Meirihluti VG styður að fara í formlegar viðræður við Framsókn og Sjálfstæðisflokkinn

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Meiri­hluti þing­flokks Vinstri grænna styður að fara í form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk.

Tveir þing­menn flokks­ins eru á móti við­ræð­unum, Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Andrés Ingi Jónsson.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir flokk­inn reiðu­bú­inn til form­legra stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðna við Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokk, í við­tali á RÚV. Sam­hljómur sé milli flokk­anna þótt áhersl­urnar séu ólíkar. Þá seg­ist hann opinn fyrir við­ræðum um það hver leiði rík­is­stjórn­ina, verði af við­ræðum. Ekki væri ólík­legt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gerði kröfu um fleiri ráð­herra­stóla á móti.

Þing­flokkur Vinstri grænna fund­aði í rúma fjóra tíma í gær án þess að kom­ast að nið­ur­stöðu um málið. Ákveðið var að funda á ný klukkan 13 í dag og nið­ur­staða þess fundar var að níu af ell­efu þing­mönnum flokks­ins studdu að hefja form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk.

Ljóst var fyrir fund­inn að Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, odd­viti Vinstri grænna í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, yrði lík­lega á móti því að fara í þessar við­ræður. Hún birti eft­ir­far­andi tíst í morgun:

Þar vísar hún í myllu­merki sem var nokk­urs konar ein­kenn­is­merki bar­áttu þolenda og aðstand­enda þeirra kyn­ferð­is­brota­manna sem hlutu upp­reist æru í fyrra. Sú bar­átta var stór ástæða þess að rík­is­stjórn féll í haust eftir að opin­berað var að faðir Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefði verið einn þeirra sem skrif­aði með­mæli fyrir einn mann­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár