1% líkur á 27 þingmönnum Vinstri grænna

Mestar líkur eru á að Vinstri græn muni verða stærsti flokk­ur­inn á þingi eftir kosn­ingar. 69 pró­sent líkur eru á að Sjálf­stæð­is­flokkur og Vinstri græn munu sam­an­lagt geta myndað meiri­hluta á þing­inu. Annars eru meiri­hlutar þriggja flokka lík­leg­astir.

Vinstri hreyf­ingin - grænt fram­boð mælist enn vin­sælasta fram­boðið á lands­vísu í kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar. Miðað við nið­ur­stöður nýj­ustu kosn­inga­spár­innar, sem unnin var í morgun, má í fyrsta sinn rýna í lík­legan þing­manna­fjölda út frá nið­ur­stöðum á lands­vísu í svo­kall­aðri þing­sæta­spá.

Þing­sæta­spáin er reikni­líkan sem fram­kvæmir 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingar“ þar sem nið­ur­stöður fyr­ir­liggj­andi kann­ana eru hafðar til grund­vallar. Nið­ur­stöður kosn­inga­spár­innar á lands­vísu eru not­aðar sem lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­inga, en til þess að gera ráð fyrir mis­ræmi í fylgi flokka á milli kjör­dæma er munstur síð­ustu þriggja Alþing­is­kosn­inga haft til hlið­sjónar.

Í þessum 100.000 sýnd­ar­kosn­ingum fékk vin­sælasta fram­boðið, Vinstri græn, 27 þing­menn í eitt pró­sent til­vika. Til sam­an­burðar, og til þess að und­ir­strika hversu öfl­ugur stuðn­ingur við flokk Katrínar Jak­obs­dóttur er þá fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mest 23 þing­menn í einu pró­sent til­vika í sýnd­ar­kosn­ing­unum.

Sögulega hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn oft­ast haft mest fylgi allra fram­boða í kosn­ingum. Eftir þing­kosn­ing­arnar í fyrra fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn flest atkvæði og réð stærsta þing­flokknum á þingi með 21 þing­mann, miðað við 10 þing­menn Vinstri grænna.

Líkur á fjölda þing­sæta fyrir helstu fram­boð
ÞingmennABCDFMPSV
270.000.000.000.000.000.000.000.000.01
260.000.000.000.000.000.000.000.000.01
250.000.000.000.000.000.000.000.000.02
240.000.000.000.000.000.000.000.000.02
230.000.000.000.010.000.000.000.000.04
220.000.000.000.010.000.000.000.000.06
210.000.000.000.030.000.000.000.000.07
200.000.000.000.050.000.000.000.000.10
190.000.000.000.070.000.000.000.000.12
180.000.000.000.090.000.000.000.000.12
170.000.000.000.110.000.000.000.000.12
160.000.000.000.120.000.000.000.000.10
150.000.000.000.120.000.000.000.000.08
140.000.000.000.120.000.000.000.000.05
130.000.000.000.100.000.000.010.000.04
120.000.000.000.070.000.000.020.010.02
110.000.010.000.040.010.000.040.020.01
100.000.020.000.030.020.010.070.050.01
90.000.030.000.020.040.020.110.080.00
80.010.060.010.010.070.040.140.110.00
70.020.100.020.000.100.080.150.140.00
60.040.130.040.000.130.120.140.150.00
50.070.150.080.000.150.170.110.140.00
40.120.180.130.000.150.180.090.120.00
30.090.130.110.000.080.100.040.050.00
20.020.090.020.000.020.040.010.010.00
10.170.070.180.000.090.110.030.050.00
00.470.030.410.000.150.130.030.060.00

Í töfl­unni má sjá dreif­ingu á fjölda til­vika þar sem flokkur fékk ákveð­inn fjölda þing­manna kjör­inn í 100.000 sýnd­ar­kosn­ingum, miðað við fylgi flokka á lands­vísu í kosn­inga­spánni.

Sam­an­lagðar líkur á fjölda þing­manna eftir flokkum
ÞingmennABCDFMPSV
>=270.000.000.000.000.000.000.000.000.01
>=260.000.000.000.000.000.000.000.000.02
>=250.000.000.000.000.000.000.000.000.03
>=240.000.000.000.010.000.000.000.000.06
>=230.000.000.000.020.000.000.000.000.10
>=220.000.000.000.030.000.000.000.000.16
>=210.000.000.000.060.000.000.000.000.23
>=200.000.000.000.100.000.000.000.000.33
>=190.000.000.000.180.000.000.000.000.45
>=180.000.000.000.270.000.000.000.000.57
>=170.000.000.000.380.000.000.000.000.69
>=160.000.000.000.500.000.000.000.000.79
>=150.000.000.000.620.000.000.000.000.87
>=140.000.000.000.740.000.000.010.000.93
>=130.000.000.000.840.000.000.020.010.96
>=120.000.010.000.910.010.000.040.020.98
>=110.000.010.000.950.010.000.080.040.99
>=100.000.030.000.970.030.010.150.091.00
>=90.000.070.000.990.070.030.260.171.00
>=80.010.130.011.000.140.070.400.271.00
>=70.030.230.031.000.230.150.550.411.00
>=60.060.350.071.000.370.270.690.561.00
>=50.130.510.161.000.510.440.810.701.00
>=40.250.690.291.000.670.620.890.821.00
>=30.340.820.401.000.750.720.930.871.00
>=20.360.910.421.000.760.760.940.891.00
>=10.530.970.591.000.850.870.970.941.00

Gögnin úr töfl­unni hér á undan má einnig setja fram á þennan hátt. Hér er búið að leggja saman lík­urnar á því að fjöldi þing­manna er kjör­inn. Í til­felli Bjartrar fram­tíðar þá eru 53% líkur á að flokk­ur­inn fái í það minnsta einn þing­mann kjör­inn, 36% líkur á að fá tvo eða fleiri og svo koll af kolli.

Þriggja flokka stjórn í kortunum

Þegar líkur á fjölda þing­sæta þess­ara fram­boða eru lagðar saman eru 69 pró­sent líkur á því að rík­is­stjórn­ar­sam­starf Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks­ins geti orðið að praktískum mögu­leika. Þá ætti auð­vitað eftir að semja um mál­efnin milli þess­ara flokka, sem raða sér á sinn væng­inn hvor í íslenskum stjórn­málum.

Ólíklegt er að hægt verði að mynda meiri­hluta­sam­starf ann­arra tveggja flokka en Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna. Fimm pró­sent líkur eru á að Píratar og Vinstri græn fái að minnsta kosti 32 þing­menn, 3 pró­sent líkur á að hægt verði að end­ur­nýja rík­is­stjórn­ar­sam­starf Vinstri grænna og Sam­fylk­ingar.

Mun lík­legra er að þrjá flokka þurfi til að mynda meiri­hluta eins og staðan er núna. Þannig eru 25 pró­sent líkur á að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, Sam­fylk­ingin og Vinstri græn geti myndað meiri­hluta á þingi eftir kosn­ingar. Sam­an­lagt gátu Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Mið­flokk­ur­inn myndað meiri­hluta í þrjú pró­sent til­vika í sýnd­ar­kosn­ing­unum 100.000.

Líkur á sam­an­lögðum þing­manna­fjölda
ÞingmennACDBDBDMBSVDVPVSVVF
>=460.000.000.000.000.010.000.000.00
>=450.000.000.000.000.010.000.000.00
>=440.000.000.000.000.020.000.000.00
>=430.000.000.000.000.020.000.000.00
>=420.000.000.000.000.040.000.000.00
>=410.000.000.000.000.060.000.000.00
>=400.000.000.000.010.090.000.000.00
>=390.000.000.000.010.130.000.000.00
>=380.000.000.000.020.180.000.000.00
>=370.000.000.000.030.250.000.000.00
>=360.000.000.000.050.330.000.000.00
>=350.000.000.010.080.410.010.000.00
>=340.000.000.010.120.510.010.010.00
>=330.000.000.020.180.610.030.020.01
>=320.000.000.030.250.690.050.030.01
>=310.000.000.060.330.780.070.050.02
>=300.010.010.090.420.850.120.080.04
>=290.010.020.140.520.900.170.120.07
>=280.020.030.200.610.940.250.180.11
>=270.040.050.280.700.960.340.250.16
>=260.060.080.370.780.980.440.340.23
>=250.090.130.470.840.990.550.440.31
>=240.140.190.570.890.990.640.550.41
>=230.190.270.670.931.000.740.650.51
>=220.270.360.750.961.000.820.740.61
>=210.360.470.820.981.000.880.820.70
>=200.460.570.880.991.000.920.880.79
>=190.570.680.920.991.000.950.920.85
>=180.670.770.951.001.000.970.950.90

Líkur á að sam­an­lagður þing­manna­fjöldi fram­boðs­lista nái meiri­hluta á þingi. Til að fá eins manns meiril­huta á Alþingi þarf sam­an­lagður fjöldi að vera 32 þing­menn. Rauða strikið í töfl­unni hér að neðan er sláin sem þarf að kom­ast yfir.

Tæplega helmings líkur á að falla út

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir Björt fram­tíð og Viðreisn hafa mælst með lítið fylgi und­an­farnar vikur og hafa ekki náð að afla stuðn­ings eftir að rík­is­stjórn þeirra og Sjálf­stæð­is­flokks­ins féll 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Í þing­sæta­spá kosn­inga­spár­innar sem unnin var í morgun kom það í ljós að nærri því helm­ings líkur eru á því að Björt fram­tíð falli af þingi, eða 47 pró­sent. Viðreisn á meiri mögu­leika á að halda í það minnsta einu þing­sæti, en fékk engan þing­mann í 41 pró­sent til­vika sýnd­ar­kosn­ing­anna.

Þing­sæta­spáin var unnin út frá fyr­ir­liggj­andi könn­unum sem mældu fylgi fram­boða á lands­vísu. Þegar kann­anir á fylgi fram­boða innan hvers kjör­dæmis liggja fyrir verður hægt að gera nákvæm­ari þing­sæta­spá, þar sem reikn­aðar verða líkur á því að hver og einn fram­bjóð­andi nái kjöri. Kjarninn birti sams­konar spá í aðdrag­anda kosn­ing­anna í fyrra.

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Til útskýr­ingar má segja að vægi kann­ana er gefið eftir því hversu næmur könn­un­ar­að­il­inn og aðferðir hans eru á raun­veru­legar hreyf­ingar í sam­fé­lag­inu. Kosn­ingar eru auð­vitað eini mæli­kvarð­inn á það hversu vel könn­un­ar­að­ilum tekst upp svo miðað er við sögu­leg gögn og þau borin saman við kosn­inga­úr­slit til að ákvarða áreið­an­leika. Þá skiptir máli hversu langt er liðið síðan könn­unin var gerð og hversu margir tóku þátt í henni.

Kjarn­inn birti Kosn­­inga­­spá Bald­­urs fyrst í aðdrag­anda sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­a 2014 og reynd­ist sú til­­raun vel. Á vefnum kosn­­inga­­spá.is má lesa nið­­ur­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­vik kann­ana miðað við kosn­­inga­úr­slit­in.

Kosn­­inga­­spá Kjarn­ans og Bald­­urs Héð­ins­­sonar er nú keyrð í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 28. októ­ber í annað sinn. Kosn­inga­spáin fékk mikla athygli fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar 2016, ekki síst fyrir þing­sæta­spána þar sem spáð var um hvaða fram­bjóð­endur myndu ná kjöri. Nánar um það hér að neðan.

Í nýj­­ustu kosn­­inga­­spánni hverju sinni eru nýj­ustu kann­anir könn­un­ar­að­ila vegnar eftir áreið­an­leika. Fylgi ein­stakra fram­boða er svo fundið með vegnu með­al­tali úr þeim könn­unum sem liggja til grund­vallar hverri spá fyrir sig. Spálíkanið sem Baldur hefur útbúið byggir að veru­legu leyti á aðferðum Nate Silver. Um það má lesa hér. Vægi hverrar könn­unar fyrir sig er metið út frá fyr­ir­fram gefnum for­sendum, eins og stærð úrtaks, fjölda svar­enda, lengd könn­un­ar­tíma­bils og áreið­an­leika könn­un­ar­að­ila. Áreið­an­leiki könn­un­ar­að­ila byggir á því hversu nærri kann­an­irnar hafa kom­ist nið­ur­stöðum kosn­inga á und­an­förnum árum.

Þær kann­anir sem teknar eru gildar í kosn­inga­spánni verða að upp­fylla lág­marks skil­yrði töl­fræði­legrar aðferða­fræði. Þar er litið til stærðar úrtaks­ins, fjölda svar­enda, könn­un­ar­tíma­bils og þess hvort úrtakið stand­ist kröfur til að reyn­ast mark­tækt, svo fátt eitt sé nefnt.

Þingsætaspáin

Þing­sæta­spáin er ítar­legri grein­ing á gögnum kosn­inga­spár­innar sem mælir lík­indi þess að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri í Alþing­is­kosn­ingum. Nið­ur­stöð­urnar byggja á fyr­ir­liggj­andi könn­unum á fylgi fram­boða í öllum sex kjör­dæmum lands­ins hverju sinni og eru nið­ur­stöð­urnar birtar hér á vefnum.

Fyrir kjördæmin

Líkur á því að ein­staka fram­bjóð­andi nái kjöri byggja á reikni­lík­ani stærð­fræð­ing­anna Baldurs Héð­ins­sonar og Stefáns Inga Valdi­mars­sonar. Í stuttu máli er aðferða­fræðin sú að fylgi fram­boða í skoð­ana­könn­unum er talin lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­inga að við­bættri óvissu sem byggir á sögu­legu frá­viki kann­ana frá kosn­inga­úr­slitum. Söguleg gögn sýna að fylgni er á milli þess að ofmeta/van­meta fylgi flokks í einu kjör­dæmi og að ofmeta/van­meta fylgi flokks­ins í öðrum kjör­dæmum. Frávikið frá lík­leg­ustu nið­ur­stöðu fyrir flokk er því ekki óháð milli kjör­dæma. Ef frá­vikið er nei­kvætt í einu kjör­dæmi fyrir ákveð­inn flokk aukast lík­urnar á að það sé sömu­leiðis nei­kvætt í öðrum kjör­dæmum.

Reikni­líkanið hermir 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingar“ og úthlutar kjör­dæma- og jöfn­un­ar­sætum út frá nið­ur­stöð­unum. Líkur fram­bjóð­anda á að ná kjöri er þess vegna hlut­fall „sýnd­ar­kosn­inga“ þar sem fram­bjóð­and­inn nær kjöri.

Tökum ímyndað fram­boð X-list­ans í Norð­vest­ur­kjör­dæmi sem dæmi: Fram­boðið mælist með 20 pró­sent fylgi. Í flestum „sýnd­ar­kosn­ing­unum“ fær X-list­inn 2 þing­menn en þó kemur fyrir að fylgið í kjör­dæm­inu dreif­ist þannig að nið­ur­staðan er aðeins einn þing­maður. Sömu­leiðis kemur fyrir að X-list­inn fær þrjá þing­menn í kjör­dæm­inu og í örfáum til­vikum eru fjórir þing­menn í höfn.

Ef skoðað er í hversu mörgum „sýnd­ar­kosn­ingum“ hver fram­bjóð­andi komst inn sem hlut­fall af heild­ar­fjölda fást lík­urnar á að sá fram­bjóð­andi nái kjöri. Sem dæmi, hafi fram­bjóð­and­inn í 2. sæti X-list­ans í Norð­vest­ur­kjör­dæmi náð kjöri í 90.000 af 100.000 „sýnd­ar­kosn­ingum“ þá reikn­ast lík­urnar á því að hann nái kjöri í Alþing­is­kosn­ing­unum 90 pró­sent.

Skoð­ana­kann­anir í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2009 og 2013 voru not­aðar til að sann­prófa þing­sæta­spánna, þar sem spáin er borin saman við end­an­lega úthlutun þing­sæta. Þing­sæta­spáin var jafn­framt birt í fyrsta sinn í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 2016.

Fyrir landið í heild

Þegar nið­ur­stöður í öllum kjör­dæmum liggja fyrir er hægt taka nið­ur­stöð­urnar saman fyrir landið í heild og reikna út líkur á því hversu marga þing­menn hver flokkur fær á lands­vísu. X-list­inn gæti, svo dæm­inu hér að ofan sé haldið áfram, fengið:

  • 8 þing­menn í 4% til­fella
  • 9 þing­menn í 25% til­fella
  • 10 þing­menn í 42% til­fella
  • 11 þing­menn í 25% til­fella
  • 12 þing­menn í 4% til­fella

Þetta veitir tæki­færi til þess að máta flokka saman reyna að mynda meiri­hluta þing­manna og skoða líkur á því hvaða flokkar muni ná meiri­hluta á þingi að afstöðnum kosn­ingum. Ef X-list­inn er einn af þeim flokkum sem myndar meiri­hluta að loknum kosn­ingnum er þing­manna­fram­lag hans til meiri­hlut­ans aldrei færri en 8 þing­menn, í 96% til­fella a.m.k. 9 þing­menn, í 71% til­fella a.m.k. 10 þing­menn o.s.frv. Lands­líkur X-list­ans eru því settar fram á form­inu:

  • = > 8 þing­menn í 100% til­fella
  • = > 9 þing­menn í 96% til­fella
  • = > 10 þing­menn í 71% til­fella
  • = > 11 þing­menn í 29% til­fella
  • = > 12 þing­menn í 4% til­fella
  • = > 13 þing­menn í 0% til­fella
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár