Flugfélagið selur allar Fokker-vélarnar

Flug­fé­lag Íslands er búið að festa kaup á sjöttu Bombar­dier-vél­inni og geng­ist við kauptil­boði á fjórum Fokker-vélum félags­ins.

Flugfélag Íslands hefur haft tvær minni gerðir Bombardier-véla í áætlunarflugi enda henta stóru vélarnar þrjár ekki til lendingar á Ísafirði, í Nuuk eða í Ilulissat. Hér má sjá Bombardier Dash 8-Q200.
Flug­fé­lag Íslands hefur haft tvær minni gerðir Bombar­dier-véla í áætl­un­ar­flugi enda henta stóru vél­arnar þrjár ekki til lend­ingar á Ísafirði, í Nuuk eða í Ilulissat. Hér má sjá Bombar­dier Dash 8-Q200. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Flug­fé­lag Íslands hefur ákveðið að selja allar fjórar Fokker 50-flug­vélar félags­ins og kaupa eina Bombar­dier Dash 8-Q200 flug­vél í þeirra stað.

Kanadíska félagið Avmax er kaup­andi vél­anna auk vara­hluta í eigu Flug­fé­lags Íslands. Avmax er einnig selj­andi Bombar­dier-vél­ar­innar.

Flug­fé­lagið tók á móti þremur not­uðum Bombar­dier Dash 8-Q400 flug­vélum vorið 2016 sem áttu að taka við af Fokker-vél­unum sem höfðu þá sinnt inn­an­lands­flugi á Íslandi síðan fyrsta vélin af þeirri gerð kom hingað til lands árið 1992.

Kjarninn greindi frá því í frétt sum­arið 2105 að þá hafi ætl­unin verið að taka allar fimm Fokker-vél­arnar alfarið úr áætl­un­ar­flugi um miðjan mars árið 2016.

Í sam­tali við Kjarnann í dag segir Árni Gunn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Flug­fé­lags Íslands, að það hafi tekið aðeins lengri tíma að selja Fokker-vél­arnar en lagt var upp með. „Það er samt að mörgu leyti eðli­legt því þetta er stór mark­aður,“ segir Árni. Hann segir að vél­arnar hafi staðið í geymslu og verið til sýnis síðan í maí í fyrra.

Samn­ing­ur­inn við Avmax felur í sér skipti á Bombar­dier-vél­inni og fjórum Fokker-vélum, auk pen­inga­greiðslu til Flug­fé­lags Íslands segir Árni.

Flug­fé­lag Íslands verður eftir þessar breyt­ingar með tvær teg­undir Bombar­dier-flug­véla í áætl­un­ar­flugi sínu. Það er stærri gerðin, Dash 8-Q400, sem tekur allt að 76 manns í sæti og svo minni gerðin, Dash 8-Q200, sem tekur 37 manns í sæti.

Flug­floti flug­fé­lags­ins mun nú sam­an­standa af þremur Dash 8-Q400 og þremur Dash 8-Q200.

Þeir sem hafa flogið til Ísa­fjarðar hafa eflaust flogið í minni flug­vél­inni enda er sú stærri of löng til þess að geta lent á Ísa­fjarð­ar­flug­velli.

Á vef Flug­fé­lags Íslands má lesa um ástæður þess að flug­fé­lagið tók ákvörðun um að losa sig við Fokker-vél­arnar. Þær hafi allar verið að árgerð 1991 og 1992 og þess vegna komnar til ára sinna, auk þess sem að Fokker-fyr­ir­tækið hol­lenska, hafi farið á haus­inn árið 1996 og þess vegna dýr­ara að reka vél­arnar.

Í til­kynn­ingu flug­fé­lags­ins um kaupin á þriðju Q200-vél­inni er haft eftir Árna Gunn­ars­syni, fram­kvæmda­stjóra Flug­fé­lags Íslands, að um sé að ræða mik­il­vægan áfanga til þess að efla Flug­fé­lag Íslands enn frekar. Með þess­ari við­bót muni sveig­an­leiki félags­ins aukast og ný tæki­færi skap­ast til þess að bæta leiða­kerfið.

Flogið til Akureyrar frá Keflavík

Flug­fé­lag Íslands flýgur nú á 17 áfanga­staði í fjórum löndum auk Íslands. Með til­komu stærri gerðar Bombar­dier-vél­anna í flug­flot­ann varð það mögu­legt fyrir flug­fé­lagið að fljúga til áfanga­staða lengra í burtu enda er Dash 8-Q400 vélin lang­dræg­ari en Fokker-vél­arnar.

Síðan í febr­úar hefur flug­fé­lagið flogið áætl­un­ar­flug sex daga vik­unnar frá Keflavík til Akur­eyrar, meðal ann­ars í þeim til­gangi að bjóða ferða­mönnum sem koma til lands­ins ein­falda leið norður í land.

Spurður hvernig Flug­fé­lagi Íslands hafi gengið að færa auk­inn fjölda ferða­manna hér á landi í not segir Árni það hafa tek­ist ágæt­lega. „Fyrir nokkrum árum var hlut­deild ferða­manna í inn­an­land­flugi um fimm pró­sent á árs­grund­velli, en það er eitt­hvað um 20 pró­sent núna,“ segir Árni. „Það er svona í sam­ræmi við sam­bæri­lega þjón­ustu sem við höfum skoðað.“

Árni segir það hins vegar aðeins dýr­ara að bjóða upp á flug­leiðir frá Keflavík því það sé ein­fald­lega dýr­ara að fá aðstöðu á Mið­nes­heiði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár