Markaðir nötra eftir viðræðuslit Grikkja og ESB

Gengið á verð­bréfa­mörk­uðum í Grikk­landi hefur lækkað skarpt eftir að við­ræðum milli Grikkja og full­trúa Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) var slitið í morgun. ATG vísi­talan gríska lækk­aði um 5,9 pró­sent á föstu­dag­inn, en tók síðan aðra dýfu eftir að frétt­irnar spurð­ust út, eða um 5,3 pró­sent. Þetta kemur fram á vef breska rík­is­út­varps­ins BBC.

Einkum er deilt um nið­ur­skurð­ar­að­gerðir gríska rík­is­ins, upp á ríf­lega tvo millj­arða evra, eða sem nemur 300 millj­örðum króna. Grísk stjórn­völd hafa lagt upp með falla frá þeim aðgerðum, en þær voru hluti af lána­samn­ingum Grikkja við ESB, Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn og kröfu­hafa. Á meðan þetta er óleyst, þá mun Grikk­land ekki fá lífs­nauð­syn­lega lána­fyr­ir­greiðslu.

Sér­stak­lega eru það grískir bankar sem eru í vand­ræðum þar sem fé streymir frá Grikk­landi, á meðan það er óleyst hvort samn­ingar náist við kröfu­hafa lands­ins.

For­sæt­is­ráð­herr­ann, Alexis Tsipras, segir málið snú­ast um lýð­ræð­is­legan rétt Grikkja til þess að stjórna eigin fjár­hag og rík­is­fjár­málum. Flokkur hans, Syriza, hafði það sem aðal­stefnu­mál í kosn­ingum að end­ur­semja við kröfu­hafa og draga til baka nið­ur­skurð­ar­að­gerðir hjá hinu opin­bera. Þær hafa ekki gengið eftir, og hafa áform um að draga til baka áður ákveðnar aðgerðir engum árangri skilað.


My statem­ent on the negotiations in @EFSYNTAKTON newspaper: This is about #democracy. http://t.co/589HQhqHdo #Greece pic.twitter.com/dO33ONrsZV


— Alexis Tsipras (@tsipras_eu) June 15, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár