Bólusettir 73,5 prósent þeirra sem greinst hafa síðustu daga

Flestir þeir sem eru með COVID-19 hér á landi eru á aldr­inum 18-29 ára eða tæp 45 pró­sent. Fjórtán börn eru með sjúk­dóm­inn, þar af eitt ung­barn. Enn eru rúm­lega 116 þús­und lands­menn óbólu­settir.

Sérstaða Íslands þegar kemur að fjölda bólusettra er mikil og því ekki hægt að miða við reynslu nokkurs annars ríkis þegar kemur að virkni bóluefna í samfélagi án takmarkanna innanlands og fjölgunar ferðamanna.
Sérstaða Íslands þegar kemur að fjölda bólu­settra er mikil og því ekki hægt að miða við reynslu nokk­urs ann­ars ríkis þegar kemur að virkni bólu­efna í sam­fé­lagi án tak­markanna inn­an­lands og fjölg­unar ferða­manna. Mynd: Pexels

Á tólf daga tíma­bili, dag­ana 9.-20. júlí, greind­ist 151 með COVID-19 inn­an­lands. Af þeim voru 111 full­bólu­settir eða 73,5 pró­sent hóps­ins. Bólu­setn­ing var hafin hjá þrettán en 27 sem greindust á tíma­bil­inu voru óbólu­settir eða tæp­lega 18 pró­sent hóps­ins.

Ef miðað er við útgefnar tölur Hag­stof­unnar um íbúa­fjölda á Íslandi í byrjun árs eru 68,3 pró­sent lands­manna full­bólu­sett. Ef litið er aðeins til þeirra sem eru sextán ára og eldri, sem mælt er með að láta bólu­setja sig, er hlut­fallið 85,3 pró­sent.

[adspot]

Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar voru um 73.500 íbúar lands­ins yngri en sextán ára í byrjun árs eða rétt tæp 20 pró­sent mann­fjöld­ans. Enn hefur ekki verið ákveðið hvort eða hvenær bólu­setn­ing barna hefst almennt hér á landi, þó að börn með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma hafi sum hver fengið bólu­setn­ingu sem og hafa for­eldrar und­an­farið haft val um það að láta bólu­setja börn sín.

Á vefnum COVID.is eru tölur um fjölda bólu­settra á aldr­inum 0-11 ára ekki gefnar upp. Hins vegar kemur fram að 1.429 börn á aldr­inum 12-15 ára séu full­bólu­sett eða um 7,6 pró­sent ald­urs­hóps­ins. Það þýðir að 92 pró­sent þeirra eru óbólu­sett og gera má ráð fyrir að hlut­fall óbólu­settra sé mun hærra hjá enn yngri börnum.

116 þúsund ekki bólusettir

Ef við snúum dæm­inu öllu við og skoðum þann hóp sem hvað við­kvæm­astur er fyrir alvar­legum veik­indum af völdum COVID-19 kemur í ljós að enn eru 116.500 íbúar Íslands óbólu­settir. Í elstu ald­urs­hóp­unum eru þetta örfáir ein­stak­lingar. Aðeins 44 mann­eskjur 90 ára og eldri eru ekki bólu­settar en þessi elsti ald­urs­hópur telur um 2.500 manns. 142 mann­eskjur á aldr­inum 80-89 ára eru óbólu­settar eða innan við 2 pró­sent hóps­ins. Aðeins 75 á aldr­inum 70-79 ára eru ekki bólu­settir sem er um 0,3 pró­sent alls hóps­ins.

Um 2 pró­sent fólks á sjö­tugs­aldri (60-69 ára) eru óbólu­sett eða 818 manns og um 4,5 pró­sent fólks á sex­tugs­aldri er óbólu­sett eða tæp­lega 2.000 ein­stak­lingar.

En síðan fer fjöldi óbólu­settra í hverjum ald­urs­hópi að hækka. Þannig eru 10 pró­sent fólks á aldr­inum 40-49 ára enn óbólu­sett eða rúm­lega 4.800 manns. Um 19 pró­sent fólks á fer­tugs­aldri (30-39 ára) er óbólu­sett, sam­tals yfir tíu þús­und manns. Þegar ald­urs­hóp­ur­inn 16-29 ára, sem telur um 73 þús­und manns, er hlut­fall óbólu­settra um 17 pró­sent.

Allir búsettir hér á landi sem eru sextán ára og eldri voru komnir með boð í bólu­setn­ingu í júní.

Þegar þessar tölur eru bornar saman við þann fjölda sem nú er með COVID-19 eftir aldri kemur í ljós að smitin eru flest í þeim ald­urs­hópum þar sem hlut­fall bólu­settra er hvað lægst. Þannig eru 100 manns á aldr­inum 18-29 ára sýkt og 47 ein­stak­lingar á aldr­inum 30-39 ára.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði nýverið að vörnin sem bólu­efni veita væri „klár­lega“ ekki eins og hann hafði von­ast til. Hann sagði svo í við­tali við RÚV: „Full­bólu­sett fólk getur smit­ast, full­bólu­sett fólk getur smitað aðra, og full­bólu­sett fólk getur veikst alvar­lega.“

Þegar bólu­efni komu á markað, og vörn þeirra var metin um og yfir 90 pró­sent, var ekki ljóst hvort fólk gæti engu að síður sýkst af veirunni og borið hana í aðra. Á síð­ustu vikum hefur ber­sýni­lega komið í ljós að slík áhætta er fyrir hendi. Þá er stóra spurn­ingin, hversu góða vörn þau veita gegn alvar­legum veik­indum, sér­stak­lega í ljósi þess að nýtt afbrigði, delta, er komið fram á sjón­ar­sviðið.

Heil­brigð­is­yf­ir­völd í Ísrael vör­uðu fyrr í vik­unni við því að vörn bólu­efna gegn delta-afbrigði kór­ónu­veirunnar væri minni en talið var. Smitum fer fjölg­andi í land­inu þrátt fyrir að meiri­hluti þjóð­ar­innar sé bólu­settur. Inn í þessa jöfnu verður að taka að tak­mark­anir hafa víð­ast hvar, t.d. hér á landi og í Ísrael, verið litlar sem engar síð­ustu vikur. Það gefur veirunni enn betra tæki­færi til að dreifa sér manna á milli en síð­ustu mán­uði þegar marg­vís­legar hömlur á sam­komum fólks hafa verið í gildi.

Heil­brigð­is­ráðu­neytið í Ísrael til­kynnti í síð­ustu viku að bólu­efnin veittu 64 pró­senta vörn gegn því að smit­ast af delta-afbrigð­inu og 93 pró­senta vörn gegn því að veikj­ast alvar­lega. Ný gögn frá Gertner-stofn­un­inni í Tel Aviv sem birt voru um helg­ina sýna að vörn gegn veirunni hefur að lík­indum verið ofmetin. Frekari nið­ur­staðna úr rann­sóknum er beðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár