Hvað verður um póstinn?

Árs­skýrsla Postnord er svört, skýrsla danska hlut­ans biksvört. Allt eigið fé danska hlut­ans er uppurið og tapið á síð­asta ári nam einum og hálfum millj­arði danskra króna (tæpum 24 millj­örðum íslenskum). Danski pen­inga­kass­inn er tómur.

Í sam­fé­lagi nútím­ans er margt talið svo sjálf­sagt að dags­dag­lega leiða fæstir að því hug­ann að ekki sé allt sjálf­gefið. Vatnið, kalt eða heitt eftir atvikum, bunar úr kran­anum, það er ylur á ofn­unum, ljósin kvikna þegar ýtt er á slökkvar­ann og kaffi­vélin malar. Blaðið kemur inn um lúg­una og það gerir póst­ur­inn líka, oftar en ekki hinn svo­nefndi glugga­póstur (reikn­ingar) sem vekur mis­jafnan fögnuð við­tak­and­ans.

En ekki er allt sjálf­gefið. Þetta sem hér hefur verið nefnt kostar pen­inga, jafn­vel mikla pen­inga. Ef við borgum ekki raf­magnið og hita­veit­una endar það með að ljósið kviknar ekki, kaffi­vélin murrar ekki og ofn­arnir kólna. Þetta vita allir. En hvað ger­ist ef póst­ur­inn kemur ekki? Þetta er spurn­ing sem margir Danir spyrja sig þessa dag­ana og ekki að ástæðu­lausu. Og vita ekki svarið. Danska póst­þjón­ustan er komin í þrot og eng­inn veit hvert fram­haldið verður.

Aldagömul saga

Saga dönsku póst­þjón­ust­unnar hófst fyrir tæpum fjögur hund­ruð árum, á aðfanga­dag árið 1624 sendi sá mikli athafna­kóngur Kristján IV út til­skipun um póst­þjón­ustu. Kóng­ur­inn skip­aði jafn­framt póst­meist­ara sem skyldi tvo tíma dag­lega vera til staðar í versl­unar- og við­skipta­hús­inu Børsen sem þá var nýbyggt á Hall­ar­hólm­anum. Starf­semi pósts­ins jókst svo jafnt og þétt, starfs­fólki og póst­húsum fjölg­aði hægt og rólega. Um alda­mótin 1700 ákveðið var að rautt og gult, litir gömlu kon­ungs­fjöl­skyld­unnar, Ald­in­borgar­anna, skyldu vera ein­kenn­i­slitir pósts­ins. Allir Danir þekkja þessa liti og hinn sér­staki rauði litur er í Danmörku nefndur póst­kass­a­r­auður.

Frímerkin, götuheitin, járnbrautarlestirnar og bílarnir

Dönsk frí­merki litu dags­ins ljós árið 1851, að erlendri fyr­ir­mynd. Haustið 1859 var ákveðið að öll hús í Kaup­manna­höfn skyldu fá sér­stakt hús­númer. Þetta auð­veld­aði póst­mönnum störfin, nú þurfti ekki lengur að skrifa „þriðja húsi frá horni“ eða „gula hús­inu með glugga­lausu úti­hurð­inni“ til að auð­kenna hvert póst­send­ingin ætti að fara. Götu­heitin sjálf eru mun eldri.

Eftir að járn­braut­ar­lest­irnar komu til sög­unnar í Danmörku um og eftir miðja 19. öld­ina urðu þær brátt mik­il­vægur hlekkur í póst­dreif­ing­ar­net­inu. Póst­burð­ar­menn­irnir (starfið var karla­starf) á lands­byggð­inni not­uð­ust framan af við hesta en í Kaup­manna­höfn báru póst­menn­irnir pok­ana sjálfir eða not­uðu kerrur af ýmsu tagi.

Eftir alda­mótin 1900 urðu breyt­ing­arnar meiri og örari. Bílar og reið­hjól urðu helstu hjálpar- og sam­göngu­tæki póst­manna og segja má að þannig sé það enn í dag.

Póst­ur­inn hefur frá upp­hafi gegnt mik­il­vægu hlut­verki í dönsku sam­fé­lagi. Einka­rétt­inum á dreif­ingu bréfa og böggla, sem póst­ur­inn hafði frá upp­hafi fylgdu líka skyldur og þannig er það enn. Allir lands­menn fengju póst­inn heim til sín, eða í póst­kassa við hliðið. Þessari þjón­ustu yrðu allir að geta treyst og kveðið var á um hve oft pósti skyldi dreift.

Póstnúmerin

1967 var fram­faraár í póst­þjón­ust­unni. Það ár voru póst­núm­erin inn­leidd. Hljómar kannski sem ein­falt og sjálf­sagt en skipti póst­þjón­ust­una afar miklu máli. Póst­núm­erin gerðu alla flokk­un­ar­vinnu miklu ein­fald­ari en áður í landi þar sem margir staðir, í sitt hverjum lands­hluta bera sama nafnið. Þegar núm­erin voru komin til sög­unnar lék eng­inn vafi á hvort mót­tak­andi bréfs byggi í Svenstrup á Jótlandi eða Svenstrup á Sjálandi. Póst­núm­erið sagði til um hvert bréfið skyldi fara.

Á árunum eftir 1970 og fram undir síð­ustu alda­mót litu dags­ins ljós fjöl­margar tækni­fram­farir sem gerðu póst­þjón­ust­una skil­virk­ari en áður. „Póstlagt í dag, í hendur við­tak­anda á morgun“ varð vel þekkt slag­orð sem sagði sitt um hve góð og hröð þjón­ustan var orðin.

Breytingar

Árið 1995 urðu umskipti. Einka­réttur pósts­ins á pakka­send­ingum var afnum­inn og við það urðu miklar breyt­ingar á starf­semi þess­arar gam­al­grónu stofn­unar. Póst­ur­inn var eigi að síður áfram í eigu rík­is­ins en stóð skyndi­lega frammi fyrir sam­keppni, það var nýlunda.

Bréfin undirstaða rekstrarins

Á síð­asta ára­tug lið­innar alda náðu bréfa­send­ingar Dana hámarki. Árið 1999 sendu Danir sam­tals 1.500 millj­ónir bréfa. Síðan þá hefur margt breyst. Tölv­urnar hafa að mestu leyti yfir­tekið sam­skiptin, bréfa­send­ingum hefur fækkað um 70 pró­sent, eru í dag um það bil 460 millj­ónir á ári. Ekki þarf að fara mörgum orðum um að þessi fækkun, rétt­ara sagt hrun, hefur haft gríð­ar­leg áhrif á rekstur pósts­ins.

Postnord

Þótt hrunið í póst­þjón­ust­unni hafi kannski gerst hraðar, og orðið meira en flesta óraði fyrir, er ekki hægt að segja að það hafi með öllu komið á óvart. Fljót­lega upp úr alda­mótum varð ljóst að hefð­bundnar bréfa­send­ingar heyrðu brátt, að tals­verðu leyti, sög­unni til. Þótt danski póst­ur­inn, Post Danmark hafi um það leyti ráð­ist í umfangs­miklar breyt­ingar, með hag­ræði að leið­ar­ljósi, var hrunið í við­skipt­unum (bréfa­póst­inum) meira en nokkurn grun­aði. Þótt Danir væru fljót­ari en margar aðrar þjóðir að til­einka sér tölvu­tækn­ina í sam­skiptum og bréfa­send­ingum voru tölv­urnar alls staðar að taka yfir.

Árið 2009 gengu danska og sænska póst­þjón­ustan í eina sæng, Postnord. Svíar eiga 60 pró­sent og Danir 40 pró­sent. Þetta var gert til að styrkja rekst­ur­inn í breyttum heimi póst­send­inga. Margir Danir voru mjög and­snúnir þess­ari sam­ein­ingu, and­staðan var minni í Svíþjóð.

Hærra verð en lakari þjónusta

Þrátt fyrir sam­ein­ing­una við sænsku póst­þjón­ust­una juk­ust erf­ið­leikar Postnord Danmark, danska hluta fyr­ir­tæk­is­ins. Á allra síð­ustu árum hefur verið gripið til marg­hátt­aðra aðgerða til að rétta rekst­ur­inn af. Verð á bréfa- og pakka­send­ingum hefur hækkað mikið, póst­dreif­ingu á laug­ar­dögum hefur verið hætt. Ekki er lengur hægt að tryggja að bréf ber­ist til við­tak­anda dag­inn eftir að það er póst­lagt nema gegn marg­földu gjaldi almenns bréfs. Hvað eftir annað hefur verið gripið til upp­sagna; í mars næst­kom­andi missa rúm­lega fimm hund­ruð vinn­una, og áfram­hald­andi upp­sagnir blasa við. Starfs­menn Postnord Danmark eru nú um tíu þús­und, árið 2011 voru þeir fimmtán þús­und. Póst­húsum hefur verið lokað og póst­af­greiðslur fluttar inn í versl­anir í því skyni að draga úr kostn­aði. Allt hefur komið fyrir ekki, tap­rekst­ur­inn heldur áfram.

Allt eigið fé uppurið

Fyrir nokkrum dögum var birt árs­upp­gjör Postnord, bæði danska hlut­ans og þess sænska. Rekstur sænska hlut­ans gengur þokka­lega og í árs­skýrsl­unni kom fram að Svíar, sem eru um það bil helm­ingi fleiri en Danir, senda fimm bréf á móti hverju einu hjá Dönum. Þarna vegur þungt að Svíar geta valið hvort þeir fái opin­berar send­ingar í hefð­bundnu bréfi eða með tölvu­pósti, í Danmörku fara allar slíkar send­ingar um netið.

Árs­skýrsla Postnord er svört, skýrsla danska hlut­ans biksvört. Allt eigið fé danska hlut­ans er uppurið og tapið á síð­asta ári nam einum og hálfum millj­arði danskra króna (tæpum 24 millj­örðum íslenskum). Danski pen­inga­kass­inn er tómur.

Svíar ósáttir við að bera danskt tap

Þótt rekstur Postnord skipt­ist í tvo hluta, danskan og sænskan, er þó eigi að síður um að ræða eitt fyr­ir­tæki. Í Svíþjóð eru háværar raddir sem krefj­ast þess að rekst­ur­inn verði algjör­lega aðskil­inn, með því móti beri Svíar ekki ábyrgð á rekstr­inum í Danmörku. Sænskir fjöl­miðlar hafa meðal ann­ars talað um það fyr­ir­komu­lag hjá Dönum að þar er þriðj­ungur starfs­manna pósts­ins emb­ætt­is­menn. Sem þýðir að sé starf við­kom­andi lagt niður eru honum tryggð laun í þrjú ár. „Galið fyr­ir­komu­lag” sagði eitt sænsku blað­anna og margir tóku undir.

Hvað verður um danska póstinn?

Svarið við þess­ari spurn­ingu veit eng­inn. Ljóst virð­ist að ekki verður lengra gengið í fækkun starfs­manna og stór­hækkað verð á þjón­ust­unni, einn gang­inn enn, myndi mæta mik­illi and­stöðu. Svíar sem eiga meiri­hluta í Postnord virð­ast ekki spenntir fyrir að bera tapið á þjón­ust­unni í Danmörku.

Yfir­stjórn Postnord Danmark vinnur nú að til­lögum og áætl­unum sem vænt­an­lega koma til kasta danska þings­ins á næstu vikum og mán­uðum. Danskir stjórn­mála­menn hafa verið var­kárir í orðum, þeir hafa lýst undrun sinni og áhyggjum yfir því hvernig komið er. Þeir segja allir sem einn að lausnin sé ekki aug­ljós en hana verði að finna, málið þoli enga bið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pósturinn

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár