Engar formlegar ásakanir borist skrifstofu borgarstjóra og borgarritara

Á síð­ustu fjórum árum hafa engar form­legar ásak­anir um kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi innan skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara borist. Ekki er hægt að stað­festa hvort óform­legar kvart­anir hafi borist til yfir­manna.

Ekki hafa borist form­legar ásak­anir um kyn­ferð­is­lega áreitni/áreiti eða ofbeldi á síð­ustu fjórum árum innan skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara. Ekki er hægt vegna manna­breyt­inga sem hafa átt sér stað á þessu tíma­bili að stað­festa hvort óform­legar kvart­anir hafi borist til yfir­manna.

Þetta kemur fram í svari Reykja­vík­ur­borgar við fyr­ir­spurn Kjarnans.

„Reykja­vík­ur­borg leggur áherslu á starfs­um­hverfi þar sem gagn­kvæm virð­ing, traust, heil­indi og fag­mann­legt við­mót eru í hávegum höfð í öllum sam­skiptum. Til að und­ir­strika þær áherslur hafa skýr stefna og verk­ferlar verið í gildi, einmitt til að koma í veg fyrir og upp­ræta hátt­semi sem telj­ast megi, eða geti leitt af sér, ein­elti, áreitni eða ofbeldi. Vorið 2019 voru sam­þykkt í borg­ar­ráði ný stefna og verk­lag Reykja­vík­ur­borgar gegn ein­elti, áreitni og ofbeldi meðal starfs­fólks Reykja­vík­ur­borgar, í kjöl­far vinnu stýri­hóps,“ segir í svar­inu.

Þrenns konar viðbrögð

Kjarninn spurði hvaða verk­ferla Reykja­vík­ur­borg væri með ef upp kæmu mál af þessu tagi. Í svar­inu segir að kvart­anir um ein­elti, áreitni eða ofbeldi geti leitt af sér þrenns konar við­brögð af hálfu Reykja­vík­ur­borgar.

Í fyrsta lagi sé um að ræða form­lega með­höndlun. „Formleg með­ferð máls hefst eftir að skrif­leg kvörtun berst um meint ein­elti, kyn­ferð­is­lega áreitni, kyn­bundna áreitni eða ofbeldi. Í form­legri með­ferð máls fer fram könnun á máls­at­vikum og nið­ur­staða er fengin um það hvort ein­elti, áreitni eða ofbeldi hafi átt sér stað. Í fram­hald­inu er gerð áætlun um næstu skref. Þessi könnun er fram­kvæmd af sér­stökum ein­eltis- og áreitni­teymum.“

[links]Í öðru lagi geta mál farið í óform­legan feril. „Óformleg með­höndlun máls er leið til að kanna mál óform­lega, til dæmis áður en farið er í form­legan feril. Það er ákvörðun þess sem kvartar hvað hann vill gera eða að verði gert við mál sitt. Hann getur tekið ákvörðun um hvort hann vilji bíða og sjá hvernig mál þró­ast. Hann getur sjálfur rætt milli­liða­laust við mein­tan ger­anda eða með aðstoð þriðja aðila. Allt þetta eru aðgerðir sem Reykja­vík­ur­borg styður starfs­fólkið við, meðal ann­ars með milli­göngu mannauðs­ráð­gjafa sem starfa á öllum sviðum.“

Í þriðja og síð­asta lagi eigi sér stað frum­kvæð­is­at­hugun. „Þegar Reykja­vík­ur­borg ber­ast óform­legar eða nafn­lausar ábend­ingar er í skoðað hvort grund­völlur sé fyrir að fara í svo­kall­aða frum­kvæð­is­at­hugun, en í því felst könnun á vinnu­um­hverf­inu, hvort eitt­hvað þurfi að skoða í sam­skiptum, stjórnun og vinnu­staða­menn­ingu. Slík könnun er einnig kölluð sál­fé­lags­legt áhættu­mat og bygg­ist á vinnu­vernd­ar­lög­gjöf. Frum­kvæð­is­at­hugun er í skylda vinnu­veit­anda þegar grunur er uppi um að sál­fé­lags­legir þættir á vinnu­staðnum séu að skapa hættu á ein­elti, áreitni eða ofbeldi. Frum­kvæð­is­at­hugun er ekki ein­stak­lings­mál heldur fyr­ir­byggj­andi aðgerð og bein­ist að úrbótum til fram­tíðar,“ segir í svari Reykja­vík­ur­borgar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár