Stytti mál sitt eftir að hafa verið auðmýktur þegar Jón Gnarr sagði hann leiðinlegan

Bjór­kælir var fjar­lægður úr verslun ÁTVR vegna þess að Björgólfur Guð­munds­son bað um það. Sig­mundur Davíð var eitt sinn eini mað­ur­inn sem þótti harð­ari and­stæð­ingur Reykja­vík­ur­flug­vallar í Vatns­mýr­inni en Gísli Marteinn Bald­urs­son.

Í nýrri bók Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra, „Nýja Reykja­vík“ rekur hann fjöl­margt sem átti sér stað á bak­við tjöldin í stjórn­málum síð­ustu ára, og hefur ekki áður komið fram.

Þar fjallar hann meðal ann­ars um átta ára tíma­bil í borg­ar­stjórn þar sem fyrri hluti þess átti þátt í að rífa niður traust á borg­ar­stjórn­mál og síð­ari hlut­inn veitt Reykja­vík­ur­borg nýtt upp­haf.

Fyrra tíma­bilið, frá 2006 til 2010, er eft­ir­minni­legt vegna þess að þá sátu fjórir meiri­hlutar í borg­inni. Það síð­ara er eft­ir­minni­legt fyrir Jón Gnarr og Besta flokk­inn.

Eftir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2006 var mynd­aður meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks í Reykja­vík. Tólf ára þaul­setu Reykja­vík­ur­list­ans var lokið og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn loks kom­inn aftur við stýrið í höf­uð­borg­inni, undir stjórn Vil­hjálms Þ. Vil­hjálms­sonar borg­ar­stjóra.

Í bók Dags segir að upp­haf þessa tíma hafi lit­ast af furðu­legum ákvörð­unum Vil­hjálms. Ein sú furðu­leg­asta var þegar hann lét fjar­lægja bjór­kæli úr ÁTVR í Aust­ur­stræti. Í við­tali við Blaðið í sept­em­ber 2007 sagði Vil­hjálmur að málið „sner­ist um það að úti­gangs­menn í mið­bænum hafa komið sér fyrir eins og setu­lið niðri í Aust­ur­stræti þar sem þeir áreita fólk, stökkva jafn­vel að því og þrífa í það og krefja um pen­ing fyrir bjór. Síðan fara þeir inn í áfeng­is­versl­un­ina og kaupa sér bjór í stykkja­tali. Ég var að tala um þennan vanda. Það var ákvörðun áfeng­is­versl­un­ar­innar að fjar­lægja kæl­inn. Eftir á að hyggja hefði ég hugs­an­lega mátt nálg­ast þetta mál með öðrum hætti en ég er ekki full­kom­inn frekar en aðrir. Þetta mál reynd­ist mér hins vegar alls ekk­ert erfitt. Eftir stendur að úti­gangs­menn í Aust­ur­stræti angra fólk og slíkt fram­ferði þarf að stöðva.“

Í bók­inni rifjar Dagur upp þetta mál. Dagur segir þar að í ljós hafi komið að „Björgólfur Guð­munds­son, sem þá var stjórn­ar­for­maður Lands­bank­ans, hafi rek­ist á Villa úti á götu og beðið hann um þetta.“

„Til í allt - án Villa“

Það var svo að lokum REI-málið svo­kall­aða sem sprengdi fyrsta meiri­hluta Sjálf­stæð­is­manna og Fram­sókn­ar­manna á þessu kjör­tíma­bili og leiddi af sér 100 daga meiri­hluta Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Frjáls­lynda flokks­ins. Dagur segir í bók­inni að það hafi verið Ólafur F. Magn­ús­son, efsti maður Frjáls­lynda flokks­ins sem var í veik­inda­leyfi á þessum tíma, sem hafi fyrst ljáð máls á sam­starf­inu við sig. „Ég man að hann orð­aði það þannig að það myndi ekk­ert gera hann glað­ari en ef hann gæti endað stjórn­mála­feril sinn með því að gera mig að borg­ar­stjóra.

Þegar verið var að klára myndun meiri­hlut­ans biðu Sjálf­stæð­is­menn í Höfða eftir Birni Inga Hrafns­syni, þáver­andi sam­starfs­manni sínum í meiri­hluta og odd­vita Fram­sóknar í borg­inni, til að reyna að sætta málin. Björn Ingi mætti aldrei á fund­inn þar sem hann í Breið­holti að mynda nýja meiri­hlut­ann. Þegar ljóst var að Björn Ingi var ekki að fara að skila sér fékk hann SMS frá einum borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem í stóð: „ Til í allt - án Villa“.

Í fjöl­miðlum hefur því verið haldið fram að Þorbjörg Helga Vig­fús­dóttir hafi sent skila­boðin en Dagur nefnir hana ekki í bók­inni.

Bauð Ólafi F. að eyða jólunum heima hjá sér

Dagur segir að hann og Ólafur F. Magn­ús­son hafi verið í miklu sam­bandi í gegnum allan þennan tíma, þrátt fyrir að Ólafur væri í veik­inda­leyf. Þegar það hefði stefnt í það að Ólafur yrði einn á jól­unum, þar sem hann var að ganga í gegnum skilnað, hafi Dagur og Arna eig­in­kona hans boðið honum að vera hjá sér sem hann hafi þáð í fyrstu, en síðan hætt við. Þess í stað hafi Dagur keyrt Ólaf heim til móður sinnar þar sem hann eyddi hátíð­unum.

Um miðjan jan­úar hafi Dagur fengið óvænt sím­tal frá blaða­manni þar sem hann var spurður hvort Ólafur væri í meiri­hluta­við­ræðum við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Síðar hafi komið í ljós að Sjálf­stæð­is­menn hefðu verið að vinna í Ólafi lengi. „Hann sagði mér síðan sjálfur að Kjartan Magn­ús­son borg­ar­full­trúi hafi byrjað að hringja í sig og bjóða gull og græna skóga á meðan að hann var enn inniliggj­andi inni á geð­deild.“

Skammlífur meirihluti var myndaður þar sem Ólafur F. Magnússon varð borgarstjóri. Mynd: Skjáskot/RÚV
Skamm­lífur meiri­hluti var mynd­aður þar sem Ólafur F. Magn­ús­son varð borg­ar­stjóri. Mynd: Skjáskot/RÚV

Ólafur hafi á end­anum farið að gera allskyns kröfur. „Lengst gekk það í því að kaupa húsin tvö á Lauga­vegi 4 og 6, sem var gert á yfir­verði, þvert á fyr­ir­liggj­andi mat fast­eigna­sala. Verk­tök­unum sem áttu húsin var boðið heim til Vil­hjálms Þ. þar sem kaupin voru hand­söluð að Ólafi F. við­stöddum fyrir meiri­hluta­skiptin. Þetta var gjaldið fyrir sam­starfið við Ólaf F. Húsakaup, ekki hrossa­kaup.“

Mestu óheilindin sem hann hefur upplifað í pólitík

Dagur seg­ist aldrei hafa orðið vitni af jafn miklum óheil­indum í póli­tík. „Mér fannst blasa við að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var að leika ljótan leik, einkum gagn­vart Ólafi.“

Nýr meiri­hluti var mynd­aður þar sem Ólafur var gerður að borg­ar­stjóra framan af í sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Síðar átti hann að skipta við Vilhjálm.

Í bók Dags er rifjað upp að fylgi Sjálf­stæð­is­flokks hafi hrunið við þá meiri­hluta­myndun, fór úr um 40 í 25 pró­sent. Hann segir frá könnun sem inn­an­hús­menn í Sjálf­stæð­is­flokknum hefðu látið gera sem sýndi að 40 pró­sent svar­enda vildu Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í emb­ættið, þar á eftir kom nafn Gísla Marteins Bald­urs­sonar en Vil­hjálmur naut ein­ungis stuðn­ings átta pró­sent þátt­tak­enda.

Síð­sum­ars þetta ár var hringnum lokað, fjórði meiri­hlut­inn og sá sami og hóf kjör­tíma­bilið var mynd­aður, en nú með Hönnu Birnu sem borg­ar­stjóra. Dagur segir að sér hafi alltaf grunað að það hafi verið áætlun Sjálf­stæð­is­manna með sam­starf­inu við Ólaf F. Það hafi ein­ungis verið gert til að sprengja 100 daga meiri­hlut­ann.

Sigmundur Davíð sagður einn mesti andstæðingur flugvallarins

Dagur segir að van­geta til að takast á við erfið vanda­mál hafi ein­kennt starf meiri­hluta Sjálf­stæð­is­manna og Fram­sókn­ar­manna síð­ari hluta kjör­tíma­bils­ins, sem lauk 2010. Hrunið lit­aði auk þess allt lands­lagið.

Í skipu­lags­málum hafi í raun ekk­ert gerst mark­vert annað en það að Framsókn hefði skipað nýjan full­trúa í skipu­lags­ráð. Sá heitir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hóf stjórnmálaþátttöku sína í skipulagsráði Reykjavíkur.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hóf stjórn­mála­þátt­töku sína í skipu­lags­ráði Reykja­víkur.

Dagur segir að hann hafi hringt í sig í kjöl­farið til að greina sér frá því að hann væri ekki Fram­sókn­ar­maður en vildi þiggja sætið vegna þess að hann deildi þeirri sýn á mála­flokk­inn sem hann og Gísli Marteinn Bald­urs­son höfðu á hann. „Sig­mundur hringdi líka í Gísla sem sagði mér þá að Sig­mundur væri sá eini sem hann þekkti sem væri harð­ari and­stæð­ingur Reykja­vík­ur­flug­vallar í Vatns­mýr­inni en hann sjálfur.“

Það hafi enda farið svo að á þessum tíma hafi þriðja flug­brautin, sem síðar var nefnd neyð­ar­braut í miklum deilum um til­veru hennar, verið tekin af deiliskipu­lagi. Dagur segir Sigmund þó lítið hafa haft sig í frammi í ráð­inu. Hann hafi mætt stop­ult og sagt fátt. „Það hlýtur að telj­ast nokkuð magnað af manni sem gefur sig út fyrir að hugsa mikið um skipu­lags­mál að gera fátt annað á tveimur árum í skipu­lags­nefnd Reykja­víkur en að drekka kaffi og borða bakk­elsi og leggja af flug­braut sem hann hefur síðar sagst elska.“

Jón Gnarr sendi Davíð Oddssyni stuðningskveðju

Þegar kosið var næst til borg­ar­stjórnar, árið 2010, var Jón Gnarr og Besti flokk­ur­inn mættur til leiks. Traust til hefð­bund­inna stjórn­mála­flokka var við frost­mark, enda skýrsla rann­sókn­ar­nefndar Alþingis ný komin út, og Dagur segir að Jón hafi verið „lauk­réttur maður á hár­réttum stað á kór­réttum tíma“. Kosn­inga­bar­áttan var hár­beitt ádeila Besta flokks­ins á hefð­bundin stjórn­mál. Hún hverfð­ist um Jón sem sagð­ist ætla að svíkja öll kosn­inga­lof­orð og Dagur segir aðra þátt­tak­endur hafa verið eins og statista í heim­ild­ar­mynd­inni sem gerð var um bar­áttu Jóns og Besta flokks­ins.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi lagt alla áherslu á Hönnu Birnu á hvítum jakka. „Þegar stutt var til kosn­inga fór Besti flokk­ur­inn með him­in­skautum í könn­unum. Hanna Birna bað mig um að hitta sig í ráð­hús­inu. Ábyrgir stjórn­mála­flokkar þyrftu að taka sig saman og forða borg­inni frá þeirri hættu sem staf­aði frá Jóni Gnarr og alvöru­leysi hans.“

Jón Gnarr var litríkur borgarstjóri sem vakti athygli út um allan heim.
Jón Gnarr var lit­ríkur borg­ar­stjóri sem vakti athygli út um allan heim.

Dagur seg­ist ekki hafa verið sann­færður, hvorki um að Sjálf­stæð­is­flokk­inn ætti erindi í meiri­hluta né að Jón Gnarr væri hættu­legur. Á end­anum hafi stór­sigur Besta flokks­ins verið það besta sem gat komið fyrir borg­ina. Hann hafi veitt henni nýtt upp­haf. „Jóni og Besta flokknum tókst á ótrú­legan hátt að virkja reið­ina og djúp­stæð von­brigðin í sam­fé­lag­inu á jákvæðan hátt. Á meðan önnur lönd kusu hægri popúlista og öfga­menn til áhrifa hafi Rey­kvik­ingar valið grínista og lista­fólk til for­ystu.

Hann sagði mér seinna að hann hefði tekið ákvörðun um að gera eitt­hvað í mál­unum þegar hann sá fólk safn­ast saman fyrir utan Seðla­bank­ann eftir Hrun og beina reiði sinni að Davíð Oddssyni, seðla­banka­stjóra og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og borg­ar­stjóra. Jón sendi Davíð stuðn­ings­kveðju en fékk ekk­ert svar. Jón ótt­að­ist að reiðin myndi leiða til voða­verka.“

Sýndi auðmýkt og tók sjálfan sig í gegn

Dagur segir í bók­inni að það séu tvær leiðir til að takast á við ósigur. Önnur sé að hætta, en hin sé að læra af ósigrinum. „Ég man eftir að hafa verið boðið á frum­sýn­ingu á kvik­mynd Besta flokks­ins um kosn­inga­bar­átt­una í bíó. Í einni af loka­sen­unum segir Jón eitt­hvað á þá leið að ég sé áreið­an­lega fínn en aug­ljós­lega ótrú­lega leið­in­legur. Og aðrir í hópnum hlæja.“

Dagur seg­ist hafa ýtt þessu frá sér, en samt munað áfram. „Kannski af því að þetta var auð­mýkj­andi. Ég var nýbú­inn að gera Jón að borg­ar­stjóra. Ég ákvað að taka því einmitt þannig, að auð­mýkt. Kannski má segja að ég hafi brugð­ist rétt við þessu. Ég horfð­ist í augu við að ég var far­inn að tala eins og stjórn­mála­maður, alltaf með lærða frasa, allt og lang­orður. Þannig að ég ein­setti mér að stytta mál mitt. Ég hætti að svara sjálf­krafa og tamdi mér meira manna­mál, hætti að koma mér á fram­færi að fyrra bragði en beið frekar eftir því að fjöl­miðlar vildu við­töl [...] Ég tók sjálfan mig í gegn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið undanfarið ár