska for­ysta mark­viss­ari, færi ráðu­neyt­unum aukna sér­þekk­ingu sem og yfir­sýn.“

Lög­reglu­stjóra­fé­lag Íslands styður einnig fyr­ir­hug­aða breyt­ingu. „Félagið bindur vonir við að breyt­ingin hafi í för með sér jákvæð áhrif á starf­semi nýrra ráðu­neyta og telur jákvæða þá upp­stokkun á mál­efna­sviðum sem lagt er til í til­lögu að þings­á­lyktun.“

Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga fagnar einnig til­lög­unni og styður hana ein­dregið. Sam­bandið segir mál­efni sveit­ar­fé­laga ekki hafa fengið nægi­legt vægi í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu og bindur vonir við að breyt­ing verði á því með upp­skipt­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Vanreifað og snýst um jafnvægi milli flokka

Svandís Svav­ars­dóttir, full­trúi VG í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, skil­aði minni­hluta­á­liti um málið þar sem lagst er gegn því. Hún seg­ist telja málið van­reifað, fyrir því liggi ekki fag­legur rök­stuðn­ingur, verið sé að tvístra starfs­kröftum í ráðu­neytum í stað þess að sam­þætta og samnýta, og að und­ir­bún­ingi hafi verið veru­lega áfátt. Það hafi ekki verið lögð fram nein skýr efn­is­leg rök, og ekki hafi legið fyrir neitt mat á kostn­að­inum við upp­skipt­ing­una þegar til­lagan var lögð fram. Það beri þess merki að um sé að ræða fyrst og fremst ráð­stöfun sem snú­ist um jafn­vægi milli flokka í myndun rík­is­stjórn­ar­innar. 

Samkvæmt kostn­að­ar­mati sem gert var við vinnslu máls­ins var gert ráð fyrir allt að sjö nýjum stöðu­gildum við breyt­ing­arnar og kostn­aði sem nemur um 120 millj­ónum króna á ári. Meiri­hluti stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar segir hins vegar í sínu meiri­hluta­á­liti um málið að hann telji að auk eðli­legt upp­hafs­kostn­aðar eigi breyt­ing­arnar að fela í sér kostnað vegna ráðn­ingar ráðu­neyt­is­stjóra og rit­ara hans. Ekki sé verið að sam­þykkja frek­ari útgjalda­aukn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár