YouTube bannar dreifingu misvísandi upplýsinga um bólusetningar

Frá því á síð­asta ári hafa yfir 130 þús­und mynd­bönd verið fjar­lægð af YouTube vegna þess að efni þeirra brýtur í bága við reglur fyr­ir­tæk­is­ins um COVID-19 umfjöllun. Nú hafa þessar reglur verið útvíkk­aðar.

Dreifing mis­vísandi upp­lýs­inga um bólu­setn­ingar gegn COVID-19 hefur nú verið bönnuð hjá not­endum YouTube. Í færslu frá fyr­ir­tæk­inu þar sem ákvörð­unin er tíunduð segir meðal ann­ars að bólu­setn­ingar hafi í gegnum tíð­ina verið þrætu­epli fólks, þrátt fyrir að heil­brigð­is­yf­ir­völd tali einum rómi um ágæti þeirra.

Fram til þessa hefur verið bannað að dreifa heil­brigð­is­upp­lýs­ingum og -ráðum sem bein­línis geta haft skað­leg áhrif á fólk. Sú breyt­ing sem nú er gerð á við­mið­un­ar­reglum YouTube snýr að dreif­ingu mis­vísandi upp­lýs­inga um bólu­efni sem hafa fengið mark­aðs­leyfi og eru talin örugg af heil­brigð­is­yf­ir­völdum og Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­inni (WHO). Í áður­nefndri færslu frá YouTube segir að frá því á síð­asta ári hafa yfir 130 þús­und mynd­bönd verið fjar­lægð af vef mið­ils­ins sem brjóta í bága við reglur um COVID-19 í skil­málum YouTube.

Fólk geti enn deilt reynslusögum

Spjótin bein­ast fyrst og fremst að mynd­böndum þar sem því er rang­lega haldið fram sam­þykkt bólu­efni séu hættu­leg og valdi lang­vinnum heilsu­far­s­vanda­málum, að full­yrð­ingum um að bólu­efni dragi ekki úr hættu á smiti og að mis­vísandi upp­lýs­ingum um þau efni sem notuð eru í fram­leiðslu bólu­efna.

Nokkrar und­an­þágur eru gerðar á tali um meint gagns­leysi eða skað­semi bólu­efna. Enn verður hægt að dreifa efni sem fjallar um stefnu stjórn­valda í bólu­efna­málum, um bólu­efna­próf­anir og um bólu­efni í sögu­legu sam­hengi – hvort sem þau virk­uðu eða virk­uðu ekki. Þá verða reynslu­sögur fólks enn í birt­ing­ar­hæfar á YouTube svo lengi sem not­endur ger­ist ekki upp­vísir af því að sá ítrekað efa­semd­ar­fræjum með sögum sínum og að mynd­böndin fari ekki á svig við aðrar greinar í not­enda­skil­málum síð­unnar.

Robert F Kennedy yngri stórtækur í hræðsláróðri gegn bólusetningum

Í umfjöllun New York Times um málið segir að í kjöl­far þess­arar skil­mála­breyt­ingar hafi verið lokað fyrir aðgang margra áber­andi efa­semd­ar­manna að YouTube, manna sem dreift hafa mis­vísandi upp­lýs­ingum í gegnum síð­una.

Þeirra á meðal er Robert F. Kennedy yngri, sem er sonur Robert F. Kennedy, Bobby Kennedy, sem skot­inn var til bana árið 1968 en hann var þá í fram­boði til emb­ættis for­seta Banda­ríkj­anna. Robert Kennedy yngri hefur um ára­bil barist gegn bólu­setn­ingum en hann er á meðal þeirra sem bera mesta ábyrgð á dreif­ingu mis­vísandi upp­lýs­inga um bólu­setn­ingar og gildi þeirra á sam­fé­lags­miðlum.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Our World in Data eru 55 pró­sent Banda­ríkj­anna nú full­bólu­settir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár