Segir VG standa frammi fyrir prófraun í kjölfar Samherjamálsins

Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra segir að grannt verði fylgst með við­brögðum Katrínar Jak­obs­dóttur og VG í tengslum við Sam­herj­a­málið. Hún segir að setja verði á fót sér­staka rann­sókn­ar­nefnd sem fari ofan í saumana á mál­inu.

Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra.
Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, segir að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og VG standi frammi fyrir próf­raun í ljósi þeirrar taum­lausu græðgi og spill­ingu sem nú hafi komið upp á yfir­borðið í Sam­herj­a­mál­inu. Hún segir að flokk­ur­inn verði meðal ann­ars að koma í veg fyrir að sam­keppn­is­lögin verði gerð veik­ari eins og nú standi til að gera. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Jóhönnu í dag. 

Veita þurfi skattayfirvöldum sérstakt framlag

„Þetta er spurn­ing um hvort VG eða sér­hags­muna­flokk­arnir tveir ráði ferð­inni í rík­is­stjórn­inni,“ segir Jóhanna og telur upp nokkra hluti sem hún segir að VG verði að setja í for­gang.

Þar á meðal telur Jóhanna að flokk­ur­inn verði að setja í for­gang að lög­festa í stjórn­ar­skrána ákvæði stjórn­laga­ráðs frá 2012 um sam­eign þjóð­ar­innar á auð­lindum og hækka auð­linda­gjaldið sem lækka á um tvo millj­arða á næsta ári. [adspot]

Auk þess telur Jóhanna að veita þurfi skatta­yf­ir­völdum sér­stakt fram­lag til að flýta fyrir rann­sókn á Sam­herj­a­mál­inu. „Óhjá­kvæmi­legt er einnig að Alþingi setji sér­staka rann­sókn­ar­nefnd í málið, skip­aða sér­fræð­ingum utan þings, sem hafi það verk­efni að fara ofan í saumana á Sam­herj­a­mál­inu, “ segir Jóhanna og bendir að lokum á að grannt verði fylgst með við­brögðum for­sæt­is­ráð­herra í þessu máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár