Icelandair tekur inn langdrægari vélar, ekki að fara að fljúga til Kína

Icelandair Group til­kynnti í morgun um áherslu­breyt­ingar á flug­flota félags­ins, sem rekur dótt­ur­fé­lögin Icelandair og Flug­fé­lag Íslands. Allar fimm fokker 50 vélar Flug­fé­lags Íslands verða seldar og þrjár Bombar­dier Q400 vélar koma í stað­inn. Þær taka 74 far­þega á meðan að Fokker 50 vél­arnar tóku 50. Nýju vél­arnar eru jafn­framt hrað­skreið­ari og lang­dræg­ari og því sér Flug­fé­lag Íslands tæki­færi til að nýta þær á öðrum mörk­uðum en félagið flýgur nú á, en Flug­fé­lag Íslands sinnir aðal­lega inn­an­lands­flugi og flugi til Græn­lands.

Þá kemur fram í til­kynn­ing­unni að tveimur Boeing 757 vélum sem Icelandair er með á leigu verði skilað í haust og þær leystar af hólmi með tveimur Boeing 767-300 vélum. Þær taka mun fleiri far­þegar, alls 260 tals­ins, og eru mun lang­dræg­ari. Í til­kynn­ing­unni segir að „með þeim munu skap­ast ný tæki­færi fyrir leið­ar­kerfi Icelandair.“ Nýju vél­arnar geti sinnt mörk­uðum sem núver­andi flug­véla­kostur getur ekki sinnt og með þeim sjái Icelandair fram á aukin vaxta­tæki­færi á kom­andi árum. Vélarnar verða teknar í notkun frá og með vor­inu 2016.

Ekki að fara að fljúga til Kína


Aðspurður um hvar þessi nýju tæki­færi fyrir leið­ar­kerfi Icelandair liggja segir Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair Group, að félagið geti nú skoðað að fljúga til borga sem 757 vél­arnar dragi ekki á. „Það getur til dæmis falið í sér að við getum verið að fljúga lengra niður á vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna“.

Hann segir þessa breyt­ingu ekki fela í sér að Icelandair sé að fara að skoða að fljúga til Kína. „Við höfum ekki skoðað það af neinni alvöru. Það er ekki á teikni­borð­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár