Útlendingastofnun vinnur að því að staðfesta uppruna flóttamanna sem áttu að koma í fyrra

Af þeim 100 kvótaflótta­mönnum sem íslensk stjórn­völd höfðu greint frá opin­ber­lega að til stæði að taka á móti á Íslandi árið 2020 er eng­inn kom­inn. Unnið er að því að stað­festa upp­runa 15 ein­stak­linga sem Ísland á að taka við.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Grísk stjórn­völd hafa sent inn beiðni um að Ísland taki við 15 ein­stak­lingum, barna­fjöl­skyldum frá Sýrlandi sem eru stað­sett í Lesbos á Grikk­landi, og er Útlend­inga­stofnun nú að vinna í því í sam­ráði við grísk stjórn­völd að stað­festa upp­runa ein­stak­ling­anna. Þegar sú stað­fest­ing liggur fyrir verður haf­ist handa við að und­ir­búa fjöl­skyld­urnar undir flutn­ing til Íslands í sam­starfi við Alþjóð­legu fólks­flutn­inga­stofn­un­ina (IOM).

Þetta kemur fram í svari Ásmundar Einars Daða­sonar, félags- og barna­mála­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar. Rósa Björk spurði ráð­herr­ann um hvort það lægi fyrir hvenær flótta­fólkið sem rík­is­stjórnin sam­þykkti í lok sept­em­ber 2020 að taka á móti frá Lesbos á Grikk­landi og bjó áður í flótta­manna­búð­unum Moria sem eyðilögð­ust í elds­voða, væri vænt­an­legt til lands­ins.

Samþykkt að taka við fleirum mánuðum eftir að COVID-19 hófst

Rík­­is­­stjórn Íslands sam­­þykkti þann 25. sept­­em­ber síð­­ast­lið­inn að Ísland tæki á móti flótta­­fólki frá Lesbos á Grikk­landi, með áherslu á sýr­­lenskar fjöl­­skyldur í við­­kvæmri stöðu. Fram kom í til­­kynn­ingu á vef Stjórn­­­ar­ráðs­ins að fjöl­­skyld­­urnar hefðu áður búið í flótta­­manna­­búð­unum Moria sem eyðilögð­ust í elds­voða fyrr í mán­uð­in­­um.

Í til­­kynn­ingu stjórn­­­valda frá því í sept­­em­ber sagði að flótta­­fólkið frá Lesbos, sem yrði allt að 15 manns, myndi bæt­­ast í hóp þeirra 85 sem rík­­is­­stjórnin hygð­ist taka á móti á þessu ári og væri það lang­­fjöl­­menn­asta mót­­taka flótta­­fólks á einu ári hingað til lands.

[adspot]„Flótta­­manna­­nefnd mun ann­­ast und­ir­­bún­­ing á mót­­töku fjöl­­skyldn­anna og verður mót­­taka þeirra unnin í sam­vinnu við Evr­­ópu­­sam­­bandið og grísk stjórn­­völd. Evr­­ópu­­sam­­bandið hafði áður sent frá sér ákall um nauð­­syn á flutn­ingi barna og barna­­fjöl­­skyldna vegna bruna Moria flótta­­manna­­búð­anna. Þá mun Flótta­­manna­­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna vera íslenskum stjórn­­völdum innan handar varð­andi það hvernig best verður staðið að því að koma fjöl­­skyld­unum til lands­ins,“ sagði í til­­kynn­ing­unni.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði á sínum tíma að rík­is­stjórnin vildi bregð­ast við ákalli því sem borist hefði um að taka á móti fólki á flótta frá Lesbos. „Hér á landi hefur skap­ast umfangs­mikil og dýr­mæt þekk­ing þegar kemur að mót­töku sýr­lenskra fjöl­skyldna og sú reynsla okkar kemur að góðum not­um. Það er stefna rík­is­stjórn­ar­innar að taka á móti fleira flótta­fólki í sam­starfi við Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna sem lýst hefur ánægju með mót­töku flótta­fólks hér á land­i.“

Áttu að vera 100 en urðu núll

Þegar Kjarninn spurð­ist fyrir um það í febr­úar síð­ast­liðnum hversu margir þeirra 100 sem stjórn­völd höfðu til­kynnt opin­ber­lega að tekið yrði á móti í fyrra væru komnir hingað til lands var svar félags- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins það að ekki hafi verið mögu­legt að taka á móti kvótaflótta­fólki á síð­asta ári vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Það væri hins vegar unnið „hörðum höndum að því að taka á móti hópnum á fyrri hluta þessa árs“.

Á árinu 2019 var tekið á móti 74 flótta­­mönnum á Íslandi, en fram kom fréttum í lok árs­ins að íslensk stjórn­­völd myndu bjóð­­ast til að taka á móti 85 manns. Einkum væri um að ræða Sýr­­lend­inga og hópa við­­kvæmra flótta­­manna vegna kyn­­ferðis eða fjöl­s­kyld­u­að­­stæðna frá Ken­ía.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár