Guðbrandur verður oddviti Viðreisnar í Suðurkjördæmi

Forseti bæj­ar­stjórnar Reykja­nes­bæjar mun leiða lista Við­reisnar í Suð­ur­kjör­dæmi í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum.

Guðbrandur mun leiða lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi í komandi kosningum.
Guð­brandur mun leiða lista Við­reisnar í Suð­ur­kjör­dæmi í kom­andi kosn­ingum. Mynd: Viðreisn

Guð­brandur Ein­ars­son, for­seti bæj­ar­stjórnar Reykja­nes­bæjar og fyrrum for­maður Versl­un­ar­manna­fé­lags Suð­ur­nesja mun leiða lista Við­reisnar í Suð­ur­kjör­dæmi. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Viðreisn.

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Guð­brandi að hann vilji vinna að breyt­ingum sem leiða til jafn­ræðis, auk­ins frelsis og meiri virð­ingar fyrir fjöl­breytni mann­lífs­ins. „Í rúma tvo ára­tugi hef ég tekið þátt í rétt­inda­bar­áttu launa­fólks og unnið að bættum hag sam­fé­lags­ins míns með þátt­töku í sveit­ar­stjórn­ar­málum. Það er veg­ferð sem ég vil halda áfram á þingi. Þar er mik­il­væg­ast að styðja við og styrkja það nauð­syn­lega örygg­is­net sem þarf að vera til staðar í Suð­ur­kjör­dæmi,“ segir þar enn fremur.

Guð­brandur hefur starfað sem fram­kvæmda­stjóri Versl­un­ar­manna­fé­lags Suð­ur­nesja, og var í rúm 20 ár for­maður félags­ins, sem versl­un­ar­stjóri Kaskó í Keflavík og sem fram­kvæmda­stjóri Nýs mið­ils sem rak útvarps­stöð­ina Brosið og viku­blaðið Suð­ur­nesja­f­réttir. Hann sat í stjórn Lands­sam­bands íslenskra Versl­un­ar­manna og var for­maður sam­bands­ins í sex ár. Hann hefur einnig tekið að sér ýmis trún­að­ar­störf fyrir ASÍ og sat í mið­stjórn sam­bands­ins í 14 ár.

Guð­brandur hefur um ára­bil verið bæj­ar­full­trúi í Reykja­nesbæ, um tíma fyrir Sam­fylk­ingu, síðar fyrir A-list­ann en nú fyrir Beina leið. Í til­kynn­ing­unni segir Guð­brandur aðspurður um það hvers vegna Viðreisn hafi orðið fyrir val­inu: „Í Viðreisn upp­lifi ég að borin sé virð­ing fyrir fólki, alls konar fólki. Í Viðreisn er lausn­a­miðað fólk sem er til­búið til gera breyt­ingar, þar sem almanna­hags­munir eru teknir fram yfir sér­hags­muni. Slíkum hópi vil ég til­heyra.“

Heild­ar­listi Við­reisnar verður kynntur síðar en upp­still­ing­ar­nefnd flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi vinnur enn að sam­setn­ingu list­ans sam­kvæmt til­kynn­ingu flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár