Valdaþræðirnar gætu legið til Pírata

Staðan í stjórn­mál­unum er for­dæma­laus, en stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir, sem mæl­ast nú með ríf­lega 65 pró­sent fylgi, eru byrj­aðir að stilla saman streng­ina. Píratar eru með pálmann í hönd­unum.

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir á Alþingi, Sam­fylk­ingin, Vinstri græn, Björt fram­tíð og Píratar, vilja ólm fá kosn­ingar fram hið fyrsta, en þurfa að sætta sig við að bíða fram á haustið, eftir tíð­indi gær­dags­ins. Sigurður Ingi Jóhanns­son leiðir nýja rík­is­stjórn sem for­sæt­is­ráð­herra, eftir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son vék úr henni, en reikna má með því að nýr ráð­herrakap­all skýrist í dag. Lilja Alfreðs­dóttir tekur sæti í rík­is­stjórn sem utan­þings­ráð­herra, og verka­skipt­ing stjórn­ar­flokk­anna eftir ráðu­neytum verður áfram sú sama og verið hefur til þessa, eftir því sem fram kom í máli Sigurðar Inga og Bjarna Bene­dikts­sonar, í gær­kvöldi.

Eins og staða mála er nú, gæti sá tími sem líður fram að kosn­ingum skipt miklu máli fyrir stjórn­ar­and­stöð­una. Bjarni sagði í gær að stjórn­ar­and­staðan væi „líka í rusli“, og vís­aði til þess að ennþá væri góður meiri­hluti hjá stjórn­ar­flokk­unum í þing­inu, sem gætu staðið af sér van­traust­til­lögu.

Krafa stjórn­ar­and­stöð­unnar er ennþá sú að kosið verði strax, og hefur þetta komið skýr­lega fram í við­tölum við for­ystu­fólk stjórn­ar­and­stöð­unnar, ekki síst í gær­kvöldi. Rík­is­stjórn undir for­ystu Sigurðar Inga heldur um þræð­ina fram á haust meðan unnið verður að mik­il­vægum málum, þar helst aflandskrón­u­út­boð­inu sem er lyk­il­at­riði í áætlun stjórn­valda um afnám hafta. Von er á því máli á dag­skrá á næstu tveimur til þremur vikum.

For­ystu­fólk í stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum, þau Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, Óttar Proppé – sem mest hefur verið áber­andi í þessu máli fyrir hönd Bjartrar fram­tíðar – og Birgitta Jóns­dóttir og Helgi Hrafn Gunn­ars­son, hjá Pírötum, hafa talað með sam­stilltum hætti og segj­ast öll á því að þessi nið­ur­staða, það er að Sig­mundur Davíð stígi til hliðar og Sigurður Ingi taki við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, sé ekki góð nið­ur­staða sem fólk sætti sig við. Það sáust engin skilti með óskum um að Sigurður Ingi yrði for­sæt­is­ráð­herra, sagði Helgi Hrafn, þegar þessi mynd var að skýr­ast.

Miklar sviptingar

Nýjustu skoð­ana­kann­anir benda til þess að það sé farið að molna undan fylgi við rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. Þeir mæl­ast nú með 26 pró­sent traust, sam­kvæmt könnun frá MMR í gær, sem er það lægsta sem rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir hafa mælst með frá því þeir tóku við stjórn­ar­taumunum 2013. Raunar hefur rík­is­stjórn sjaldan mælst með svo lítið traust. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er með 8,7 pró­sent fylgi og lækkar frá því í síð­ustu könnun í mars og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 22,5 pró­sent. Píratar eru lang­sam­lega stærsti flokkur lands­ins með 36,7 pró­sent fylgi. Vinstri græn mæl­ast með 12,8 pró­sent fylgi og Sam­fylk­ingin 9,9 pró­sent. Björt fram­tíð er yfir fimm pró­sent lág­marki, sem þarf til að ná fólki inn á þing, og mælist nú með 5,8 pró­sent fylgi. Stjórn­ar­and­staðan er því með 65,2 pró­sent fylgi í þess­ari nýj­ustu könnun, en stjórn­ar­flokk­arnir 31,2 pró­sent.

Það þarf ekki að koma á óvart að stjórn­ar­and­staðan hafi verið að knýja á um kosn­ingar í ljósi þess­arar stöðu.

Innanmein og valdabarátta

Innan Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna, það er í gras­rót flokk­anna, hefur verið rætt um að þetta kunni að vera heppi­legur tíma­punktur til að þess að auka sam­starf flokk­anna, jafn­vel sam­ein­ast. Líklegt verður að telj­ast að Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, gæti orðið leið­togi þeirra hreyf­ingar, í ljósi þess að mikið traust til hennar hefur verið stað­fest síend­ur­tekið í könn­unum að und­an­förnu. En þetta hefur ekk­ert verið rætt form­lega meðal þing­manna og ekki heldur í for­ystu­sveit þess­ara flokka á lands­vísu. Frekar má orða það svo, að flokk­arnir viti af mögu­leik­anum, í ljósi þess hvernig hið póli­tíska lands­lag hefur þró­ast, en hafi til þessa ekk­ert gert til að ýta honum í far­veg til fram­kvæmdar.

Þvert á móti hefur Sam­fylk­ingin, sem hefur átt í stök­ustu vand­ræðum allt kjör­tíma­bilið og mælst í lægstu lægðum í fylg­inu frá stofnun, horft til þess að end­ur­nýja flokks­starfið og for­yst­una. Hafa Helgi Hjörvar, Oddný Harð­ar­dóttir og Magnús Orri Schram þegar boðið sig fram til for­mennsku þegar kosið verður um end­ur­nýjun for­yst­unnar.

Í ljósi þess hve lítið fylgi hefur verið við Bjarta fram­tíð allt kjör­tíma­bilið, þá liggur fyrir að hún mun berj­ast fyrir lífi sínu í næstu kosn­ingum, fari hún fram undir sömu for­merkjum.

Píratar eru hins vegar með pálmann í hönd­unum. Þrátt fyrir þriggja manna þing­flokk, Birgittu, Helga Hrafn og Ástu Guðrúnu Helga­dóttur, þá er ljóst að valda­þræð­irnir í stjórn­málum lands­ins gætu lent hjá þeim í haust þegar kosið verður. Ef nið­ur­staðan yrði í sam­ræmi við kann­anir þá fengju Píratar 28 þing­menn af 63 í heild­ina. Þau hafa rætt um það, að rík­is­stjórn með þeirra þátt­töku þurfi að vera skipuð utan­þings­ráð­herrum. Ekkert hefur sést á spilin í þeim efnum, það er hvaða fólk það er sem kæmi til greina sem ráð­herrar, en Píratar þurfa að hafa nokkuð hraðar hendur, þegar kemur að skipu­lagi innra starfs­ins, í ljósi þess að kosið verður í haust.

En það má ekki gleyma þeim þekktu sann­indum úr stjórn­málum, að staða mála getur breyst hratt og erfitt að er að sjá fyrir þróun mála, eins og atburða­rás síð­ustu daga sýnir glögg­lega. Það sem virð­ist aug­ljóst nú, gæti verið breytt innan skamms tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár