Nexpo 2015: Atli Fannar er vefhetja ársins

Atli Fannar Bjarka­son, rist­jóri Nútímans, er vef­hetja árs­ins 2015 á Nexpo verð­laun­unum sem haldin var í kvöld. Verð­launin voru veitt í Bíó Paradís við hátíð­lega athöfn. Vef- og mark­aðs­fólk var í fyr­ir­rúmi á Nexpo í ár, en því til við­bótar var lögð sér­stök áhersla á nýsköpun á Íslandi.

Að því til­efni voru veitt verð­laun í tveimur nýjum verð­launa­flokkum. Sprota­fyr­ir­tæki árs­ins var valið og besti mark­aðsár­angur sprota­fyr­ir­tækis sömu­leiðis. QuizUp-fyr­ir­tækið Plain Vanilla vann í flokk­unum sprota­fyr­ir­tæki árs­ins og Meniga í flokknum besti mark­aðsár­angur sprota­fyr­ir­tækis.

Lesendum Kjarnans gafst kostur á að kjósa um fimm til­nefn­ingar í átta flokkum hér á vefnum í lið­inni viku. Áður hafði net­verjum gef­ist kostur á að til­nefna þá sem þeim þótti skara framúr á liðnu ári. Sérstök dóm­nefnd tók þá við til­nefn­ing­unum og valdi þá fimm sem þóttu eiga verð­launin skilið.

Verðlaunahafar Nexpo 2015


Vefhetja árs­ins er Atli Fannar Bjarka­son. Honum einum tókst að koma nýjum fjöl­miðli í loftið sem er ætl­aður fyrir ungt fólk. Nútíminn fór í loftið 25. ágúst 2014 og hefur sprungið út síðan.

App árs­ins er Strætó appið frá Strætó BS. Gamla appið var ræki­lega tekið í gegn og útlitið bætt, en helsta við­bótin var greiðslu­mögu­leiki í app­inu. Notendur þurfa ekki lengur að vera með klink eða strætómiða og geta því nýtt snjall­sím­ann til þess að greiða far­gjöld.

Vefur árs­ins er Blær.is. Vefurinn þykir ein­stak­lega vel hann­aður og nýtir nútíma­tækni til þess að birta áhuga­vert efni. Blær virkar á öllum tækjum án þess að efnið líði fyrir það.

Herferð árs­ins er Heim um jólin frá Icelandair, þar sem spilað var á til­finn­ingar áhorf­enda. Ekki var annað hægt en að tár­ast örlítið undir lok aug­lýs­ing­ar­innar.

Verðlaun fyrir staf­rænt mark­aðs­starf árs­ins fékk Nova fyrir Nova Snap. Notkun Nova á nýmiðl­inum Snapchat þykir ein­stak­lega frum­legur, en þar sáu þjóð­kunnir ein­stak­lingar um að skemmta lands­mönnum í stuttum 5-10 sek­úndna mynd­brotum.

Óhefð­bunda aug­lýs­ing árs­ins er Örugg borg frá UN Women á Íslandi. Augýs­ingin sýndi óhugna­legan raun­veru­leika byggðan á reynslu­sögum kvenna um allan heim á nýstár­legan hátt, þar sem áhorf­endur upp­lifðu tvær hliðar sam­tímis með því að tengja snjall­sím­ann við mynd­bandið.

Plain Vanilla vann í flokk­inum sprota­fyr­ir­tæki árs­ins. Plain Vanilla hefur farið sigu­för um heim­inn með ávana­bind­andi app­inu QuizUp og hefur verið í sam­starfi við fyr­ir­tæki eins og Coca-Cola í kringum HM í fót­bolta og HBO í tengslum við Game of Thrones.

Dóm­nefndin valdi svo Meniga fyrir besta mark­aðsár­angur sprota­fyr­ir­tækis. Meniga bætti nýju appi í þjón­ustuflóru sína á árinu og þar sem not­and­inn getur fundið betri kjör í nágrenni sínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár