Loftbardagi árið 1917

Frásögn þýska orr­ustuflug­manns­ins Ernst Udet af loft­bar­daga úr fyrri heims­styrj­öld 1917 er ævin­týri lík­ust. Flosi Þor­geirs­son, sagn­fræð­ingur og lista­maður, dregur fram dramat­íska frá­sögn af loft­bar­dag­anum.

Frásögn þýska orr­ustuflug­manns­ins Ernst Udet af loft­bar­daga úr fyrri heims­styrj­öld 1917. Þýtt af grein­ar­rit­ara úr bók­inni Ace of the Iron Cross sem er ensk útgáfa af bók Udets, Mein Fli­eger­leben.

Ernst Udet var einn sig­ur­sæl­asti orr­ustuflug­maður Þjóð­verja í fyrri heims­styrj­öld. Aðeins Manfred von Richthofen, rauði bar­ón­inn, grand­aði fleiri flug­vélum. Alls vann Udet 62 loft­sigra. Hann lifið stríðið af og vann fyrir sér sem flug­maður og m.a. í kvik­myndum, bæði í Þýska­landi og Banda­ríkj­unum. Hann fékk stöðu hjá Luftwaffe er nas­istar komust til valda en álagið varð honum að ofur­liði og hann framdi sjálfs­morð árið 1941. Hér fylgir lýs­ing hans á því er hann mætti Georges Guynemer, einum fræg­asta flug­manni franska flug­hers­ins, á vesur­víg­stöðv­unum 1917. 

Ýmislegt á sér nú stað við víg­lín­una. Sagt er að óvin­ur­inn sé að und­ir­búa stór­sókn. Loft­belgi má sjá í löngum röðum víða. Þeir minna helst á ein­kenni­leg þykk ský. Þeir gefa upp stað­setn­ingu fót­göngu – og stór­skota­liðs okkar. Gott væri þó ekki nema einn þeirra springi í tætlur. Það yrði ágætis við­vörun til óvin­ar­ins.

Ég legg af stað í bítið svo ég hafi sól­ina í bakið er ég ræðst gegn loft­belgnum. Ég flýg hærra en ég hefi gert áður. Hæð­ar­mælir­inn sýnir 5000 metra. Loftið er þunnt og ískalt. Veröldin fyrir neðan mig minnir helst á risa­stórt fiska­búr. Fyrir ofan Lierval, þar sem Reinhold, félagi minn, féll í bar­daga fyrir skömmu síðan er óvina­vél á sveimi. Hún lík­ist helst lít­illi vatnafló þar sem hún skutl­ast í gegnum hrá­slaga­legt loftið.

Úr vestri birt­ist nú lít­ill dep­ill á tölu­verðum hraða. Í fyrstu er hann smá­gerður og dökkur en stækkar óðum er hann nálg­ast. Þetta er frönsk óvina­vél af SPAD-gerð. Eins og ég er hann einn á ferð, ráf­andi um him­in­inn í leit að bráð. Ég kem mér vel fyrir í sæt­inu. Bardagi er yfir­vof­andi. Við mætum hvor öðrum í sömu flug­hæð, aðeins hárs­breidd milli véla okkar. Við sveigjum báðir vélum okkar snöggt til vinstri. Hin flug­vélin er skín­andi ljós­brún í sól­inni. Nú hefst hring­flugið. Af jörðu niðri lítum við lík­lega út sem tveir stórir rán­fuglar í ein­hvers­konar pör­un­ar­flugi. Hér uppi er þetta hins vegar dauð­ans alvara. Sá sem fyrstur fær óvin­inn í bakið hefur tapað þar eð orr­ustu­vél­arnar geta aðeins skotið beint fram fyrir sig. Ólíkt könn­un­ar­vél­unum er aft­ur­hlut­inn er alveg varn­ar­laus.

Stundum förum við svo nálægt hvor öðrum að ég get auð­veld­lega greint and­lit Frakkans, fölt og mjóslegið undir leð­ur­hjálm­inum. Í fimmta skiptið er við mæt­umst sé ég að á vél­ar­hlið­inni rétt fyrir aftan væng­ina stendur eitt orð svart­letrað: “Vieux” eða “Gamli”. Nú veit ég hver þetta er, eng­inn annar en einn frækn­asti flug­maður Frakka, Georges Guynemer. Hann hefur þegar sent þrjá­tíu þýska flug­menn yfir móð­una miklu. Guynemer flýgur ætíð aleinn. Eins og allir hættu­legir rán­fuglar kemur hann æðandi með sól­ina í bakið, skýtur keppi­nauta sína í tætlur á sek­úndu­broti og hverfur á braut. Þannig tók hann Puz frá okkur. Guynemer er einn af þeim allra bestu. Ég geri mér grein fyrir að þetta verður upp á líf og dauða.

Ég fer í hálfa lúppu til að freista þess að kom­ast að honum að ofan. Á auga­bragði hefur hann áttað sig á fyr­ir­ætlan minni og fer sjálfur í lúppu. Ég reyni að sveigja og Guynemer eltir mig. Er hann kemur úr beygj­unni nær hann mér í vél­byssu­miðið eitt augna­blik. Kúlurnar rífa sig í gegnum hægri væng­inn og ég heyri klingj­andi hljóð er þeir skella á stál­vír­unum. Ég reyni allt sem ég hef lært og kann. Þröngar beygjur og sveigjur, hend­ist til hlið­anna en hann er eldsnöggur að átta sig á öllu sem mér kemur til hugar og bregst við á sek­úndu­broti. Ískaldur raun­veru­leik­inn rennur upp fyrir mér. Guynemer er ein­fald­lega betri og flug­vél hans er öfl­ugri en mín. Ég neita að gef­ast upp og held áfram þess­ari dauð­ans bar­áttu. Nú kemur að annarri beygju. Eitt augna­blik hef ég hann í mið­inu og í flýti ýti ég á hnapp­inn á stýr­i­stöng­inni sem hleypir af vél­byss­unum en.....ekk­ert ger­ist.....vél­byss­urnar þegja þunnu hljóði...skot­færa­hleðslan er stífluð!

Ég held dauða­haldi um stöng­ina með vinstri hendi og reyni að eiga við skot­færa­hleðsl­una með þeirri hægri. Það er til einskis, ég get ekki losað um stífl­una!

Ég hug­leiði að taka dýfu og reyna að sleppa en geri mér um leið grein fyrir að það er von­laust. Færni keppi­nautar míns er slík að hann myndi auð­veld­lega ná mér og senda mig inn í eilífð­ina á auga­bragði. SPAD-flug­vélin er eflaust kraft­meiri en mín. Hann myndi ná mér. Áfram heldur dauða­leik­ur­inn. Við förum hring eftir hring og tökum krappar beygjur. Þetta er stór­kost­legt flug hjá okkur en mikið er í húfi. Aldrei hef ég átt í höggi við slíkan flug­mann! Í nokkrar sek­úndur ímynda ég mér að þetta sé ekki hinn alræmdi Guynemer og finnst sem ég sé að keppa við gamlan kunn­ingja yfir okkar eigin flug­velli. Þessi tál­sýn gufar þó fljótt upp og ískaldur raun­veru­leik­inn grípur mig hel­tökum á nýjan leik.

Í heilar átta mín­útur hring­sólum við í kringum hvorn annan. Þetta eru lengstu átta mín­útur sem ég hef lifað. Ég sé hann nú á hvolfi fyrir ofan mig. Ég sleppi stjórn­stöng­inni eitt augna­blik og lem í bræði í skot­færa­hleðsl­una með báðum hnúum. Vissu­lega er það frum­stæð aðferð en hefur stundum dugað.

Þetta sér Guynemer þar sem hann hangir í loft­inu fyrir ofan mig, það hlýtur að vera. Nú gerir hann sér grein fyrir hvað hrjáir þýska flug­mann­inn, að ég er í raun mátt­vana. Aftur birt­ist hann fyrir ofan mig og vél hans er næstum alveg á hvolfi. Þá ger­ist það: Hann réttir út hend­ina og veifar til mín og í nær sömu andrá tekur hann dýfu til vest­urs í átt að eigin víg­línu. Hann er far­inn áður en ég veit af.

Ég bíð ekki boð­anna og flýg þegar heim. Dofinn. Alveg stjarfur.

Sumir hafa haldið því fram að Guynemer hafi sjálfur verið með stíflaða hleðslu. Aðrir hafa sagt að hann hafi hræðst það að ég myndi reyna að fljúga á vél hans í ein­skærri örvænt­ingu. Þessar útskýr­ingar fellst ég ekki á. Enn þann dag í dag trúi ég því að, þarna up í ísköldum háloft­unum, hafi ég orðið þeirrar gæfu aðnjót­andi að kynn­ast sann­kall­aðri ridd­ara­mennsku. Guynemer hvarf seinna í bar­daga og hefur síðan aldrei til hans spurst. Enginn veit því hvar hann hvílir en í huga mínum hef ég þegar lagt blóm­vönd á leiði þessa stór­kost­lega flug­manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár