Ragnheiður Elín og tveir Merðir í stjórn RÚV

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir fyrr­ver­andi iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks er á meðal þriggja nýrra aðal­manna sem Alþingi til­nefnir í stjórn Rík­is­út­varps­ins næsta árið. Þar eru líka tveir af þeim fimm mönnum á Íslandi sem heita Mörður.

Ragnheiður Elín Árnadóttir tekur nú sæti í stjórn Ríkisútvarpsins.
Ragn­heiður Elín Árna­dóttir tekur nú sæti í stjórn Rík­is­út­varps­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alþingi til­nefndi í dag níu aðal­menn og níu vara­menn í stjórn Rík­is­út­varps­ins. Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, Marta Guðrún Jóhann­es­dóttir og Mörður Áslaug­ar­son koma ný inn sem aðal­menn í stjórn­inni.

Til við­bótar bæt­ist svo einn stjórn­ar­maður og annar til vara sem til­nefndir eru af hálfu starfs­manna­sam­taka Rík­is­út­varps­ins, en stjórn RÚV er form­lega kosin á aðal­fundi sem fram fer í apríl hvert ár.

Ragn­heiður Elín sat á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn frá 2007 til 2016 og gegndi emb­ætti iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra frá 2013 til 2017, en hún ákvað að hætta í stjórn­málum eftir að Páll Magn­ús­son skák­aði henni í próf­kjöri flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi fyrir kosn­ing­arnar 2016.

Athygl­is­vert er að með til­komu Marðar Áslaug­ar­sonar í stjórn RÚV sitja tveir karlar sem bera nafnið Mörður saman í stjórn Rík­is­út­varps­ins, en fyrir var þar á fleti Mörður Árnason. Samkvæmt Þjóðskrá bera ein­ungis fimm karlar á Íslandi nafnið sem fyrsta eig­in­nafn.

Stjórn RÚV fer með með æðsta vald í mál­efnum þess á milli aðal­funda. Stjórnin ber ábyrgð á rekstri RÚV og að farið sé eftir lögum um Rík­is­út­varpið, að sam­þykktir þess og ákvæði samn­ings um fjöl­miðlun í almanna­þágu séu upp­fyllt.

Fulltrúar Alþingis í stjórn RÚV næsta árið

Aðal­menn:

  • Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir
  • Jón Ólafs­son
  • Brynj­ólf­ur Stef­áns­son
  • Marta Guðrún Jó­hann­es­dótt­ir
  • Jó­hanna Hreiðars­dótt­ir
  • Guðlaug­ur G. Sverris­son
  • Mörður Árna­son
  • Mörður Áslaug­ar­son
  • Björn Gunn­ar Ólafs­son

Vara­menn:

  • Sjöfn Þórð­ar­dótt­ir
  • Bragi Guðmunds­son
  • Jón Jóns­son
  • Dorot­hée Kirch
  • Jón Skúla­son
  • Sig­ríður Val­dís Berg­vins­dótt­ir
  • Mar­grét Tryggva­dótt­ir
  • Krist­ín Amal­ía Atla­dótt­ir
  • Kolfinna Tóm­as­dótt­ir
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár