Farið fram á lögfestingu aðgerða gegn kennitöluflakki

Í lífs­kjara­samn­ingum aðila vinnu­mark­að­ar­ins er farið fram á að stjórn­völd ráð­ist í aðgerðir til að stuðla að heil­brigð­ara atvinnu­lífi.

Ein­stak­lingar geta verið úrskurð­aðir í allt að þriggja ára atvinnu­rekstr­ar­bann, séu þeir fundnir sekir um brot gegn 262. grein almennra hegn­ing­ar­laga. Þetta kemur fram í frum­varpi Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur sem legið hefur fyrir í Sam­ráðs­gátt­inni frá 22. mars síð­ast­liðnum.

Frum­varpið er ein af þeim aðgerðum stjórn­valda sem taldar eru til stuðn­ings hinum svoköll­uðu lífs­kjara­samn­ingum sem aðilar vinnu­mark­að­ar­ins skrif­uðu undir í síð­ustu viku. Í aðgerð­ar­pakka stjórn­valda kemur fram skuld­bind­ing um að ráð­ast gegn kenni­tölu­flakki.

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) og Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) hafa áður farið fram á að farið verði í aðgerðir gegn kenni­tölu­flakki en í kynn­ingu sam­tak­anna frá 2017 lögðu þau meðal ann­ars til að hægt yrði að banna ein­stak­lingum tíma­bundið að koma að rekstri félaga með tak­mark­aða ábyrgð. Þá lögðu þau til að heim­ild ráð­herra til að slíta félögum yrði færð frá ráð­herra til rík­is­skatt­stjóra, auk þess sem rík­is­skatt­stjóra yrði falið að úrskurða um atvinnu­rekstr­ar­bann.

Tillögur ASÍ og SA of íþyngjandi

Í frum­varpi Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur, eru til­lög­urnar hins­vegar sagðar falla illa að lög­bundnu hlut­verki rík­is­skatt­stjóra að taka slíka ákvörðun. Samkvæmt frum­varp­inu yrði það í höndum dóm­stóla að úrskurða ein­stak­linga sem gerst hafa brot­legir við 262. grein almennra hegn­ing­ar­laga í tíma­bundið atvinnu­rekstr­ar­bann. Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu er það sagt falla betur að almennri máls­með­ferð á Íslandi, auk þess sem rík­is­stjórn­inni þykir til­lögur ASÍ og SA of íþyngj­andi. Því var atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu falið í sam­vinnu við dóms­mála­ráðu­neytið og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið að skoða hvort hægt væri að útfæra til­lögur sam­tak­anna á annan hátt.

ASÍ og SA skil­uðu sam­eig­in­legri umsögn um frum­varpið. Þau telja frum­varpið ekki ganga nægi­lega langt og telja það far­sælla að heim­ild til að svipta ein­stak­linga atvinnu­rekstr­ar­heim­ild sé ekki bundin við saka­mál. Slík heim­ild hefur meðal ann­ars verið lög­fest í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Samtökin segja að ein af ástæðum þess að ekki hafi náðst við­un­andi árangur í bar­átt­unni gegn kenni­tölu­flakki sé hve erfitt sé að færa sönnur á refsi­verða hátt­semi. Í saka­málum geti einnig liðið langur tími frá því að brot er framið og þar til dómur fellur.

Fagna breytingum á gjaldþrotalögum

Samtökin fagna því þó að vinna sé hafin innan rík­is­stjórn­ar­innar við breyt­ingar á gjald­þrota­lögum sem ætlað er að skapa kröfu­höfum og sam­fé­lag­inu betri vernd. Þá fagna þau því einnig að 262. grein almennra hegn­ing­ar­laga nái einnig til skyldu­trygg­inga líf­eyr­is­rétt­inda þar sem í dag hafi það engar laga­legar afleið­ingar að skilja líf­eyr­is­ið­gjöld eftir í eigna­laus búi.

Samkvæmt kynn­ingu ASÍ og SA frá 2017 töldu 75% fyr­ir­tækja árið 2005 sig hafa orðið fyrir tjóni af völdum kenni­tölu­flakks. Þar kemur einnig fram að þau telja skort á þekk­ingu vera hluta vand­ans og leggja til að stjórn­völd og aðilar vinnu­mark­að­ar­ins vinni sam­eig­in­lega að „upp­bygg­ing­ar­legri fræðslu”.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár