Nýjar vélar Flugfélags Íslands voru kyrrsettar af SAS 2007

Flug­fé­lag Íslands tekur um þessar mundir á móti þremur not­uðum Bombar­dier Dash 8-Q400 flug­vélum sem SAS kyrr­setti árið 2007 eftir vanda­mál með lend­ing­ar­búnað vél­anna. Flug­fé­lag Íslands festi kaup á vél­unum í mars, eins og Kjarninn greindi frá.

Vélarnar þrjár eru keyptar í stað Fokker 50-flota Flug­fé­lags Íslands, dótt­ur­fé­lags Icelandair, en þær vélar hafa sinnt áætl­un­ar­flugi félags­ins inn­an­lands og flugi til Græn­lands síðan fyrsta vélin kom hingað til lands 1992. Áætlað er að allar fimm Fokker-vél­arnar verði teknir úr áætl­un­ar­flugi um miðjan mars, þó nákvæm dag­setn­ing liggi ekki fyrir. Vélarnar fimm eru allar til sölu.

Árni Gunn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Flug­fé­lags Íslands, seg­ist ekki hafa áhyggur af bil­unum í nýju vél­unum enda hafi við­halds­að­ferðum SAS verið um að kenna að þrjár vélar flug­fé­lags­ins hafi lent í slysum.

Bombar­dier-vél­arnar hafa und­an­farið verið í þjón­ustu Air Niugini í Papúa Nýju-Gíneu í Suð­vestur-Kyrra­hafi og kaupir Flug­fé­lagið þær þaðan. Air Niugini er einn af stærstu við­skipta­vinum Icelandair Group en Loft­leiðir hafa leigt þangað vélar í þónokkur ár og hafa íslenskir flug­virkjar unnið með papúska flug­fé­lag­inu.

„Við höfum mjög góða reynslu af Bombar­dier-vélum; höfum rekið minni Bombar­dier-vélar í tíu ár,“ segir Árni. „Það er ekk­ert sem við höfum sér­stakar áhyggjur af út af þessu. Svona vélar eru í notkun um allan heim og auð­vitað koma óhöpp fyrir á þessum vélum eins og öðrum. Það er ekk­ert við þessar vélar sem er afbrygði­legt eða eitt­hvað sem óeðli­legt getur talist.“

Árni segir flug­fé­lagið vera í nokkuð góðum málum með þessar nýju vélar. „Það er mjög mikil þekk­ing á rekstri Air Niugini og við­halds­málum þar innan Icelandair Group. Við erum búin að fá afhentar tvær af þessum vélum og þriðja kemur um mán­að­ar­mótin. Þær fara svo í inn­leið­ing­ar­ferli þar sem þær eru aðlag­aðar að okkar kröfum.“

Sé litið lengra í flug­sögu þess­ara Bombar­dier-véla má sjá að SAS flaug þeim þar til í októ­ber 2007. Alls átti SAS 27 svona vélar en síðan þær voru kyrr­settar hefur engin slík sinnt áætl­un­ar­flugi skand­in­av­íska flug­fé­lags­ins. Allar vél­arnar voru í kjöl­farið seldar.

„Vanda­málið sem SAS barð­ist við átti ein­göngu við flug­fé­lagið SAS. Það kom í ljós að þetta hafði með það að gera hvernig þeir stóðu að við­halds­málum á þeim tíma. Þetta var bara inn­an­húss­vanda­mál hjá þeim. Það var eng­inn annar flug­rek­andi sem lenti í sam­bæri­legum vand­ræðum,“ segir Árni og bendir á að vél­arnar sem Flug­fé­lag Íslands kaupir nú séu ekki þær sem lentu í þessum óhöppum. Vélarnar sem koma hingað hafi verið í rekstri síðan þær fóru frá SAS, bæði í Evrópu og Asíu.

Ein þess­ara þriggja Bombar­dier-véla sem Flug­fé­lag Íslands hefur fest kaup á mun sinna áætl­un­ar­flugi fyrir Icelandair til Skotlands. „Ein af þessum vélum verður stað­sett í Keflavík og mun byrja í mars á næsta ári að fljúga inn í leið­ar­kerfi Icelandair fjórum sinnum í viku til Aberdeen.“

Vöxtur Icelandair á und­an­förnum árum hefur ein­göngu átt sér stað með einni stærð flug­véla. Nú ráð­gerir flug­fé­lagið að leigja tvær stærri far­þega­þotur með vor­inu 2016 og fljúga þeim í leið­ar­kerfi félags­ins. Um leið verður Bombar­dier-vél Flug­fé­lags Íslands flogið reglu­lega til Aberdeen. Árni segir Icelandair vera þannig að auka breidd sína í sæta­fram­boði.

Vandræði SAS með hjólabúnaðinn


Slys í lend­ingu á Kaup­manna­hafn­ar­flug­velli laug­ar­dag­inn 27. októ­ber 2007 varð til þess að vél­arnar voru kyrr­settar. Stuttu eftir að vélin á Kastr­up­flug­velli lenti gaf hjóla­bún­aður vél­ar­innar eftir og hún skaut­aði á mag­anum eftir flug­braut­inni. Áður höfðu áhafnir Bombar­dier-véla SAS lent í vand­ræðum með lend­ing­ar­búnað, en þó aldrei með svo alvar­legum afleið­ingum. Á innan við tveimur mán­uðum urðu þrjú óhöpp sem rekja mátti til bil­unar í hjóla­bún­aði Bombar­dier-vél­anna.

Flug­mála­yf­ir­völd í Danmörku vör­uðu SAS við árið 2004 að alvar­legur galli væri á vél­unum sem gætu haft í för með sér að væng­hlutar gæfu sig með þeim afleið­ingum að flug­menn­irnir misstu stjórn á vél­inni. SAS við­hafð­ist ekk­ert og flaug vél­unum til árs­ins 2007. Það var ekki fyrr en árið 2008 að SAS uppgvötaði að aðvör­unin hafði týnst í tölvu­kerfi félags­ins.

SAS er þó ekki eina flug­fé­lagið sem hefur lent í vand­ræðum með hjóla­búnað véla af þess­ari gerð. Síðasta bilun hjóla­bún­aðar í Bombar­dier Dash 8-vél var 7. nóv­em­ber í fyrra þegar vél Air Canada þurfti að nauð­lenda því flug­mað­ur­inn hafði tekið eftir vand­ræðum í flug­taki. Hann hélt að aðeins væri um sprungið dekk að ræða en við lend­ingu gaf hjóla­bún­að­ur­inn hægra megin eftir með þeim afleið­ingum að hreyfill­inn lenti í jörð­inni og spað­arnir brot­uðu af. Einn spaði hreyf­ils­ins stakkst í gegnum glugga á skrokki vél­ar­innar og slas­aði eina mann­eskju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár