Tón­leika­ferða­lag Sigur Rósar hófst í lok apríl í Mexík­ó­borg og lýkur í Laug­ar­dals­höll eftir tæpar þrjár vikur. Þá verða þeir búnir að spila á um 70 tón­leikum víða um heim. Mynd: PATRICK GATELEY

„Sigur Rós kveikti ljósið í heiminum að nýju í kvöld“

Sigur Rós er alltaf að vinna með brothætta fegurð í bland við aggressjón því að hið viðkvæma þarf líka að fá útrás, segja Georg Hólm bassa­leikari og Jónsi söngvari. Georg segir fyllerís­rugl tilheyra fortíðinni enda séu þeir litlir rokk og ról-gæjar. Stundin hitti Sigur Rós í Amsterdam á dögunum en tónleika­ferðalag þeirra hófst í Mexíkó í apríl. Einn gesta þar sagði að Sigur Rós hefði kveikt ljósið í heiminum að nýju eftir dimmviðri síðustu tveggja ára.

„Ég sá plakat í lyftunni hérna frammi áðan þar sem kom fram að við hefðum spilað hér 2008 en ég mundi alls ekkert eftir því. Oft þekki ég ekki tónleika­staðina fyrr en ég er kominn inn í búnings­herbergið okkar. Þannig var það áðan,“ segir Georg Hólm, bassa­leikari Sigur Rósar, þar sem hann hefur komið sér vel fyrir í búnings­herbergi sveitarinnar í AFAS LIVE höllinni í Amsterdam síðdegis 1. nóvember. Það eru tæpir tveir tímar í tónleika Sigur Rósar. Georg drekkur svart te, Jónsi er að leggja sig, Kjartan var á rölti um gangana, virtist afar afslappaður, en Óla trommara var hvergi að sjá fyrir tónleikana. En allir voru þeir að undirbúa sig fyrir þriggja tíma gigg á sviðinu. Hver með sínum hætti. 

Að loknum tón­leikum í Amster­damGeorg, Jónsi og Kjartan voru ánægðir með tón­leik­ana í ASAF-LIVE höll­inni í Amster­dam
…
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár