Yfir 70 prósent landsmanna hlynnt bæði leiguþaki og leigubremsu

Samtök leigj­enda létu Maskínu fram­kvæma skoð­ana­könnun um afstöðu Íslend­inga til bæði leigu­þaks og leigu­bremsu. Í ljós kom að þessar hug­myndir, til að halda aftur af leigu­verði, mæl­ast mjög vel fyrir hjá þjóð­inni.

Rúmlega 71 pró­sent lands­manna eru hlynnt því að sett verði leigu­þak á leigu­hús­næði á Íslandi, sam­kvæmt nið­ur­stöðum nýrrar skoð­ana­könn­unar frá Maskínu, sem unnin var fyrir Samtök leigj­enda. Enn fleiri, eða rúm 72 pró­sent, styðja að sett verði svokölluð leigu­bremsa á verð leig­hús­næðis hér­lendis.

Í skoð­ana­könn­un­inni, sem fram­kvæmd var með net­könnun dag­ana 2. til 12. sept­em­ber og náði til 1.249 svar­enda, voru þátt­tak­endur spurðir hvort þeir styddu leigu­bremsu og leigu­þak, en í upp­hafi spurn­ing­anna voru hug­tökin tvö skil­greind með eft­ir­far­andi hætti:

„Leigu­bremsa er það kallað þegar gefið er út við­mið [um] hversu mikið húsa­leiga má hækka yfir til­tekið tíma­bil“ og „Leiguþak er það kallað þegar gefið er út hámarks­leigu­verð á leigu­hús­næði miðað við stærð, gæði og stað­setn­ingu.“

Þáttak­endur voru svo spurðir hvort þeir væru hlynntir eða and­vígir því að þessi úrræði yrðu tekin upp hér á landi. Svörin voru sem áður segir þau að rúm­lega 70 pró­sent svar­enda sögð­ust hlynnt bæði leigu­bremsu og leigu­þaki hér­lendis.

Í báðum til­fellum sögð­ust um 46-47 pró­sent svar­enda vera „mjög hlynnt“ því að þessi úrræði til að sporna gegn hækk­unum leigu­verðs yrðu tekin upp hér á landi. Lítill hluti sagð­ist á móti „mjög and­vígur“ slíkum hug­myndum, eða á bil­inu 5-6 pró­sent í hvoru til­felli.

Stuðn­ingur við þessar hug­myndir var meiri í hópi þeirra sem búa í leigug­hús­næði en þeirra sem búa í eigin hús­næði, sem ef til vill þarf ekki að koma á óvart. Á meðal leigj­enda sögð­ust 88 pró­sent hlynnt leigu­bremsu og 84 pró­sent hlynnt leigu­þaki, en hlut­fallið var um og yfir 70 pró­sentum í hópi þeirra sem búa í eigin hús­næði.

Andstaða mælir nær einungis á hægri kantinum

Þegar horft er til þess hvernig afstaða fólk er eftir stuðn­ingi við ein­staka stjórn­mála­flokka sést að meiri­hluti væntra kjós­enda allra stjórn­mála­flokka sögð­ust hlynnt bæði leigu­þaki og leigu­bremsu.

[adspot]

And­staðan við þessar hug­myndir var mest á hægri væng stjórn­mál­anna, en rúm 30 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks segj­ast and­víg hug­mynd­inni um leigu­þak og rúm 28 pró­sent kjós­enda Við­reisnar. Hjá væntum kjós­endum Fram­sókn­ar­flokks sögð­ust einnig tæp 13 pró­sent and­víg hug­mynd­inni um leigu­þak, en í öðrum kjós­enda­hópum er and­staðan við þá hug­mynd undir 10 pró­sentum.

Kjós­endum þess­ara flokka líst ögn betur á leigu­bremsu, en 26 pró­sent væntra kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks segj­ast and­víg því að slík hug­mynd verði útfærð á Íslandi og rúm 19 pró­sent væntra kjós­enda Við­reisnar. Á meðal kjós­enda ann­arra flokka segj­ast innan við tíu pró­sent and­víg því að koma á leigu­bremsu á íslenskum leigu­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár