Gistináttaskatturinn fer beint í ríkissjóð

Samkvæmt frum­varpi ferða­mála­ráð­herra mun fram­kvæmda­sjóður ferða­manna­staða ekki lengur vera fjár­magn­aður beint með hluta gistin­átta­skatts.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fram­kvæmda­sjóður ferða­manna­staða verður ekki lengur fjár­magn­aður með gistin­átta­skatti, sam­kvæmt drögum að frum­varpi um breyt­ingar á lögum um sjóð­inn, sem búið er að birta á vef atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins. Þá munu ferða­manna­staðir í opin­berri eigu ekki lengur geta sótt um styrki í sjóð­inn heldur ein­göngu ferða­manna­staðir í einka­eigu eða eigu sveit­ar­fé­laga.

Samkvæmt núgild­andi lögum fær fram­kvæmda­sjóður ferða­manna­staða 3/5 hluta þeirra tekna sem ríkið fær af gistin­átta­skatti. Fyrir jól var gistin­átta­skatt­ur­inn þre­fald­aður úr 100 krónum á hverja selda ein­ingu í 300 krónur á hverja selda gistin­átta­ein­ingu. Sú breyt­ing tekur gildi þann 1. sept­em­ber næst­kom­andi. Því hefði fram­kvæmda­sjóð­ur­inn að óbreyttu fengið tals­vert hærri fram­lög af fjár­lögum, en gert var ráð fyrir því að auknar tekjur rík­is­ins af hærri gistin­átta­skatti yrðu 300 millj­ónir á þessu ári og 1,2 millj­arðar á næsta ári.

Ef frum­varp Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, verður að lögum mun þetta breyt­ast. Samkvæmt frum­varp­inu verður fram­lag rík­is­sjóðs í fram­kvæmda­sjóð­inn ákveðið á fjár­lögum, og sjóð­ur­inn fær því ekki mark­aðar tekjur af gistin­átta­skatti. Þetta er í sam­ræmi við fyr­ir­komu­lag laga um opin­ber fjár­mál þar sem almennt er ekki gert ráð fyrir því að tekjur séu mark­aðar í til­tekin verk­efni.

Samkvæmt grein­ar­gerð með frum­varp­inu hefur ríkið sett tals­vert meiri pen­inga inn í sjóð­inn heldur en hlutur hans af gistin­átta­skatt­inum hefur sagt til um. Þannig var það í fyrra og gert er ráð fyrir veru­legum við­bót­ar­fram­lögum á fjár­lögum árs­ins í ár.

Sveitarfélögin vildu hluta af gistináttaskatti

Líkt og Kjarninn greindi frá þegar gistin­átta­skatt­ur­inn var hækk­aður vildi Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga að sveit­ar­fé­lög lands­ins fengju helm­ing eða tvo þriðju hluta af gistin­átta­skatt­inum vegna þeirra ferða­manna sem gista innan þeirra marka. Þær tekjur myndu svo renna til þess að byggja upp inn­viði ferða­þjón­ust­unnar í því sveit­ar­fé­lagi.

[links]Þessu voru Samtök ferða­þjón­ust­unnar ósam­mála, og vildu að skatt­ur­inn yrði óskiptur lát­inn renna inn í fram­kvæmda­sjóð ferða­manna­staða.

Þrátt fyrir að sjóð­ur­inn hafi fengið hærri fram­lög en sem nemur skatt­inum var ákveðið að lækka fram­lögin til hans um 600 millj­ónir króna milli umræðna um fjár­laga­frum­varpið fyrir jól. Ástæðan er sú að það hefur tekið mun lengri tíma að ráð­stafa fé sjóðs­ins en gert hafði verið ráð fyr­ir.

Í fjár­­lögum síð­­asta árs var ákveðið að auka fram­lögin um 517 millj­­ónir króna þrátt fyrir að þá hefðu 1,2 millj­­arður króna legið óhreyfður í sjóðnum um langt skeið. Iðn­­­að­­­ar- og við­­­skipta­ráðu­­­neytið greindi frá því í sept­­­em­ber árið 2015 að við und­ir­­­bún­­­ing fjár­­­laga fyrir 2016 hefði komið í ljós að „um­tals­verðir fjár­­­mun­ir“ eða 1,2 millj­­­arðar króna, lægju enn óhreyfðir í sjóðn­­­­­um. Þessum fjár­­­munum hafði ekki enn verið ráð­stafað í þau verk­efni sem þeim hafði verið úthlutað til. Ýmsar ástæður væru fyrir því en ljóst væri að bæta þyrfti úr skipu­lagi og fram­­­kvæmd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár