Í fréttum í Berlín er þetta helst ... Gamalgróin dagblaðamenning Berlínarbúa

Kannski má segja að margir Berlín­ar­búar næri sig dag­lega með dag­blöðum eins og Íslend­ingar taka lýsi á morgn­ana. Í lest­unum má sjá fólk lesa dag­blöð og standa með þau undir arm­inum þegar troðn­ing­ur­inn er sem mestur.

Á lest­ar­stöðv­unum er stemmari að fá sér kaffi í pappa­máli og velja úr nýprent­uðum blöðum sem ilma ekki síður en nýbakað bakk­elsið sem oft er einnig til sölu. Lykt af tyggjói, nýbök­uðum smjör­deigs­hornum, kaffi og dag­blöðum er ánetj­andi lykt á lest­ar­stöðvum borg­ar­innar.

Dag­blöðin til­heyra morg­un­stemn­ing­unni. Á kaffi­húsum hanga blöðin oft á fal­legum við­ar­prikum, stór og umfangs­mikil og óhrædd við að vera full af smá­letr­uðu les­efni á kostnað mynda, þau sem flokk­ast ekki undir götu­press­una. Fólk gefur sér tíma til að lesa burð­ar­greinar með morg­un­kaff­inu, já, eða í hádeg­inu, og á kvöldin má oft sjá gesti á kaffi­húsum og börum drekka í sig frétta­skýr­ingar með bjór eða létt­víni.

Greina­höf­undar dást að þýskum karl­mönnum í fal­legum skóm að lesa þunga­vigta­greinar í dag­blöðum á stærð við með­al­glugga og brjóta þau saman æfðum höndum til að auð­velda sér lest­ur­inn. Og ekki eru kon­urnar síðri! Kannski er maður ekki almenni­legur Berlín­ar­búi fyrr en maður hefur til­einkað sér að brjóta saman stórt dag­blað eftir kúnst­ar­innar reglum.

Á úti­kaffi­hús­unum rangla heim­il­is­lausir blaða­salar á milli borða og selja sér­stakt blað sem þeir gefa út og jafn­ast á í gæðum við flest blöð hér­lendis. Kannski eins konar Grapevine heim­il­is­lausra. Kúl blað!

Heimilislaus kona selur Strassenfeger, blað sem heimilislausir gefa út í Berlín.
Heim­il­is­laus kona selur Strassen­feger, blað sem heim­il­is­lausir gefa út í Berlín.

Blaða­sal­arnir í blaða­sjopp­unum eiga sér sína fastakúnna og vara þá við að kaupa ein­takið af Der Spiegel ef nýtt tölu­blað er vænt­an­legt dag­inn eftir. Meira að segja börnin eru sum fasta­gestir í blaða­sjopp­unum því úrvalið af blöðum og tíma­ritum handa börnum er með ein­dæmum. Í barna­rekk­anum má finna blöð og tíma­rit sem minna á gömlu Æskuna, barna-Spiegel, vís­inda­rit handa börnum, teikni­mynda­sögur, tíma­rit um heim­inn og allt sem nöfnum tjáir að nefna; þau venj­ast því fljótt að verða neyt­endur blaða og tíma­rita.

Hið fjöl­menna þýsku­mæl­andi svæði hefur úr mörgum dúnd­ur­góðum blöðum að velja á hverjum degi. Margir eiga sér sitt upp­á­halds­blað, blað sem þeim þykir vænna um en önnur. Þýskir blaða­menn eru óhræddir við að skrifa ýtar­legar frétta­skýr­ingar með löngum textum – sem ein­hver hefði haldið að væru dottnar úr tísku á tímum smellu­dólga og áunn­ins athygl­is­brests. Þjóð­verjar búast við gagn­rýn­inni, fag­legri og tepru­lausri blaða­mennsku.

Gríðarlegt útvar er af tímaritum í blaðabásum.
Gríð­ar­legt útvar er af tíma­ritum í blaða­básum.
Blaðastandar eins og þessu eru nánast á hverju götuhorni.
Blaðastandar eins og þessu eru nán­ast á hverju götu­horni.

Einhver tím­ann heyrði annar greina­höf­undur að þjóðar­í­þrótt Þjóð­verja væri að hugsa og þessi fjöl­miðla­menn­ing höf­uð­borg­ar­búa er að ein­hverju leyti vitn­is­burður um þessa nautn þeirra að hugsa. Hve margir þeirra njóta þess að næra sig með frétta­skýr­ingum.

Athygli vekur líka að á flestum blaða­stöndum eru þó nokkur dag­blöð á tyrk­nesku og hjá sér­stökum blaða­sölum má kaupa blöð á ensku. Flest þessi blöð eru með sína net­miðla en þrátt fyrir það er þessi menn­ing ennþá sýni­leg veg­far­endum um hverfi borg­ar­innar.

Tyrkneskt dagblað á lestarstöð.
Tyrk­neskt dag­blað á lest­ar­stöð.

Grein­ar­höf­undar tylltu sér á kaffi­húsi í Kreuzberg og kíktu á blöðin í troð­fullum blaða­rekk­anum. Athygli vakti kunn­ug­legt stef varð­andi leik­skóla­mál en erfitt er að manna leik­skóla í Berlín. Afleið­ing­arnar eru þær að fjöl­skyldur lenda í vand­ræðum og hefur borið á því að konur hafi þurft að hætta að vinna til að hugsa um börnin. Samhliða hefur félags­legum vanda­málum í skólum fjölgað; ofbeldi og ein­elti hefur farið vax­andi og öryggi kenn­ara og nem­enda hefur minnkað.

Í öðrum fréttum var það helst að lög­reglan í Berlín var nervus með sér­stakan við­búnað fyrir 1. maí en óeirðir eru nán­ast hefð þennan dag í Berlín. Við­bún­að­ur­inn var m.a. vegna spennu út af frels­is­hreyf­ingu Kúrda, öfga-vinstrisinnum, mögu­legum hryðju­verkum og fleiru. Ýmsu sem þarf ekki að huga að á þessum degi í Reykja­vík þar sem helsta vanda­málið er löng röð við pylsulúgur. Alþjóða­mál renna saman við dag­legt líf í borg fjöl­menn­ingar og flók­inna stjórn­mála.

Maður les uppáhaldsdagblaðið sitt, Berliner Zeitung. Að lesa blaðið dag hvern er hans helsta náðarstund.
Maður les upp­á­halds­dag­blaðið sitt, Berliner Zeitung. Að lesa blaðið dag hvern er hans helsta náð­ar­stund.

En alþjóða­málum eru gerð áber­andi góð skil í þeim blöðum sem eru ekki sér­stök Berlín­ar­blöð og grein­ar­höf­undar glugg­uðu í. Á for­síðu Der Spiegel má sá and­lit Donalds Trumps sem brenn­andi eld­hnött með fyr­ir­sögn­inni: Hver bjargar vestr­inu? Merkel húmir hrædd við hlið Macron sem blikkar les­and­ann búra­legur með slökkvi­tæki í fang­inu.

Þarna var af ýmsu öðru að taka. Þarna voru enda­lausar greinar um alþjóða­mál og greinar um sekt Vest­ur­landa­búa varð­andi vinnu­þrælkun og arð­rán í fátækri löndum heims­ins – nú sem fyrr eru Þjóð­verjar með­vit­aðir um sekt­ina. Jafn­framt fréttu grein­ar­höf­undar að líf­vörður Osama bin Laden væri kom­inn á sós­í­al­inn í Berlín og vakti sér­staka athygli grein um bola­bít á sér­stakri vöku­deild þar sem hann fylgd­ist með hvolp­unum sínum í hita­kassa.

Kona les tímarit á kaffihúsi í Berlín.
Kona les tíma­rit á kaffi­húsi í Berlín.
Blaðamenning í Berlín - Samsett mynd.
Blaða­menn­ing í Berlín - Samsett mynd.

Lesa má helstu blöðin á net­inu:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár