Losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi dróst saman um tvö prósent milli ára

Losun frá vega­sam­göngum dróst saman í fyrsta sinn síðan árið 2014 sam­kvæmt árlegri skýrslu Umhverf­is­stofn­unar um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Þá jókst bind­ing í skóg­lendi um 10,7 pró­sent milli ára.

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda dróst saman um tvö pró­sent á milli áranna 2018 og 2019 og er það mesti sam­dráttur los­unar sem mælst hefur frá árinu 2012. Á árinu 2019 nam heild­ar­losun á Íslandi 4.722 kílótonnum af CO2-ígildum. Inni í þess­ari tölu er losun Íslands innan evr­ópska við­skipta­kerf­is­ins með los­un­ar­heim­ildir (ETS) en hvorki losun vegna land­notk­unar og skóg­ræktar (LULUCF), né vegna alþjóða­flugs- og sigl­inga.

Losunin hefur dreg­ist saman um átta pró­sent frá árinu 2005 en auk­ist um 28 pró­sent frá árinu 1990. Aukning los­unar á síð­ustu þrjá­tíu árum er að mestu til­komin vegna auk­innar málm­bræðslu og frek­ari stór­iðju á fyrsta ára­tug þess­arar aldar. Þetta kemur fram á vef Umhverf­is­stofn­unar en árlegri skýrslu stofn­un­ar­innar um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda var skilað fyrr í þessum mán­uði.

Losun sem telst á beinni ábyrgð Íslands dróst einnig saman um 2 pró­sent milli áranna 2018 og 2019 og nam hún 2.883 kílótonnum CO2-ígilda árið 2019. Losun sem telst á beinni ábyrgð Íslands er heild­ar­losun án LULUCF), án los­unar innan ETS kerf­is­ins og án los­unar vegna alþjóða­flugs- og sigl­inga.

Losun frá vegasamgöngum dróst saman í fyrsta sinn síðan 2014

Á árinu 2019 var þriðj­ungur þeirrar los­unar sem fellur undir beina ábyrgð Íslands komin frá vega­sam­göngum. Olíu­notkun á fiski­skipum kom þar næst á eftir með 18 pró­sent hlut­deild í los­un­inni og tíu pró­sent los­unar kemur frá iðra­gerjun. Losun frá kæli­m­iðlum, svokölluð F-gös, var 7 pró­sent los­unar og losun frá urð­un­ar­stöðum var sex pró­sent los­unar.

Samdrátt í losun mátti helst rekja til vega­sam­gangna, fiski­skipa, land­bún­aðar og urð­unar úrgangs segir í frétt umhverf­is­stofn­unar. Alls minnk­aði losun frá vega­sam­göngum um 19 kílótonn CO2 ígilda milli ára og er það í fyrsta sinn síðan árið 2014 sem sam­dráttur verður í þeim flokki.

Losun frá kæli­m­iðlum jókst aftur á móti um 44 kílótonn, eða um 27 pró­sent. Þá jókst losun frá jarð­varma­virkj­unum um sjö kílótonn, um fimm pró­sent.

Skógrækt sækir í sig veðrið

Líkt og áður segir er losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna land­notk­unar ekki talin með innan beinna skuld­bind­inga ríkja. Losun vegna land­notk­unar hefur auk­ist um 3,1 pró­sent frá árinu 1990 en á sama tíma hefur bind­ing koldí­oxíðs farið vax­andi. Binding í skóg­lendi jókst um 10,7 pró­sent milli áranna 2018 og 2019 og hefur nú náð sögu­legu hámarki á tíma­bil­inu 1990 til 2019 en árleg bind­ing var 446 kílótonn.

Árleg losun frá LULUCF er umtals­verð, rétt um 9000 kílótonn. Þegar land­notkun og skóg­rækt eru með­al­tal var heild­ar­losun Íslands (án alþjóða­flugs og -sigl­inga) 13.794 kílótonn CO2-ígilda. Mestu munar þar um losun frá gras­lendi og svo frá vot­lendi. Losun frá flokk­unum LULUCF hefur dreg­ist lít­il­lega saman frá 1990.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár