Parísarsamkomulagið í uppnámi eftir kjör Trumps

Óvissa er um alþjóð­legt sam­komu­lag um lofts­lags­mál eftir að Donald Trump var kjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna.

Donald Trump hefur meðal annars kallað hlýnun jarðar „kínverskt gabb“.
Donald Trump hefur meðal ann­ars kallað hlýnun jarðar „kín­verskt gabb“. Mynd: EPA

Par­ís­ar­sam­komu­lagið um ástand lofts­lags jarðar er í upp­námi eftir að Donald Trump var kjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna á þriðju­dag. Samn­ing­ur­inn sem gerður var í París fyrir tæpu ári síðan á lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna tók gildi fyrir fáeinum vikum síðan, þegar þau lönd sem bera sam­an­lagða ábyrgð á 55 pró­sent af útblæstri mann­kyns höfðu inn­leitt samn­ing­inn. Banda­ríkin og Kína mynd­uðu banda­lag um að inn­leiða samn­ing­inn og var þá lyk­il­þáttur í því að sam­an­lögð ábyrgð meng­ara heims­ins næði 55 pró­sentum.

Banda­ríkja­þing undir stjórn Repúblik­ana hefur hins vegar lagst gegn lofts­lags­sam­komu­lag­inu svo Barack Obama, frá­far­andi for­seti Banda­ríkj­anna, þurfti að gefa út for­seta­til­skipun til þess að sam­þykkja Par­ís­ar­sam­komu­lagið. Donald Trump hefur heitið því að fella úr gildi allar for­seta­til­skip­anir Obama og leggja þannig arf­leið hans sem for­seta í rúst.

Árleg lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna er nú haldin í Marra­kesh í Marokkó. Ráð­stefnan hófst á mánu­dag­inn og á að fjalla um inn­leið­ingu Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins og hver næstu skref skuli vera. Strax á þriðja degi ráð­stefn­unnar er dag­skráin hins vegar í upp­námi. Fjöl­miðlar greina frá því að á göngum ráð­stefnu­hall­ar­innar reyni gest­irnir að grípa í öll strá vonar sem finn­ast. Það sem flestir reyna að sann­færa sig um er að Trump er, þegar öllu er á botn­inn hvolft, ósam­kvæmur sjálfum sér í nær öllu sem hann hefur sagt og vart stendur steinn yfir steini í máli hans. Þar til hægt verður að færa sönnur á annað er lögð áhersla á von­ina um að nýkjör­inn for­seti sé umhverf­is­vænni en hann seg­ist vera.

Meiri kol og meira gas!

Í maí sagði Trump á fram­boðs­fundi um orku­mál að hann mundi ógilda und­ir­ritun Banda­ríkj­anna við Par­ís­ar­samn­ing­inn. „Allar reglu­gerðir sem eru úreltar, óþarfar, slæmar fyrir vinn­andi menn eða standa gegn hags­munum þjóð­ar­innar verða afnumdar og lagðar að öllu leyti niður,“ lét Trump hafa eftir sér. Um leiða kall­aði hann eftir því að fleiri bor­holur yrðu gerðar eftir olíu og að (hin mjög svo umdeilda) Keystone XL-olíu­leiðslan yrði lögð frá tjörusönd­unum í Kanada til Banda­ríkj­anna. Obama neit­aði að sam­þykkja olíu­leiðsl­una, enda stuðlar hún að frek­ari olíu­námum í Kanada.

Donald Trump hefur haft mörg orð um lofts­lags­mál og öll kasta þau rýrð á það að hlýnun jarðar sé raun­veru­lega af manna­völdum. Hann hefur sagt hlýnun jarðar vera kín­verskt gabb.

Hann hefur sagst ætla að afnema reglu­gerðir um nátt­úru­vernd, afnema allan alrík­is­kostnað við hreina orku – þar á meðal rann­sókna- og þró­un­ar­kostnað við beislun vind­orku, sól­ar­orku og raf­knúna bíla.

Ef Trump var alvara með þessar yfir­lýs­ingar sínar er ljóst að Banda­ríkin munu brenna mun meira af kolum, menga mun meira og útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda þaðan mun aukast veru­lega. Það hafa raunar verið gerð líkön af því hver áhrif stefnu Trumps verði í sam­an­burði við stefnu Hillary Clinton í lofts­lags­málum.

Þátttaka helstu iðnríkja mikilvæg

Áhyggjur þeirra sem fylgst hafa með til­urð Par­ís­ar­samn­ings­ins eru ekki aðeins að Banda­ríkin muni hætta við öll loft­sags­á­form sín, heldur einnig hvað banda­lags­ríkin gera í kjöl­farið. Spurn­ingar eins og „mun Kína standa vörð um lofts­lags­sam­komu­lagið?“ hafa vaknað. Í ljósi sög­unnar er stuðn­ingur Banda­ríkj­anna við sam­komu­lög á borð við þetta mjög mik­il­vægur. Hvað varðar lofts­lags­málin þá ber helst að nefna Kýótósátt­mál­ann sem Banda­ríkin unnu að í sam­vinnu við flest ríki heims en tóku á end­anum ekki þátt í vegna and­stöðu heima í Washington. Þá hættu önnur stór iðn­ríki við þátt­töku, meðal ann­ars vegna þess að Banda­ríkin lögðu ekki sitt af mörkum.

Full­trúar smá­þjóða sem víst er að munu eiga undir högg að sækja vegna hlýn­unar jarðar hafa lýst von­brigðum sínum með kjör Donalds Trump. Hilda Heine, for­seti Marshall-eyja, benti á að hlýnun jarðar væri einnig ógn við Banda­ríkin. „Ég geri ráð fyrir að Trump átti sig á að lofts­lags­breyt­ingar eru ógn við hans þjóð eins og þær eru ógn við allar þjóðir sem deila haf­inu. Ég hlakka til að sjá Trump takast á við þær áskor­anir sem fylgja því að tryggja öryggi þjóðar sinnar,“ segir hún.

Segolene Royale, umhverf­is­ráð­herra Frakk­lands, hefur hins vegar bent á að Banda­ríkin geti ekki auð­veld­lega sagt sig frá lofts­lags­mark­miðum sínum. Par­ís­ar­samn­ing­ur­inn bindi aðild­ar­ríkin í að minnsta kosti þrjú ár auk þess að upp­sagn­ar­frest­ur­inn er eitt ár. Það munu því líða fjögur ár áður en Banda­ríkin geta sagt skilið við skuld­bind­ingar sínar.

Á lofts­lags­ráð­stefn­unni í Marra­kesh hafa þeir sem vilja láta í sér heyra bent á það sama; Par­ís­ar­samn­ing­ur­inn hefur þegar tekið gildi og það gæti verið flókið fyrir stjórn Repúblik­ana undir for­ystu Trump að tæta samn­ing­inn í sundur.

Hags­muna­að­ilar hafa einnig látið í sér heyra. For­svars­maður 350.org, May Boeve, segir að nýi for­set­inn verði að vernda þjóð sína gegn lofts­lags­hörm­ungum. „Engar per­sónu­legar skoð­anir eða póli­tískir hags­munir geta breytt þeim kalda raun­veru­leika að hver ný olíu­bor­hola og hver ný gasleiðsla færir okkur nær nátt­úru­hörm­ungum.“

Thoriq Ibrahim, orku­mála­ráð­herra Maldíveyja og for­maður Samtaka smárra eyríkja, segir að helsta verk­efni Trump sé að takast á við lofts­lags­málin. „Í síð­asta mán­uði – í fyrsta sinn í sög­unni – tóku end­ur­nýj­an­legir orku­gjafar fram úr jarð­efna­elds­neyti hvað varðar raf­orku­fram­leiðslu í heim­inum. Banda­ríkin hafa leitt þessa tækni­bylt­ingu og getur haldið áfram að skapa störf og tæki­færi í þessum geira,“ sagði hann.

Íslensk stjórnvöld taka ekki afstöðu að svo stöddu

Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra segir í sam­tali við Kjarnann að íslensk stjórn­völd muni ekki aðhaf­ast fyrr en það skýrist betur hver stefna Trump-stjórn­ar­innar verður. Ótíma­bært sé að draga álykt­anir um slíkt nú, enda kvað við annan tón í sig­ur­ræðu hans í nótt miðað við orð Trump í kosn­inga­bar­átt­unni. Það eigi við um utan­rík­is­mál sem og lofts­lags­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár