Snapchat hrapaði í verði

Það gengur illa hjá sam­fé­lags­miðl­inum Snapchat þessi miss­erin.

Verð­mið­inn á móð­ur­fé­laga Snapchat, Snap Inc., lækk­aði mikið í gær og er verðið nú komið niður fyrir skrán­ing­ar­gengi félags­ins. Lækkunin í gær nam tæp­lega níu pró­sentum og er gengið nú 15,6 á hvern hlut.

Mark­aðsvirði félags­ins er nú 18,2 millj­arðar Banda­ríkja­dala og hefur lækkað hratt og mikið.

Einn þeirra sem hefur efa­semdir um að Snapchat sé á réttri leið er grein­andi hjá Morgan Stanley bank­anum, Brian Nowak. Hann segir að aug­lýs­ing­arn­ar hjá Snapchat séu ekki að virka nægi­lega vel, og tekj­urnar séu ekki að aukast eins og við var búist í upp­hafi.

Með öðrum orðum, þá gengur illa hjá Snapchat að finna tekju­módel sem virkar vel og fjár­festar hafa trú á.

Helsti keppi­nautur Snapchat er Facebook, og dótt­ur­fyr­ir­tæki þessi, Instagram. Svipaðar aug­lýs­ingar hjá þeim miðli hafa gengið betur en hjá Snapchat og þá hefur not­endum einnig fjölgað hraðar.

Verð­mið­inn á Facebook er nú 450 millj­arðar Banda­ríkja­dala, og hefur hann hækkað nokkuð að und­an­förnu. Virkir not­endur nálg­ast óðfluga 1,5 millj­arð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár