Tekur ekki afstöðu í deilum innan Eflingar – Það eru félagsmenn sem skipta mestu máli

Efling mun halda áfram rót­tækri stefnu sinni í mál­efnum verka- og lág­launa­fólks, að sögn nýs for­manns stétt­ar­fé­lags­ins sem tók við eftir miklar svipt­ingar und­an­farnar vikur. Kjarninn ræddi við Agnieszku Ewu Ziólkowska.

Ég styð fyrst og fremst stétt­ar­fé­lagið. Allar deilur á milli starfs­fólks og fyrrum for­ystu félags­ins voru um aðferðir við fram­kvæmdir innan skrif­stof­unnar. Það voru aldrei neinar kvart­anir sem vörð­uðu mig eða mína hegðun. Ég styð rót­tæka nálgun gagn­vart bar­átt­unni fyrir félags­menn okkar og í kjara­bar­átt­unni. Ég studdi Sólveigu Önnu og Viðar í bar­áttu þeirra en starfs­fólkið hér hjá Eflingu veit að ég stend líka með þeim.“

Þetta segir nýr for­maður Eflingar, Agnieszka Ewa Ziólkowska, í sam­tali við Kjarnann en það hefur heldur betur gustað í kringum stétt­ar­fé­lagið eftir skyndi­lega upp­sögn fyrr­ver­andi for­manns, Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, og fram­kvæmda­stjóra félags­ins, Viðars Þor­steins­sonar, í lok októ­ber.

Agnieszka seg­ist ekki ætla að taka afstöðu með eða á móti fyrrum for­ystu eða starfs­fólki Eflingar – hún segir að hún virði skoð­anir allra sem hlut eiga að máli. Hún telur enn fremur að öld­urnar hafi tekið að lægja og finnur hún ótví­rætt fyrir stuðn­ingi innan stétt­ar­fé­lags­ins til að halda áfram bar­átt­unni. Hennar áhersla varði fyrst og fremst félags­menn Eflingar og þjón­ustu við þá.

Agnieszka er 37 ára gömul og fædd­ist í Póllandi. Hún hefur búið hér á landi í 15 ár og seg­ist hún alla tíð hafa unnið lág­launa­störf – og verið í Eflingu lengst af.

Faðir hennar bjó á Íslandi og bauð henni að koma hingað í frí fyrir hálfum öðrum ára­tug. „Ég bara elskaði Ísland þegar ég sá landið og ég ákvað að ég vildi eiga hér heima. Áður en ég flutti hafði ég í huga að kaupa mér íbúð í Póllandi og safna fyrir henni með ein­hverjum hætti. En þegar ég kom til Íslands gerði ég mér grein fyrir því að ég vildi ekki íbúð í Póllandi heldur var draumur minn að festa rætur hér í stað­inn.“

Hún segir að lengi hafi hún þó verið á leigu­mark­aði en verðið hafi hækkað gríð­ar­lega frá því hún flutti hingað til lands. „Mér fannst ég vera neydd til að kaupa mér mitt eigið hús­næði og ég gerði mér grein fyrir því að það væri ódýr­ara fyrir mig að borga af láni en af leigu­í­búð. Það var mun hag­stæð­ara að finna íbúð til að kaupa fyrir utan Reykja­vík en að leigja í bænum.“

Yfirmenn hennar hjá Kynnisferðum hótuðu henni

Agnieszka býr því nú fyrir utan Reykja­vík, ásamt tveimur sonum, eig­in­manni og nokkrum kan­ínum. Hún var trún­að­ar­maður í fjögur ár á árunum 2015 til 2019 og seg­ist hún hafa barist fyrir rétt­indum sam­starfs­fé­laga sinna á þessum tíma. Hún vann sem strætó­bíl­stjóri hjá Almenn­ings­vögnum Kynn­is­ferða.

Raun­veru­legir mótherjar okkar eru atvinnu­rek­endur sem svindla á fólki og stela af því. Þeir eru hinir raun­veru­legu óvinir okkar.
Agnieszka segir að samstaða verði að ríkja innan Eflingar til þess að þau geti haldið áfram að berjast.
Agnieszka segir að sam­staða verði að ríkja innan Eflingar til þess að þau geti haldið áfram að berj­ast.

„Á einum tíma­punkti var mér hótað af yfir­mönnum mínum hjá Kynn­is­ferðum. Þeir báðu mig um að draga til baka kröfur okkar gagn­vart fyr­ir­tæk­inu. Ég sam­þykkti það ekki og ég var ekki hrædd við þá.“

Hún seg­ist hafa kunnað vel við sig sem trún­að­ar­maður vegna þess að hún vildi hjálpa fólki. „Mér leið vel í því hlut­verki og þegar ég var trún­að­ar­maður gerði ég mér grein fyrir því að í fram­tíð­inni vildi ég hjálpa öðrum í fullu starfi – ekki ein­ungis í pás­unum á milli stoppi­stöðva,“ segir hún og hlær.

Agnieszka var mjög virkur trún­að­ar­maður og seg­ist hún meðal ann­ars hafa skipu­lagt verk­föll fyrir síð­ustu kjara­við­ræður. Í gegnum það ferli kynnt­ist hún verka­lýðs­hreyf­ing­unni enn frekar og einnig starfs­fólki Eflingar. „Þetta leiddi mig að þeim tíma­punkti að ég var kjörin vara­for­maður stétt­ar­fé­lags­ins árið 2019.“ Hún hafði þá nýlega eign­ast barn og því hóf hún störf hjá Eflingu stuttu seinna eftir fæð­ing­ar­or­lof.

Styður ákvörðun Sólveigar Önnu að hætta

Það hefur eflaust komið mörgum á óvart þegar Sólveig Anna skrif­aði stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sína sunnu­dags­kvöldið 31. októ­ber þar sem hún greindi frá því að hún hygð­ist segja starfi sínu lausu sem for­maður Eflingar. Ástæðan var sú að hún sagði starfs­fólk félags­ins hafa hrakið sig úr starfi. Atburða­rásin var hröð næstu daga og sagði fram­kvæmda­stjór­inn einnig af sér dag­inn eftir. En hvernig snýr þessi atburða­rás við þér?

„Stjórnin hefur stutt ákvarð­anir Sól­veigar Önnu en hún er sú eina sem getur tekið ákvörðun um það hvort hún vilji halda þess­ari bar­áttu áfram hér innan Eflingar. Það var aug­ljóst að á þessum tíma­punkti sem hún segir af sér að allt hafi gengið aðeins of langt. Við styðjum hennar ákvörðun, eins og ég sagði áðan. Hún hefur rétt á því að hætta,“ segir Agnieszka og bætir því að við þessar aðstæður séu ein­stak­lega erf­iðar fyrir alla meðal ann­ars vegna þess að eng­inn hafi verið und­ir­bú­inn fyrir þær.

„En meg­in­á­hersla okkar er að tryggja að félags­menn Eflingar fái áfram þá þjón­ustu sem þeir eiga skilið og að bar­áttan fyrir lág­launa­fólk haldi áfram. Efling er stétt­ar­fé­lag og við verðum að vera sterk og sam­einuð. Það verður að ríkja sam­staða hér innan húss til þess að við getum haldið áfram að berj­ast. Raun­veru­legir mótherjar okkar eru atvinnu­rek­endur sem svindla á fólki og stela af því. Þeir eru hinir raun­veru­legu óvinir okkar.“

Aðspurð hvernig henni líði per­sónu­lega með það sem gerð­ist og hvort henni finn­ist starfs­fólkið hafa verið ósann­gjart við fyrrum for­ystu segir Agnieszka að þetta snú­ist um ein­stak­ling­ana sem um ræðir og atferli þeirra. „Ég tel að við munum stíga nauð­syn­legt skref til að leysa málin far­sæl­lega. Við verðum að tryggja það að stétt­ar­fé­lagið geti haldið áfram að starfa fyrir félags­menn sína.“

Hún telur að allir eigi rétt á því að hafa sína eigin skoðun. „Ég ein­beiti mér núna að því að tryggja það að félags­menn okkar í Eflingu séu mik­il­væg­astir í okkar störfum – eftir allt sem á undan er gengið. Eina afstaðan sem ég get tekið er með Eflingu – stétt­ar­fé­lagi. Það er mik­il­væg­ast fyrir mig núna, þess vegna tek ég ekki afstöðu í þessu máli.“

Hvernig er mórall­inn á skrif­stofu Eflingar eftir þessi átök? Hvernig líður fólki í fyrsta lagi gagn­vart þér og í öðru lagi gagn­vart starf­inu?

„Auðvitað líður fólki ekki vel vegna þess að flestir starfa hér af heil­indum. Starfs­fólkið leggur sig mikið fram til að þjón­usta félags­menn okkar.“

Að sögn Agnieszku hafa þau leitað sér utan­að­kom­andi aðstoðar til þess að sjá hvað farið hefur aflaga en gerð verður svokölluð vinnu­staða­út­tekt. Hún segir að það muni taka tíma að fara yfir þessi mál innan Eflingar og að þau vilji ekki flýta sér með það ferli. „Við viljum að allt verði gert með réttum hætti.“

Erlent fólk hluti af íslensku samfélagi

Nú lendir þú mjög óvænt í þess­ari stöðu – að vera allt í einu for­maður eins stærsta stétt­ar­fé­lags á Íslandi. Hvernig líður þér með það?

„Þetta var auð­vitað mjög erfitt fyrst – að taka að sér öll þessi verk­efni vegna þess að aðstæður eru mjög óvenju­legar. Þó er ég mjög ánægð með það að fá að þjón­usta félags­menn Eflingar en meira en helm­ingur 27.000 félags­manna Eflingar er af erlendu bergi brot­inn.”

Agnieszka er ánægð með að for­maður Eflingar sé nú aðfluttur vegna þess að þá hafi fólk í þeim hóp full­trúa úr sínum röðum.

Hún gefur lítið fyrir umræðu á sam­fé­lags­miðlum um íslensku­kunn­áttu hennar. „Í fyrsta lagi vinna útlend­ingar á Íslandi flestir í lág­launa­störfum – og vinna innan um aðra útlend­inga sem einnig tala enga íslensku. Í öðru lagi skil ég íslensku og ég trúi því að það sé mjög mik­il­vægt að láta íslensk sam­fé­lag gera sér grein fyrir því að útlend­ingar eru hluti af þessu sam­fé­lagi. Við verðum að eiga rétt á því að taka þátt í sam­fé­lag­inu – sama hversu lengi við dveljum hér. Þrátt fyrir að við tölum ekki full­komna íslensku þá eigum við skilið að vera þátt­tak­endur hér.“

Hún telur að þetta sé ekki og verði ekki vanda­mál í hennar störfum.

Agnieszka seg­ist ekki hafa heyrt í Sólveigu Önnu eða Viðari síðan þau sögðu af sér. „Ég hef verið mjög upp­tekin af verk­efnum mínum hér hjá Eflingu og í hrein­skilni sagt hef ég ekki haft tíma til þess að heyra í þeim. Ég hef ekki einu sinni heyrt í vinum mínum á þessu tíma­bili.“

Hún seg­ist bera mikla virð­ingu fyrir störfum Sól­veigar Önnu og Viðars fyrir lág­launa­fólk og erlent launa­fólk. „Bara vegna þess hvað þau hafa gert í sinni bar­áttu þá geta útlend­ingar haft sinn málsvara í Eflingu.“

Er ein­hverra stefnu­breyt­inga að vænta nú þegar þú hefur tekið við for­manns­stólnum í Eflingu – sér­stak­lega hvað sam­skipti varðar á skrif­stof­unni?

„Við ætlum að fá utan­að­kom­andi aðstoð til að kanna starfsand­ann, eins og ég sagði áðan, og spyrja hvað þurfi að laga. Hvar eru vanda­málin og hvernig er hægt að leysa þau? Það er of snemmt að segja til um það hvort ein­hverjar breyt­ingar verða á vinnu­lagi eða ekki.“

Hún segir að starfs­fólkið styðji hana 100 pró­sent í hennar störfum.

Enn liggur ekki ljóst fyrir hvenær nýr fram­kvæmda­stjóri tekur til starfa. Agnieszka segir að aug­ljós­lega þurfi að ræða málið innan stjórnar Eflingar og að ákvörðun muni liggja fyrir í fram­hald­inu. Ekki sé hægt að segja neitt til um tíma­setn­ing­una.

Halda áfram róttækri stefnu

En telur þú að það verði stefnu­breyt­ing varð­andi bar­áttu Eflingar í kjara­málum nú þegar þú ert for­maður?

Svarið er ein­falt: „Nei.“

Hún segir að þau muni halda þeirri rót­tæku stefnu í kjara­málum sem Sólveig Anna tal­aði fyrir í sinni for­mann­s­tíð. „Félags­menn okkar eiga það skilið að það sé áfram barist fyrir þeirra kjörum og við viljum gera það áfram.“

Að hennar sögn eru starfs­menn Eflingar á sama máli og segir Agnieszka að fyrir síð­ustu kjara­við­ræður og vinnu í kringum lífs­kjara­samn­ing­ana þá hafi það komið í ljós. „Svo ég trúi því að við getum haldið áfram að berj­ast fyrir sömu góðu gild­unum.“

Og þú telur að þessi átök innan Eflingar muni ekki breyta því?

„Ég held ekki. Ég held að þeir atburðir muni ekki hafa nein áhrif á hvernig skrif­stofan starfar vegna þess að þetta er stétt­ar­fé­lag. Mik­il­væg­asta verk­efnið á skrif­stof­unni er að þjón­usta félags­menn Eflingar. Þeir munu halda áfram sinni bar­áttu og verk­föllum ef þeir þurfa þess. Skrif­stofan mun standa við bakið á þeim í þeirri bar­áttu. Ég tel að starfs­fólkið muni gera það heils­hugar.“

Við höfum sömu stefnu­mál og Sólveig Anna hafði og ein­beitum okkur að lág­launa­fólki. Við viljum halda áfram bar­átt­unni fyrir þetta fólk.
Agnieszka segist bera mikla virðingu fyrir störfum Sólveigar Önnu og Viðars fyrir láglaunafólk og erlent launafólk. „Bara vegna þess hvað þau hafa gert í sinni baráttu þá geta útlendingar haft sinn málsvara í Eflingu.“
Agnieszka seg­ist bera mikla virð­ingu fyrir störfum Sól­veigar Önnu og Viðars fyrir lág­launa­fólk og erlent launa­fólk. „Bara vegna þess hvað þau hafa gert í sinni bar­áttu þá geta útlend­ingar haft sinn málsvara í Eflingu.“

Agnieszka seg­ist telja að starfs­fólkið hafi almennt stutt þessar rót­tæku hug­myndir. „Flestir myndu sam­þykkja að Sólveig Anna hafi sett mál­efni erlends launa­fólks á dag­skrá í íslensku sam­fé­lagi. Hér höfum við einnig fólk af erlendum upp­runa sem vinnur á skrif­stof­unni.“

Hvað með fram­tíð­ina? Hverjar eru áherslur Eflingar varð­andi kom­andi kjara­bar­áttu?

„Við höfum sömu stefnu­mál og Sólveig Anna hafði og ein­beitum okkur að lág­launa­fólki. Við viljum halda áfram bar­átt­unni fyrir þetta fólk.“

Hún seg­ist þannig ætla að vera með sömu áherslu­mál og fyrrum for­maður. „Ég sé til þess þessa dag­ana að stétt­ar­fé­lagið nái að starfa með eðli­legum hætti með öllum þeim verk­efnum sem því fylgir. Við ein­blínum á að laga þau vanda­mál sem upp hafa komið og passa upp á að félags­menn okkar fái þá þjón­ustu sem þeir þurfa.“

Hvað er mik­il­vægt að þínu mati að leggja áherslu á núna?

„Ég hef verið félags­maður í Eflingu megnið af þeim tíma sem ég hef búið á Íslandi. Ég veit hversu mik­il­vægt það er að félags­menn fái þá þjón­ustu sem þeir eiga skilið. Ég sé for­manns­emb­ættið sem sam­ein­ing­ar­tákn fyrir félags­menn. Efling verður að geta staðið með þeim þegar þeir þurfa á að halda vegna þess að lág­launa­fólk hefur ekki tök á að ráða lög­fræð­ing til að berj­ast fyrir rétti sínum. Og trúðu mér, atvinnu­rek­endur ganga stundum allt of langt. Svo þess vegna er svo mik­il­vægt að halda stétt­ar­fé­lag­inu gang­andi – það er okkar mark­mið,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið undanfarið ár