Meirihluti mundi vilja rafrænar kosningar – Ótímabært segir Pírati

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Birgir Þór

Mikill meiri­hluti myndi kjósa raf­rænt í kosn­ingum um for­seta Íslands ef það væri í boði eða 79,7 pró­sent þeirra sem taka afstöðu í könnun Fréttal­baðs­ins sem gerð var á mánu­dag­inn. Frá þessu er greint í blað­inu í dag. Nokkur munur er á svörum yngra fólks og eldra.

Tæplega 90 pró­sent þeirra svar­enda sem eru á aldr­inum 18 til 49 ára myndu kjósa með raf­rænum hætti miðað við tæp­lega 70 pró­sent þeirra sem eru eldri en 50 ára, sam­kvæmt könn­un­inni.

Píratar hafa talað fyrir auk­inni raf­rænni þátt­töku almenn­ings í ákvörð­unum stjórn­valda. Til­raunir með þetta eru þegar hafnar í kosn­ingum um ákvarð­anir ein­stakra flokka. Þannig hefur for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar verið kos­inn í raf­rænni kosn­ingu á lands­fundi flokks­ins und­an­farin ár og á aðal­fundi Pírata sem fram fór á dög­unum var kosið um ein­staka mál á raf­rænan hátt.

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, segir hins vegar ótíma­bært að kjósa um mik­il­væg mál eins og í for­seta­kjöri á raf­rænan hátt. Til þess sé tæknin ekki orðin nógu öflug og of margir óvissu­þættir ríki enn um það hvernig kjós­andi hegðar sér í slíkri kosn­ingu. Ákvörðun um fókn­ari mál eigi því enn heima í kjör­klef­anum.

„Einfalt dæmi sem varðar kosn­inga­leynd í inter­net­kosn­ingum er að þú getur ekki treyst því að kjós­and­inn sé einn þegar hann situr fyrir fram tölv­una,“ er haft eftir Helga Hrafni í Frétta­blað­inu. „Og þá þarf að vega og meta hvað er heppi­legt og við hvaða aðstæður.“

„Málið snýst ekki bara um að skrifa eitt­hvað for­rit og skella því á netið og þá er komið eitt­hvað raf­rænt lýð­ræði. Þetta er miklu flókn­ara en það,“ er haft eftir Helga Hrafni.

Heimild er í sveit­ar­stjórn­ar­lögum um raf­rænar íbúa­kosn­ingar sem hefur verið notuð tvisvar; einu sinni í Ölfusi 2015 þar sem kann­aður var vilji íbúa um sveit­ar­fé­lags­ins við önnur sveit­ar­fé­lög og eitt sinn í Reykja­nesbæ sama ár þar sem greidd voru atkvæði um breyt­ingar á deiliskipu­lagi í Helguvík vegna upp­bygg­ingar kís­il­vers þar.

Hlutfall þeirra sem tóku afstöðu til spurn­ing­ar­innar í könnun Frétta­blaðs­ins var 93,2 pró­sent. Haft var sam­band við 926 manns og náð­ist í 802 í könn­un­inni og svar­hlut­fallið því 86,6 pró­sent. Spurn­ing­inn hljóð­aði svo: „Myndir þú kjósa for­seta Íslands með raf­rænum hætti, væri sá mögu­leiki til staðar?“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár