Ljúft að losna við umferðarpirringinn

„Ég held að allir sem hafi stundað þetta skilji þetta,“ segir einn viðmælandi Heim­ild­ar­innar sem finnur á eigin skinni hvað það gerir henni gott að hjóla til og frá vinnu, í stað þess að fara á bílnum. Rann­sóknir benda til þess að það geti verið betra fyrir andlega líðan fólks að hjóla í vinnuna og ýmsir sem hjóla á höfuð­borgar­svæðinu virðast upplifa að svo sé. Þó að veðrið sé stundum skítt er flest betra en að sitja fastur í umferð.

Hjólreiðar
Hjól­reiðar Þeim fjölgar sem fara hjólandi flestra ferða sinna, ekki síst með til­komu raf­hjóla. Vís­bend­ingar eru um að það geti bætt lík­am­lega og and­lega heilsu og við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar segj­ast finna það á eigin skinni. Mynd: Golli

Fjölmargar rann­sóknir á sviði heilbrigðis­vísinda hafa í gegnum árin staðfest tengsl reglulegrar hreyfingar við líkamlega heilsu. Rann­sakendur hafa einnig reynt að átta sig á tengslum hreyfingar við andlega heilsu og oftast komist að þeirri niður­stöðu að hreyfing, ekki síst úti í nátt­úrunni, geri sálar­tetrinu gott.

Í tengslum við andlega heilsu og vellíðan hafa rann­sakendur einnig skoðað sértækt hvort ferða­mátinn sem fólk velur sér til og frá vinnu eða skóla hafi áhrif á líðan þess. Ýmsar rann­sóknir sem hafa komið fram á undan­förnum árum virðast benda til þess að akstur til og frá vinnu, hvað þá dvöl í umferðar­teppum, dragi úr vellíðan og valdi stressi, á meðan að virkir ferða­mátar eins og hjól­reiðar eða ganga geti stuðlað að bættri líðan.

Rannsókn sem framkvæmd var í Bretlandi fyrir tæpum áratug síðan sýndi að fólk sem hjólaði eða gekk í vinnuna, og fólk sem notaði almennings­samgöngur raunar líka, upplifði meiri vellíðan …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár