Plútoníumborgirnar

Þegar kjarn­orku­kapp­hlaup stór­veld­anna hófst fór af stað atburða­rás sem er á skjön við allt sem eðli­legt getur talist. Tvær borgir, Richland í Washington ríki í Banda­ríkj­unum og Cheyliabinsk í Úral­fjöllum, léku þar stór hlut­verk.

Þegar kjarn­orku­kapp­hlaup stór­veld­anna hófst fór af stað atburða­rás sem er á skjön við allt sem eðli­legt getur talist. Því er saga tveggja borga sem þar leika stórt hlut­verk, þ.e. Richland í Washington ríki í Banda­ríkj­unum og Cheyliabinsk í Úral­fjöllum í fyrrum Sov­ét­ríkj­unum, einkar áhuga­verð.

Árið 1942 hófu Banda­ríkja­menn þróun kjarn­orku­vopna­tækn­innar undir for­merkjum Man­hattan-áætl­un­ar­innar og Sov­ét­menn, sem voru full­með­vit­aðir um ráða­gerðir Banda­ríkja­manna, fylgdu fljót­lega í kjöl­farið. Richland, sem var þá til­tölu­lega afskekktur smá­bær í Washingtonríki, var umbreytt í sér­staka borg og varð aðsetur starfs­manna hinnar umfangs­miklu Hanford-plúton­íum­verk­smiðju. Sov­ét­menn fylgdu for­dæmi Banda­ríkja­manna í strjál­býlu skóg­lendi í Úral­fjöllum. Þar var byggð hin sér­hæfða borg Chelyabinsk-40, sem seinna varð Ozersk, þar sem bjuggu starfs­menn Mayak-plúton­íum­verk­smiðj­unnar.

Í verk­smiðj­unum tveimur Hanford og Mayak var fram­leiddur meiri­hluti alls þess plúton­íums sem þurfti til víg­bún­að­ar­kapp­hlaups stór­veld­anna tveggja á tutt­ug­ustu öld. Fram­leiðslan hafði mjög alvar­legar afleið­ingar því hún gat af sér gíf­ur­legt magn af geisla­virkum úrgangi sem meng­aði umhverfi verk­smiðj­anna. Bæði var það vegna ónógra örygg­is­ráð­staf­anna en einnig var úrgangur los­aður út í ár og jarð­veg. Talið er að meng­unin á hvorum stað hafi á 40 ára tíma­bili numið um tvö­földu því magni sem slapp út í umhverfið í Tjerno­bylslys­inu í Úkraínu.

Svo virð­ist sem litlar ráð­staf­anir hafi verið gerðar til að tryggja öryggi fólks, jafn­vel þótt yfir­völd hafi haft undir höndum gögn sem sýndu fram á hversu alvar­legt ástandið var. Banda­rísk yfir­völd vissu m.a. um ástandið í Chelyabinsk en forð­uð­ust að gera þá vit­neskju opin­bera því það hefði beint sjónum fólks að þeirra eigin ranni, hvar ástandið var lítið betra. Víg­bún­að­ar­kapp­hlaup var hafið og tak­markið að fram­leiða eins mikið plúton­íum og mögu­legt var án trufl­ana.

Fjöldi fólks veikt­ist og lést vegna geisl­unar og svæðin umhverfis verk­smiðj­urnar tvær eru meðal þeirra meng­uð­ustu á jörð­inni. Sú spurn­ing vaknar því hvernig gat þetta gerst án þess að brugð­ist væri við.

Sérstakar aðstæður í fyrirmyndarsamfélögum

Yfirvöld beggja ríkja höfðu safnað saman tugum þús­unda inn­fluttra far­and­verka­manna, jafn­vel stríðs­fanga, til að vinna við upp­bygg­ingu plúton­íum­verk­smiðj­anna. Það gafst þó ekki vel. Meg­in­þorri þess verka­fólks var ungt og ein­hleypt og sýndi gjarnan af sér óábyrga hegðun, eins og drykkju­skap, slags­mál og laus­læti. Það var hegðun sem ekki var talin til­hlýði­leg og yfir­völd töldu sig ekki geta treyst slíku fólki þegar hin við­kvæma plúton­íum­fram­leiðsla var ann­ars vegar. Því þurfti að finna betri lausn til að manna verk­smiðj­urnar. Þess vegna voru þessar lok­uðu borgir byggðar, borgir sem skyldu vera eft­ir­sóttar að búa í og þangað valið fjöl­skyldu­fólk sem síður yrði til vand­ræða.

Það voru sterk lík­indi með borg­unum tveimur þrátt fyrir ólíkt stjórn­ar­far. Íbúarnir nutu alls konar fríð­inda, fyrsta flokks skóla og mun hærri launa en almennt gerð­ist. Í Richland greiddi fólk mála­mynda­leigu og starfs­fólk á vegum stjórn­valda hafði umsjón með hús­næði, plant­aði trjám í görðum fólks og lagði til hús­búnað. Það sama var uppi á ten­ingnum Sov­ét­megin þar sem íbúar Chelyabinsk nutu lífs­gæða langt umfram það sem almennt tíðk­að­ist þar í landi.

Starfs­menn verk­smiðj­anna og fjöl­skyldur þeirra bjuggu því við mikil for­rétt­indi. Virðist fólk hafa verið til­búið að vinna og búa við aðstæður sem mögu­lega voru lífs­hættu­legar í skiptum fyrir efna­hags­lega hag­sæld. Umbunin sem fólst í áður óþekktum lífs­gæðum var vissu­lega umtals­verð en skýr­ingin kann einnig að liggja í virð­ingu fólks fyrir valdi, tryggð, föð­ur­lands­ást og trú á vís­indi og tækni.

Í báðum til­vikum var fólk með­vitað um að það væri í fram­línu þess sem kalla mætti óyf­ir­lýst stríð. Borg­irnar urðu hvor á sinn hátt ímynd þess drauma­sam­fé­lags sem hinar ólíku stjórn­mála­stefnur í Banda­ríkj­unum og Sov­ét­ríkj­unum boð­uðu. Umtals­verð fjár­fram­lög banda­ríska rík­is­ins tryggðu að Richland gat orðið sú borg þar sem amer­íski draum­ur­inn varð að raun­veru­leika um leið og Chelyabinsk varð ímynd draum­sýnar hins full­komna sós­íal­íska sam­fé­lags.

Athygli vekur að eng­inn af starfs­mönnum Hanford-verk­smiðj­unnar virð­ist hafa verið til­bú­inn að stíga fram og tjá sig um málið fyrr en komið var fram á átt­unda ára­tug­inn. Jafnvel þótt fólk gerði sér grein fyrir hætt­unni var ekki kvartað og enn í dag á fólk erfitt með að tjá sig um lífið í plúton­íum­borg­unum tveimur. Ástæðan er lík­lega sú að íbúar borg­anna tveggja og starfs­menn áttu mjög óhægt um vik. Minnstu yfir­sjónir eða kvart­anir um aðbúnað á vinnu­stað, jafn­vel hraða­sekt gat þýtt brott­rekstur úr borg­inni og var­an­legan missi allra fríð­inda.

Skaðabótamál fyrrum starfsmanna

Stjórn­völd beittu einnig ýmiss konar laga­á­kvæðum sem tryggðu leynd og komu í veg fyrir að gögn sem sýndu fram á heilsu­far­s­vanda sem rekja mátti til geisla­virkra efna væru gerð opin­ber, eða nýtt­ust til mála­rekstrar. Þó hafa ein­hverjir sem enn þjást af sjúk­dómum sem rekja má til geisla­meng­unar reynt að sækja bætur til yfir­valda. Fyrrum starfs­menn hinnar rúss­nesku Mayak-verk­smiðju eiga þó sumir hverjir í vanda þar sem þeir voru skil­greindir sem börn á þeim tíma sem um ræðir og voru því ekki skráðir form­legir starfs­menn, sem er for­senda bóta­réttar sam­kvæmt rúss­neskum lögum.

Fyrrum starfs­fólk í Hanford-verk­smiðj­unum banda­rísku hefur einnig átti í erf­ið­leikum með að fá við­ur­kenndan rétt sinn til bóta og það þrátt fyrir að lagðar hafi verið fram lækn­is­fræði­legar rann­sóknir. Banda­ríska kjarn­orku­mála­stofn­unin hafn­aði til að mynda þegar árið 1948 að rann­saka frekar hvort teng­ing gæti verið milli krabba­meins og meng­unar í verk­smiðj­unum og nágrenni þeirra. Stofn­unin sjálf og seinna orku­mála­ráðu­neyti Banda­ríkja­stjórnar hafa jafn­framt verið gagn­rýnd fyrir að þegja um málið, kæfa umræðu og hafna sönn­un­ar­gögnum um mengun.

Hér skiptir máli það sem kallað hefur verið sér­stöðu­hyggja kjarn­orkunnar (e. Nuclear exceptionalism). Sér­stöðu­hyggju mætti lýsa á þann hátt að allt sem við­kemur kjarn­orkunni er talið svo sér­stakt og óvenju­legt að það nýtur algerrar sér­stöðu. Er það sakir þess hversu öflug, flókin og dýr tæknin er og hversu auð­velt er að fella kjarn­ork­una undir ýtr­ustu þjóð­ar­hags­muni. Því ríkir gjarnan leynd­ar­hyggja um kjarn­orku­mál og þannig er þeim oft haldið utan stofn­ana sam­fé­lags­ins.

Athygl­is­vert er að þetta ástand átti við á báðum víg­stöðvum, eins ólíkar og þær voru. Hvort sem um var að ræða það sem okkur er kennt að sé frjálst og opið lýð­ræð­is­þjóð­fé­lag eða lokað alræð­is­skipu­lag. Og enn í dag ríkir sér­stöðu­hyggja í kjarn­orku­málum. Allt sem við­kemur kjarn­orku lýtur sér­stökum lögum og reglum, bæði innan ríkja og í alþjóða­sam­fé­lag­inu, sem kemur í veg fyrir lýð­ræð­is­legar ákvarð­anir og -stefnu­mótun.

Eftir að rann­sókn á vegum Washingtonríkis, sem kunn­gerð var árið 1974, stað­festi að starfs­menn Hanford-verk­smiðj­unnar hefðu margir hverjir veikst af krabba­meini, réði banda­ríska kjarn­orku­mála­stofn­unin vís­inda­mann­inn Thomas Mancuso til að gera í skyndi sjálf­stæða rann­sókn. Þegar hann neit­aði síðar að skrifa undir yfir­lýs­ingu stofn­un­ar­innar, þar sem hafnað var öllum ásök­unum um þátt verk­smiðj­unnar í krabba­meinstil­fellum, var sjálf­stæð rann­sókna­stofun fengin í verkið. Nið­ur­staða hennar var þvert á nið­ur­stöður Mancusos, eða að engin tengsl væru á milli dauðs­falla starfs­manna og þess að þeir hefðu orðið fyrir geislun.

Enn­fremur var rann­sóknin talin leiða í ljós að veik­indi eins og skjald­kirtil­sjúk­dómar, sem rekja mætti til geisl­unar, væru síst meiri á svæðum sem hefðu orðið fyrir geisla­mengun en á öðrum svæðum. Heil­brigð­is­stofnun Banda­ríkj­anna sá sig þó knúna til að gefa út yfir­lýs­ingu þar sem sagt var að það væri full­langt gengið að segja að geislun hefði þarna engin áhrif. Þrátt fyrir þessar óljósu nið­ur­stöður, sem í raun drápu umræð­unni á dreif, hafa nokkrir fyrrum starfs­menn unnið mál­sóknir á hendur Hanford-verk­smiðj­unum.

Plúton­íum var síð­ast fram­leitt á Hanford-svæð­inu árið 1987 en þar er þó enn kjarn­orku­ver og ýmiss konar þró­unar- og rann­sókn­ar­starf­semi sem teng­ist kjarn­orku. Banda­ríska ríkið los­aði um tengsl sín við Richland árið 1957, íbú­arnir áttu þess kost að kaupa hús og íbúðir af rík­inu og borgin varð eins og hver önnur banda­rísk smá­borg.

Svæðin sem um ræðir eru eins og áður sagði nú talin með þeim meng­uð­ustu á jörð­inni. Í Band­ríkj­unum er áætlun um flókið og erfitt hreins­un­ar­starf komin af stað. Auk þeirrar meng­unar sem til­komin er vegna lélegs umbún­aðar í Mayak-ver­inu rúss­neska, hafa þar orðið nokkur meiri­háttar óhöpp sem fóru aldrei hátt en kost­uðu hund­ruð manna lífið og hund­ruð þús­unda urðu fyrir geislun. Borgin Cheyliabinsk-40, sem nú heitir Orzersk, er því á lok­uðu svæði og er nú mið­stöð end­ur­vinnslu og eyð­ingar kjarn­orku­úr­gangs í Rúss­landi. Þar eins og við Hanford bíður umfangs­mikið hreins­un­ar­starf sem seint mun verða lokið.

Sjá nánar

Abraham, I. (2004). Notes toward a Global Nuclear History. Economic and Political Weekly .

Brown, K. (2010). The Forsaken: The Unfin­is­hed Business of Making Pluton­ium in Russia. International Labor and Working-Class History , 137–144.

D'Amato, A. A. (1967). Legal Aspects of the French Nuclear Tests. The American Journal of International Law , 66-77.

Flank, S. (1993-4). Explod­ing the Black Box: The Historical Sociology of Nuclear Proliferation. Security Studies , 259-94.

Hecht, G. (2006). Nuclear Ontologies. Constellations Volume , 320-331.

Jenks, A. (2007). Model City USA: The Environ­mental Cost of Victory in World War II and the Cold War. Environ­mental History, , 552-577.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár