Óvissuferð í Reykjavík

Reykjavík er borg óviss­unnar. Hér og þar leynast kimar og staðir sem hressa upp á menninguna og lífga upp á hvers­daginn. Og um að gera að fara í óvissu­ferðir!

Einn af óteljandi mögu­leikum til að fara í óvissu­ferð er Lauga­vegurinn frá mótunum við Hlemm, þaðan sem eiginleg verslunar­gata hefst, og að mótum Baróns­stígs og Laugavegs. Á þessum stutta spotta leynast fjölmargir spennandi áningar­staðir, bæði nýir og gamlir. Hér er stiklað á nokkrum:

Fersk hráefni og taílensk vín

Tilvalið er að hefja gott kvöld á Ban Thai á Laugavegi 130 en staðurinn hefur oftar en einu sinni verið kosinn besti taílenski veitinga­staðurinn á Íslandi – af The Reykjavik Grapevine.  

Á heimasíðu staðarins má lesa að hann hefur starfað og boðið upp á ekta taílenskan mat í 33 ár: „... alveg eins og hann er í Taílandi.“

Að mati menningar­vitans er maturinn á Ban Thai brjál­æðislega góður. Þar er einnig boðið upp á Singha-bjór og m.a. taílenskt vín og viskí.

Á síðu staðarins kemur einnig fram að maturinn er létt eldaður …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár