Páll Magnússon fer gegn Ragnheiði Elínu í Suðurkjördæmi

Páll Magn­ús­son, fyrr­ver­andi útvarps­stjóri RÚV og núver­andi stjórn­andi útvarps­þátt­ar­ins Sprengisands á Bylgj­unni, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi. Þetta stað­festir hann við mbl.is. Fyrir í fyrsta sæt­inu er Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, sem býður sig áfram fram í það sæti.

Fram­boðs­frestur fyrir próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi rennur út á mið­nætti í kvöld. „Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í próf­kjöri Sjálf­stæðis­flokks­ins í Suður­kjör­dæmi fyr­ir alþing­is­kosn­ing­arn­ar í haust. Ég býð mig fram í 1. sæti til þess að leiða list­ann í kosn­ing­un­um. Ef sjálf­stæðis­menn í kjör­dæm­inu ætla mér hins veg­ar eitt­hvert annað sæti á list­an­um þá er ég fús til þess að taka því. En ég býð mig fram í fyrsta sætið,“ segir Páll við Mbl.

Ásmundur Frið­riks­son, sem er þriðji þing­maður flokks­ins í kjör­dæm­inu, hefur einnig gefið kost á sér í fyrsta til annað sætið í próf­kjör­inu.

Tveir flokkar höfðu samband

Í við­tali við Pál í DV um miðjan júlí kom fram að stuðn­ings­menn tveggja stjórn­mála­flokka hafi talað við hann um að fara í fram­boð fyrir þá í haust. Hann segir að í fyrsta sinn sem honum hafi boð­ist slíkt sé hann að hugsa málið og hafi ekki sagt þvert nei. Páll vildi ekki segja um hvaða stjórn­mála­flokka væri að ræða þá.

Aðspurður hvar hann stað­setji sig í hinu póli­tíska lit­rófi sagði Páll við DV að hann væri frjáls­lynd­ur. „Senni­lega myndi ein­hver vilja bæta við: hægra megin við miðju - en þessi vinstri/hægri skali dugar ekki jafn­vel og áður til að stað­setja fólk á hinu póli­tíska lit­rófi. Píratar fara með hæstum hæðum núna, eru þeir vinstri flokkur eða hægri flokk­ur? Ég veit það ekki; held helst að þeir séu hvor­ugt. Það unga fólk sem ég tala við notar ekki skipt­ing­una í hægri og vinstri með sama hætti og áður tíðk­að­ist og hugsar ekki eftir sömu línum og eldri kyn­slóðin ger­ir. Smám saman er þessi vinstri-hægri skali ekki lengur að svara spurn­ingum um það hvaða póli­tísku afstöðu fólk hefur í þeim mæli sem hann gerð­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár