Þrettán starfsmenn Landspítalans í einangrun

Um helg­ina komu upp smit hjá starfs­mönnum í nokkrum starfsein­ingum Land­spít­ala. Rakning er langt komin og þrettán starfs­menn eru komnir í ein­angrun og nokkur fjöldi starfs­manna og sjúk­linga í sótt­kví.

Þrír sjúk­lingar eru inniliggj­andi á legu­deildum Land­spít­al­ans með COVID-19. 608 eru í eft­ir­liti á COVID-göngu­deild, þar af 62 börn. Í heild eru 13 starfs­menn í ein­angrun, 27 í sótt­kví og 244 í vinnu­sótt­kví og mun þeim fjölga nokkuð í dag.

[adspot]

Skýr­ingin er sú að um helg­ina komu upp smit hjá starfs­mönnum í nokkrum starfsein­ingum spít­al­ans. Rakning er langt komin og enn er eng­inn grunur um smit út frá þessum smitum. Nokkur fjöldi starfs­manna og sjúk­linga fer í sótt­kví, ann­ars vegar sótt­kví A og hins vegar vinnu­sótt­kví. Einnig er ski­mað í kringum þessi smit, segir í til­kynn­ingu frá far­sótt­ar­nefnd spít­al­ans.

[links]Áfram er verið að skoða breytt verk­lag í eld­húsi og mat­sölum varð­andi mat­ar­skömmtun og mat­ar­send­ingar á deildir í ljósi stöð­unnar sem komin er upp í far­aldr­inum og er starfs­fólk Land­spít­al­ans beðið um að gæta ítr­ustu sótt­varna.

71 inn­an­lands­smit greind­ist í gær. Um helm­ingur fólks­ins var í sótt­kví við grein­ingu. Þriðja far­sótt­ar­húsið hefur verið opnað og í morgun voru fimmtán gestir þegar komnir þar inn. Gríð­ar­legt álag er á heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem heldur utan um sýna­tökur enda eft­ir­spurnin orðin gríð­ar­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár