Samningamaðurinn segir Breta ekki geta valið sér bland í poka úr frjálsa markaðinum.

Michel Barnier hefur getið sér orð sem harður samn­inga­maður. Hann telur aðild­ar­ríkin ekki mega velja sér bland í poka úr frjálsa mark­að­inum.

Michel Barnier verður fulltrúi Evrópusambandsins við samningaborðið í Brexit-viðræðunum. Hann hefur talað fyrir því að ESB verði að standa fast við fjórfrelsið.
Michel Barnier verður full­trúi Evr­ópu­sam­bands­ins við samn­inga­borðið í Brexit-við­ræð­unum. Hann hefur talað fyrir því að ESB verði að standa fast við fjór­frelsið. Mynd: EPA

Evr­ópu­sam­bandið hefur ráðið sér samn­inga­mann í Brexit-við­ræð­unum. Sá heitir Michel Barnier og er fyrr­ver­andi ráð­herra í rík­is­stjórn Frakk­lands. Hann hefur einnig gengt emb­ætti fram­kvæmda­stjóra innri mark­að­ar­ins og verið vara­for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB. Jean-Claude Junker, for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar­innar, til­kynnti þetta í dag.

Barnier er þekktur fyrir harða afstöðu sína með fjór­frels­inu sem grunn­stoð Evr­ópu­sam­starfs­ins og hins frjálsa mark­aðar. Samn­inga­mað­ur­inn mun ekki hefja störf fyrr en 1. októ­ber næst­kom­andi. Hann seg­ist ekki ætla að hafa neitt sam­band við Breta fyrr en form­leg úrsagn­ar­beiðni hefur borist til Brussel.

Þegar Barnier var fram­kvæmda­stjóri innri mark­aðar ESB á árunum 2010 til 2014 hafði hann yfir­um­sjón með aðgerðum sam­bands­ins til að stemma stigu við Evru­krís­una og koma á fót traust­ari lög­gjöf um fjár­mála­kerfi á mark­að­inum. Þrengri skil­yrði fóru sér­stak­lega illa í Breta og fjár­mála­hverfið í London, City of London. Barnier lagð­ist hart gegn því að Bretland fengi auknar und­an­þágur frá fjár­mála­lög­gjöf­inni.

For­kólfar í City of London hafa síðan náð að gera grýlu úr Barnier sem ætíð hefur lagt áherslu á að hinn frjálsi mark­aður væri ekki nammi­bar sem hægt væri að velja sér bland í poka úr. Segja má að Brexit sé að ein­hverjum hluta til eft­ir­köst af þess­ari hörðu afstöðu Barnier og ESB gagn­vart Bretum. David Cameron, for­maður Íhalds­flokks­ins breska í aðdrag­anda þing­kosn­inga 2015, lof­aði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni um aðild Bret­lands að ESB til að mæta auknum þrýst­ingi innan flokks síns og utan, meðal ann­ars vegna harð­ari skil­yrða vegna Evru-krís­unnar.

Eig­in­legar samn­inga­við­ræður munu ekki hefj­ast fyrr en Bretland hefur form­lega óskað eftir úrsögn úr sam­band­inu. Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur sagt að beiðnin verði ekki send yfir Ermar­sundið fyrr en bresk stjórn­völd hafa und­ir­búið samn­ings­mark­mið sín og fyr­ir­hug­aða úrsögn.

Haft er eftir Junker á vef Evr­ópu­sam­bands­ins að hann hafi viljað fá reyndan stjórn­mála­mann í hlut­verk samn­inga­manns ESB gagn­vart Bretum. „Michel er hæfi­leik­a­ríkur samn­inga­maður með mikla reynslu í veiga­mestu mála­flokk­unum sem eru undir í Brexit-við­ræð­unum,“ sagði Junker. Reynsl­una hafi hann fengið sem ráð­herra utan­rík­is­mála og land­bún­aðar í Frakk­landi, sem með­limur í fram­kvæmda­stjórn ESB og yfir­maður svæð­is­stefnu­mót­unar, stofn­annaum­bóta og innri mark­að­ar­ins.

Junker telur Barnier það einnig til tekna að þekkja vel til í hinum ýmsu stofn­unum sam­bands­ins og víð­tækt tengsla­net hans meðal stjórn­valda aðild­ar­ríkja ESB. Samn­inga­mað­ur­inn mun heyra beint undir for­seta fram­kvæmda­stjórn­ar­innar og veita honum reglu­lega upp­lýs­ingar um gang mála á meðan við­ræðum við Breta stendur.

Sjálfur seg­ist Barnier vera upp með sér með skip­an­ina. Hann lýsti því á Twitter á helstu tungu­málum Evr­ópu­sam­bands­ins; ensku, frönsku og þýsku.

Theresa May er enn á flakki um Evrópu með það að mark­miði að hitta aðra leið­toga aðild­ar­ríkja ESB. Hún hittir Matteo Renzi, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, í Róm í dag og heldur svo áfram til Slóvakíu og Póllands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár