Tvöfalt fleiri bandarískir hermenn í Noregi

Banda­rískum her­mönnum í Noregi mun stór­fjölga í ár, en fjölg­unin eykur á spennu milli Noregs og Rúss­lands í varn­ar­málum.

Frá hernaðaræfingu Bandaríkjamanna í Þýskalandi fyrr í sumar.
Frá hern­að­ar­æf­ingu Banda­ríkja­manna í Þýska­landi fyrr í sumar. Mynd: EPA

Norska varn­ar­mála­ráðu­neytið hefur til­kynnt rúma tvö­földun banda­rískra her­manna í Noregi sam­kvæmt til­kynn­ingu sinni í dag. Áætlanir um fjölg­un­ina voru kynntar fyrr í sumar, en rúss­nesk yfir­völd sögðu hana óvin­veitta og myndu ekki vera án afleið­inga.

Frétta­stofa norska rík­is­út­varps­ins greindi frá fjölg­un­inni fyrr í dag og vís­aði til frétta­til­kynn­ingar varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins í Noregi. Samkvæmt til­kynn­ing­unni verður banda­rískum her­mönnum í Noregi og Norður-Evrópu aukið úr 330 í 700. Her­menn­irnir eru stað­settir í Værnes í Trøndelag í Mið-Noregi, en þeim er skipt út tvisvar á ári. Ráðu­neytið segir ákvörð­un­ina um að fjölga banda­rískum her­mönnum muni styrkja sam­hæf­ingu milli norska hers­ins og ann­arra Banda­manna í her­æf­ingum.

Áætlanir um fjölg­un­ina voru fyrst birtar í júní, en rúss­nesk yfir­völd brugð­ust þá ókvæða við henni. Samkvæmt frétt Business Insider um málið sagði rúss­neska sendi­ráðið í Noregi aðgerð­ina vera „aug­ljós­lega óvin­veitta og munu ekki vera án afleið­inga.“ Stjórn­völd í Noregi hafa hins vegar sagt að þau telji Rússland ekki ógna öryggi lands­ins með beinum hætti, en lýstu þó yfir áhyggjum yfir auk­inni sókn í hern­að­ar­málum lands­ins á síð­ustu árum, sér­stak­lega eftir her­nám á Krím­skag­anum í Úkraínu árið 2014.

Kjarninn hefur áður fjallað um aukna spennu í varn­ar­málum milli Noregs og Rúss­lands, en rúss­neski her­inn lok­aði fyrir umferð í Barents­haf­inu fyrr í sumar með óvæntri hern­að­ar­æf­ingu án þess að til­kynna norskum yfir­völdum. Að æfing­unni komu 36 her­skip og 20 flug­vélar, en varn­ar­mála­ráðu­neyti Rúss­lands sagði mark­mið æfing­ar­innar að und­ir­búa sig gegn viða­mik­illi óvina­árás.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár