Byrjuðu í tjaldi við Gullfoss

Svavar Njarð­ar­son, sem rekur Gull­foss­kaffi með eig­in­konu sinni, Elfu Björk Magnúd­óttur, segir síð­asta ár hafa verið gott og hann sé stoltur af skatta­greiðslum sínum til sam­fé­lags.

Góður rekstur
Góður rekstur Rekstur Gull­foss­kaffi gengur vel og er stað­ur­inn afar vin­sæll meðal ferða­manna. Mynd: Tripadvisor

Hjónin Svavar Njarð­ar­son og Elfa Björk Magn­ús­dóttir stofn­uðu Gull­foss­kaffi árið 1996. Upp­haf­lega buðu þau aðeins upp á kaffi og súpu í tjaldi við Sig­ríð­ar­stofu. Rekst­ur­inn hefur vaxið ár frá ári og er Gull­foss­kaffi nú við­komu­staður meiri­hluta þeirra sem bera Gullfoss augum. Kaffihús er ekki lengur rétt­nefni heldur er þarna veit­inga­staður, verslun með minja­gripi og fatnað, auk sal­ern­is­að­stöðu fyrir ferða­menn. Vef­slóðin er heldur ekki ama­leg: gull­foss.is

Mikil uppbygging

Svavar var með tæpar 108 millj­ónir í heild­ar­árs­tekjur í fyrra, þar af 102 millj­ónir í fjár­magnstekjur. Hann greiddi því 22,5 millj­ónir í fjár­magnstekju­skatt á síð­asta ári og 784 þús­und krónur í útsvar. „Ég er nokkuð viss um að eitt­hvað af þessum tölum hafa átt að reikn­ast á kon­una mína,“ segir hann þegar blaða­maður hefur sam­band. 

Hann er ann­ars stoltur af sínum skatt­greiðslum sem hafi komið til vegna þess hvað rekst­ur­inn gengur vel. „Þetta hefur verið fín­asta ár. Maður vill skila …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár