Harðort bréf um lögreglustjórann

Lands­sam­band lög­reglu­manna hefur áhyggjur af heilsu starfs­manna og áhrifum á starf­semi lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna fjölda til­fella ein­eltis, sem lands­sam­bandið tengir við Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur lög­reglu­stjóra. Yfir­lýs­ingar þess stang­ast á við orð lög­reglu­stjór­ans.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir
Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir Telur að rétti far­veg­ur­inn fyrir ein­elt­is­mál sé fagráð lög­regl­unnar, en ekki inn­an­rík­is­ráðu­neytið. Mynd: Pressphotos.biz

Í bréfi Lands­sam­bands lög­reglu­manna til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, sem Stundin hefur undir höndum, kemur fram að stétt­ar­fé­lag lög­reglu­manna ótt­ast um heilsu tuga starfs­manna Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna ein­eltis af hálfu lög­reglu­stjór­ans Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur. Fram kemur í bréf­inu að „á bil­inu 20 til 30 lög­reglu­menn og reyndar aðrir starfs­menn emb­ættis lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa allt frá árinu 2015 leitað til LL og lýst stöðu sinni og erf­ið­leikum sem þeir hafa upp­lifað í kjöl­far ein­eltis af hálfu lög­reglu­stjóra og vinnu­bragða hennar og fram­komu.“

Félagið fellir harð­orðan áfell­is­dóm yfir lög­reglu­stjór­anum í bréf­inu til ráðu­neyt­is­ins sem barst í lok síð­asta árs. Ráðu­neytið hefur hins vegar ekki brugð­ist við.

Starfsmenn sagðir óttast lögreglustjórann

Bréf Lands­sam­bands­ins til inn­an­rík­is­ráð­herra hefst á orð­unum: „Á und­an­förnum miss­erum hefur fjöldi lög­reglu­manna og ann­arra starfs­manna emb­ætt­is­lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu leitað til Lands­sam­bands lög­reglu­manna vegna hátt­semi og vinnu­bragða Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur lög­reglu­stjóra, sem að mati LL falla undir skil­grein­ingu ein­eltis.“ 

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár