116 óbólusettir greinst á einni viku

Um 64 pró­sent þeirra sem eru með COVID-19 á land­inu eru á aldr­inum 18-39 ára. Flestir sem greinst hafa síð­ustu daga eru bólu­settir en 116 óbólu­settir ein­stak­lingar hafa greinst með veiruna á einni viku.

Meirihluti þjóðarinnar er bólusettur og meirihluti þeirra sem eru að greinast með veiruna er bólusettur.
Meiri­hluti þjóð­ar­innar er bólu­settur og meiri­hluti þeirra sem eru að grein­ast með veiruna er bólu­settur. Mynd: EPA

Um 75 pró­sent þeirra sem greindust með veiruna inn­an­lands í gær eru bólu­sett eða 53 af 71. Sextán af þeim sem greindust voru óbólu­settir. Á einni viku hafa 116 óbólu­settir ein­stak­lingar greinst inn­an­lands. Fram hefur komið að öll til­fellin sem eru að koma upp þessa dag­ana eru af völdum delta-afbrigð­is­ins sem er mun meira smit­andi en þau fyrri.

[adspot]

Rétt rúm­lega helm­ingur þeirra sem greind­ist í gær var í sótt­kví. Samtals eru um 1.800 manns í sótt­kví núna og 612 manns með COVID-19 og í ein­angrun. Mikill meiri­hluti eða 64 pró­sent sýktra eru á aldr­inum 18-39 ára eða sam­tals um 400 ein­stak­lingar. 63 börn yngri en átján ára eru sýkt og flest þeirra eða 29 eru á aldr­inum 6-12 ára.

Mun færri sýni voru tekin í gær en dag­ana á undan eða 2.366 sam­tals inn­an­lands, sam­an­borið við 2.883 á laug­ar­dag og 3.964 á föstu­dag. Mestu munar um fjölda svo­kall­aðra ein­kenna­sýna. Þau voru 2.902 á föstu­dag en 1.567 í gær. Hlutfall jákvæðra ein­kenna­sýna af fjölda slíkra sýna sem tekin voru í gær var 3,9 pró­sent en var 4,6 pró­sent á laug­ar­dag.

Nýgengi inn­an­lands­smita hefur hækkað hratt síð­ustu daga og er nú komið í 154,3 á hverja 100 þús­und íbúa.

Hertar aðgerðir inn­an­lands tóku gildi á mið­nætti á laug­ar­dag. Sett voru á fjölda­tak­mörk að nýju sem og 1 metra nálægð­ar­regla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár