78 greindust með COVID-19 innanlands

Alls 52 af þeim 78 sem greindust með COVID-19 inn­an­lands í gær voru með fulla bólu­setn­ingu. Fleiri smit tengj­ast nú hátíð­inni LungA á Seyð­is­firði, sem fram fór í síð­ustu viku.

Mörg sýni eru tekin í húsnæði heilsugæslunnar við Suðurlandsbraut í Reykjavík þessa dagana.
Mörg sýni eru tekin í hús­næði heilsu­gæsl­unnar við Suð­ur­lands­braut í Reykja­vík þessa dag­ana. Mynd: Bára Huld Beck

Alls greindust 78 manns með COVID-19 inn­an­lands í gær, sem er mesti fjöldi smita sem greinst hefur það sem af er þessu ári. Alls voru tekin rúm­lega 3.000 sýni hjá ein­stak­lingum inn­an­lands í gær.

Samkvæmt upp­lýs­ingum á töl­fræði­vef yfir­valda eru nú 287 manns í ein­angrun og 723 ein­stak­lingar í sótt­kví vegna útbreiðslu veirunnar hér inn­an­lands.

Af þeim 78 sem greindust með veiruna í gær voru 52 full­bólu­settir og fimm til við­bótar búnir að fá einn skammt bólu­efnis. Átján manns voru óbólu­sett.

Lítill hluti smit­aðra voru í sótt­kví við grein­ingu, eða ein­ungis 19 af þeim 78 sem greindust.

[adspot]

Eins og Kjarninn fjall­aði um í gær er tölu­verður meiri­hluti þeirra sem eru að grein­ast með COVID-19 þessa dag­ana ein­stak­lingar sem hafa verið bólu­settir og ljóst að bólu­settir geta bæði smit­ast af COVID-19 og dreift veirunni áfram.[links]

Fleiri smit tengjast LungA á Seyðisfirði

Fleiri smit hafa nú greinst hjá ein­stak­lingum sem voru staddir á lista­há­tíð­inni LungA á Seyð­is­firði í síð­ustu viku, en áður hafði verið greint frá því að tveir ein­stak­lingar sem þar voru staddir hefðu greinst með COVID-19 og nokkur fjöldi fólks var kom­inn í sótt­kví vegna þeirra smita.

Far­sótta­nefnd Land­spít­ala sendi út til­kynn­ingu í morgun þar sem því var beint til þeirra starfs­manna spít­al­ans sem voru þar staddir að halda umsvifa­laust í skimun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár