Ævintýralegt mark Gylfa Sigurðssonar í fyrsta leiknum í byrjunarliði

Gylfi Sigurðsson skoraði ævintýralegt mark fyrir Everton gegn Hadjuk Split í kvöld, eftir 12 sekúndur í síðari hálfleik. Hann jafnaði leikinn 1-1 og er Everton yfir 3-1 samanlagt, þegar lítið er eftir af leiknum.

Gylfi Þór Sigurðsson, lands­liðsmaður Íslands í fótbolta, skoraði glæsilegt mark fyrir lið sitt Everton í kvöld, og jafnaði leikinn, 1-1. Gylfi skaut boltanum viðstöðu­laust á lofti af 45 metra færi í boga yfir mark­manninn. Markið kom eftir aðeins 12 sekúndur í síðari hálfleik, en staðan í hálfleik var 1-0 fyrir heimamenn í Hajduk Split.

Fyrri leikurinn fór 2-0 fyrir Everton, og staðan því samanlagt 3-1 fyrir Everton, í undan­keppni Evrópu­deildarinnar, þegar lítið eitt er eftir af leiknum.

Gylfi varð á dögunum dýrasti leikmaður í sögu Everton þegar hann var keyptu frá Swansea City á 45 milljónir punda, eða sem nemur ríflega sex milljarða króna.

Þetta var fyrsti leikur Gylfa í byrjunar­liði Everton, og óhætt að segja hann hafi minnt rækilega á gæði sín með þessu stór­glæsilega marki.

Ítarleg úttekt á Everton, og ýmsum tengdum atriðum, má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár