Velta í íslenskum tölvuleikjaiðnaði tvöfaldast

Á árunum 2009 til 2016 tvö­fald­að­ist velta í íslenska tölvu­leikja­iðn­að­inum úr nærri 7,5 millj­örðum króna í 14,5 millj­arða króna á ári. Sá vöxtur hefur aðal­lega verið drifin áfram af CCP en í dag starfa alls 17 tölvu­leikja­fyr­ir­tæki hér á landi.

Hilmar Veigar Pétursson er forstjóri CCP.
Hilmar Veigar Pét­urs­son er for­stjóri CCP. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tölvu­leika­iðn­að­ur­inn á Íslandi hefur vaxið hratt á síð­ustu árum. Í dag starfa alls sautján tölvu­leikja­fyr­ir­tæki hér á landi með 345 starfs­menn. Á árunum 2009 til 2016 tvö­fald­að­ist velta í grein­inni úr nærri 7,5 millj­örðum króna í 14,5 millj­arða króna á ári.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu um stöðu tölvu­leikja­iðn­að­ar­ins á Íslandi. Skýrslan var unnin af Northstack fyrir Samtök leikja­fram­leið­enda, IGI, í sam­starfi við Samtök iðn­að­ar­ins og Íslands­stofu en þetta er í fyrsta sinn sem yfir­grips­mikil skýrsla er unnin um iðn­að­inn á Íslandi.

Meirihluti tekna kom erlendis frá

[links]Í skýrsl­unni kemur fram að tekjur íslenska leikja­iðn­að­ar­ins eru upp­safnað 100 millj­arðar króna síð­ustu tíu ár og koma þær að mestu erlendis frá en gjald­eyr­is­tekjur grein­ar­innar eru um 95 pró­sent af veltu fyr­ir­tækja í grein­inni.

Þessi vöxtur hefur aðal­lega verið drifin áfram af CCP og flagg­skipi þeirra, leiknum Eve Online. CCP hefur verið og er enn langstærsta fyr­ir­tækið í grein­inni hér á Íslandi. Árið 2017 hætti Plain Vanilla dag­legum rekstri á Íslandi og í kjöl­farið dróst velta grein­ar­innar umtals­vert saman. [adspot]

Enn fremur kemur fram í skýrsl­unni að frá árinu 2009 hafi íslensk leikja­fyr­ir­tæki gefið út 83 leiki eða alls 1,5 leik að með­al­tali í hverjum mán­uði. Þá hafi sumir af fremstu fjár­festum heims á þessu sviði fjár­fest í íslenskum leikja­fyr­ir­tækjum, þar með talið Sequoia, Tencent og Index Ventures.

Í skýrsl­unni segir að miðað við vöxt tölvu­leikja­þró­unar á alþjóða­vísu þá sé tölvu­leikja­iðn­að­ur­inn hér á landi einn af þeim fáu hug­verkaiðn­uðum sem gæti orðið að umtals­verðum iðn­aði.

Þá sé jafn­framt ein helsta hindrun áfram­hald­andi vaxtar í grein­inni hér á landi skortur á sér­fræð­ingum og fólki með menntun sem teng­ist tölvu­leikja­iðn­aði. Í skýrsl­unni er jafn­framt bent á leiðir til að styðja við og lækka rekstr­ar­kostnað fyr­ir­tækj­anna og hvernig ýta megi undir fjár­mögn­unar­úr­ræði ungra leikja­fyr­ir­tækja.

Hér má lesa skýrsl­una í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár