Saknar samráðs við íbúa og spyr hvað verði um bílastæðin á Hlemmtorgi

Borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins segir lip­urð og sveigj­an­leika skorta hjá meiri­hlut­anum í skipu­lags­málum. Að hennar sögn hafa íbúar í grennd við Hlemm áhyggjur af því að kom­ast ekki að húsum sínum á bíl, til dæmis til að afferma vörur.

Kolbrún Baldursdóttir segir íbúa í grennd við Hlemm hafa áhyggjur af því að komast ekki að húsum sínum á bíl eftir að Hlemmtorg verður að veruleika.
Kolbrún Bald­urs­dóttir segir íbúa í grennd við Hlemm hafa áhyggjur af því að kom­ast ekki að húsum sínum á bíl eftir að Hlemm­torg verður að veru­leika. Mynd: Samsett/Kjarninn

Íbúar sem búa í grennd við Hlemm­torg hafa áhyggjur af því að hafa ekki mögu­leika á því að leggja bíl við hús sín, ti dæmis til þess að afferma vörur. Þetta segir Kolbrún Bald­urs­dóttir í sam­tali við Kjarnann um fram­tíð­ar­skipu­lag svæð­is­ins umhverfis Hlemm. „Þarna býr fólk sem ég hef verið að heyra dálítið í sem hefur áhyggjur af því þegar verið er að koma með vörur, þegar það er að koma úr verslun og er kannski með lítil börn. Fólk hefur verið að spyrja mig: „Er búið að ræða við íbúa til dæmis á Rauð­ar­ár­stíg?“,“ segir Kolbrún.

Hún saknar þess að sam­ráð hafi verið haft við íbúa. „Það þarf að tala við íbú­ana. Hugnast þeim þessi breyt­ing? Sjá þeir fyrir sér ein­hver vanda­mál við þetta? Ég veit alveg hvernig það er að koma heim með fjóra poka úr Bónus. Þú hefur ekki leyfi til þess að fara og stoppa fyrir framan dyrnar þínar og þú ert kannski með lítil börn á hand­leggnum. Það eru þessir hlutir sem er kannski ekki alveg búið að hugsa.“

„Ég vil samt segja að mér finnst myndir af þessu mjög flottar. Ég sé alveg fyrir mér að þetta geti orðið ótrú­lega kósý og skemmti­legt torg,“ bætir Kolbrún við.

Framkvæmdir hafnar á Rauðarárstíg

Nýlega hófust fram­kvæmdir við fyrsta áfanga að nýju Hlemm­torgi og nú þegar hefur Rauð­ar­ár­stíg milli Lauga­vegar og Brí­et­ar­túns verið lokað. Á vef Reykja­vík­ur­borgar má sjá hvernig útlit þessa veg­ar­spotta mun líta út að fram­kvæmdum loknum. Gert er ráð fyrir að akst­urs­rýmið verði hellu­lagt og að Rauð­ar­ár­stígur verði lok­aður til suð­urs við gömlu Gas­stöð­ina en þar verður snún­ings­hringur fyrir fólks­bíla. Næst Brí­et­ar­túni verða fjögur stæði fyrir raf­bíla, fyrir miðju austan megin verða skamm­tíma bíla­stæði en vestan megin verða sleppi­stæði fyrir leigu­bíla. Þá verða tvö stæði fyrir hreyfi­haml­aða við snún­ings­hring­inn, nær Hlemmi.

Líkt og áður segir er búið að loka fyrir bíla­um­ferð en á vef borg­ar­innar segir að aðgengi að göngu­leiðum verði gott að aðgengi að gang­stétt haldi sér „mest allan tím­ann“.

Fólk kvartað yfir sérmkerktum stæðum í hliðargötum Laugavegar

Þrátt fyrir að finn­ast fyr­ir­hugað torg flott veltir Kolbrún engu að síður fyrir sér til­gangi þess. „Fyrir hverja er þetta? Kannski aðal­lega túrista?“ spyr hún. „Nú er fólk að segja mér sem býr í efri hverfum að það kemur ekki lengur þarna niður á þetta svæði, nema kannski á hátíð­is­dögum.“

Þegar Kolbrún er spurð hvers vegna svo sé nefnir hún að aðgengi geti átt þar hlut að máli, fólk sé mistil­búið til þess að labba. „Ég hef mikið verið að fylgja þessum málum eftir hvað varðar aðgengi og sér­stak­lega hvað varðar þá sem eru fatl­aðir eða með skerta hreyfi­færni. Þau finna rosa­lega mikið fyrir því núna að geta ekki lagt sínum stæð­is­bílum, sínum P-merktu bílum, nálægt versl­unum og þjón­ustu eins og var hægt að gera. Ef við horfum til dæmis á Lauga­veg­inn, þá er ekki hægt að leggja bíl þar. Sér­merktu stæðin eru í hlið­ar­götum og fólk hefur verið að kvarta yfir því. Hvernig á það að kom­ast að, kannski inn í verslun eða á veit­inga­stað inn á sjálfum Lauga­veg­inum“ segir Kolbrún. „Þetta er eitt af því sem fólk hefur verið að láta mig vita af að það sé ósátt við.“

Einnig þurfi fút­a­fúnir að leggja leið sína upp fyrir eða niður fyrir göngu­göt­una Á Lauga­vegi til þess að kom­ast í leigu­bíl.

Spyr hvað verði um bílastæðin

Breyt­ing­arnar við Hlemm ein­skorð­ast ekki bara við Rauð­ar­ár­stíg milli Lauga­vegar og Brí­et­ar­túns. Umferð einka­bíla verður til að mynda engin um Laugaveg milli Snorra­brautar og Katrín­ar­túns. Einungis stræt­is­vagnar munu aka niður Laugaveg frá Katrín­ar­túni og um Hverf­is­götu niður á Snorra­braut. Þá verður Rauð­ar­ár­stíg einnig lokað sunnan við Hlemm að Stór­holti.

Við þessar breyt­ingar verður bílaplan sem stendur við hús­næði gamla Bún­að­ar­bank­ans, þar sem nú er Center Hotel, hluti af nýju Hlemm­torgi. Kolbrún veltir því fyrir sér hvað bíl­eig­endur muni gera í kjöl­farið „Þau fara öll, þessi bíla­stæði. Þú þarft að fara með bíl­inn annað ef þú býrð þarna. Ég veit ekki hvar fólk á Rauð­ar­ár­stíg á að geyma bíl­ana, það þarf að fara inn í önnur hverfi. Fólk er farið að kvarta yfir því að það sé farið að þurfa að leggja út fyrir hverfi sitt.“

Að sögn Kol­brúnar ríkir ákveð­inn skortur á sam­ráði við íbúa í skipu­lags­málum og hún efast um að íbúar svæð­is­ins séu sáttir við þetta. „Það vantar sveigj­an­leik­ann. Það vantar lip­urð í kerfið hjá meiri­hlut­anum í skipu­lag­inu. Það vantar þessa lip­urð og skiln­ing á mis­mun­andi þörfum fólks,“ segir Kolbrún Bald­urs­dóttir borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár