Óverðtryggðu lánin sækja á

Hlut­falls­lega eru óverð­tryggð stærri hluti af hús­næð­is­lána­kök­unni hjá bæði líf­eyr­is­sjóðum og inn­láns­stofn­unum nú en þau hafa verið áður í sög­unni. Hjá inn­láns­stofn­unum, bönkum og spari­sjóðum, er hlut­fall verð­tryggðra lána komið niður í 63 pró­sent.

Verð­tryggð lán líf­eyr­is­sjóða og inn­láns­stofn­ana, banka og spari­sjóða, eru mun lægra hlut­fall lána líf­eyr­is­sjóða og fjár­mála­stofn­ana til hús­næð­is­kaupa en þau hafa nokkru sinni áður verið. Samkvæmt hag­tölum Seðla­banka Íslands voru 78,7 pró­sent útlána líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga sinna verð­tryggð lán í októ­ber síð­ast­liðnum en 62,9 pró­sent útlána inn­láns­stofn­ana, sem eru að uppi­stöðu stóru bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki. 

Til sam­an­burðar hófu líf­eyr­is­sjóð­irnir ekki að bjóða óver­tryggð lán fyrr en í októ­ber 2015 og því hefur breyt­ingin á útlánum þeirra á síð­ustu fjórum árum. Hjá bönk­unum voru 72 pró­sent allra útlána sem voru með veði í íbúð verð­tryggð í októ­ber 2015 en í dag er það hlut­fall komið niður í 62,9 pró­sent.

[adspot]Ástæðan fyrir þeirri snörpu lækkun er meðal ann­ars að finna í því að Íbúða­lána­sjóður ákvað að kaupa 50 millj­arða króna safn af verð­tryggðum lánum af Arion banka og átti sú sala sér stað í sept­em­ber 2019. Ef lána­safnið hefði ekki verið selt til Íbúða­lána­sjóðs, sem hefur dregið sig mjög saman á útlána­mark­aði á und­an­förnum árum og lánar ein­ungis verð­tryggt, þá hefði hlut­fall verð­tryggðra lána hjá bönk­unum verið 65 pró­sent.

Aldrei lánað meira en í október

Kjarninn greindi frá því 6. des­em­ber síð­ast­lið­inn að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hefði aldrei lánað sjóðs­fé­lögum sínum meira í hús­næð­is­lán en þeir gerðu í októ­ber síð­ast­liðnum. Þá námu sjóðs­fé­lags­lán sjóð­anna 13,9 millj­örðum króna og juk­ust um 65 pró­sent á milli mán­aða. Fyrra útlána­met líf­eyr­is­sjóð­anna var sett í júní 2017 þegar þeir lán­uðu rúm­lega ell­efu millj­arða króna til hús­næð­is­kaupa. Því voru útlánin í októ­ber 26 pró­sent hærri en í fyrri met­mán­uði.

Auk þess hafa aldrei verið tekin fleiri lán hjá líf­eyr­is­sjóðum en í tíunda mán­uði árs­ins 2019, þegar þau voru 1.144 tals­ins. Fyrra metið var sett í ágúst 2017 þegar útlánin voru 789 tals­ins. Útlánin í októ­ber voru því 45 pró­sent fleiri en í fyrri met­mán­uði. Allt ofan­greint bendir til þess að tölu­vert líf sé í hús­næð­is­mark­aðnum um þessar mundir. 

Í þriðja sinn í sögunni

Í októ­ber gerð­ist það í þriðja sinn í sögu íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins að sjóðs­fé­lagar tóku meira að láni óverð­tryggt en verð­tryggt. Í hin tvö skiptin, í des­em­ber 2018 og í jan­úar 2019, hafði verð­bólga hækkað nokkuð skarpt og var á bil­inu 3,4 til 3,7 pró­sent, eftir að hafa verið að mestu undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans frá því í febr­úar 2014. Í októ­ber var hún hins vegar 2,7 pró­sent og spár gerðu ráð fyrir að verð­bólgan myndi fara við og jafn­vel undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­mið í nán­ustu fram­tíð.

[adspot]Mun fleiri lán sem tekin voru í októ­ber voru þó verð­tryggð en óverð­tryggð. Það þýðir að með­al­tal verð­tryggðra lána var umtals­vert lægra en óverð­tryggðra sem bendir til þess að þeir sem eru að kaupa sér dýr­ari eignir, og hafi þar af leið­andi meiri kaup­mátt, séu frekar að taka óverð­tryggð lán sem hafa í för með sér hærri mán­að­ar­lega greiðslu­byrði.

Ástæðan fyrir þess­ari þróun er meðal ann­ars sú að stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa mark­visst verið að reyna að draga úr útlánum til sjóðs­fé­laga sinna frá því á síð­asta ári. Ástæðan er sú að ásókn í lánin, sem eru á umtals­vert betri kjörum en bjóð­ast hjá bönkum, hefur verið gríð­ar­leg og hlut­fall sjóðs­fé­lags­lána af heild­ar­eignum margra líf­eyr­is­sjóða er nú komið upp að þeim mörkum sem þeir telja skyn­sam­legt að teknu til­liti til áhættu­dreif­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár