Mynd: Bára Huld Beck

Karnival-stemning út á Granda – Margra ára hugmynd orðin að veruleika

Grandi Mathöll hefur nú göngu sína en mark­miðið með henni er að búa til svo­kall­aða „street-food-menn­ingu“ á Íslandi. Kjarninn leit við í vik­unni sem leið en þá voru iðn­að­ar­menn í óða önn við að klára und­ir­bún­ing fyrir opnun mat­hall­ar­innar.

Grandi Mathöll er stað­sett út á Granda en það er Sjáv­ar­klas­inn sem heldur utan um verk­efnið. Auglýst var eftir umsóknum og sótti gríð­ar­legur fjöldi veit­inga­að­ila um. Mörg hund­ruð umsóknir bár­ust, frá inn­lendum aðilum og erlendum, og úr þeim voru átta valdir til að fá rými. Til við­bótar við þessi átta rými er einn pop-up vag á staðnum en þar gefst frum­kvöðlum tæki­færi til að prófa rétti sína og veit­inga­þjón­ustu án þess að þurfa að leggja í umtals­verðan kostnað við upp­setn­ingu veit­inga­staðar. Hver veit­inga­maður fær 1 til 2 mán­uði til umráða en svo er skipt út og eru reglu­lega nýja veit­inga­menn fengnir til að prófa.

Hver og einn setur upp sinn bás en stað­irnir sem um ræðir eru Fjár­húsið, Fusion Fish & Chips, Kore, Lax, Pop-up vagn, Micro Roast - Vínbar, Rabbar Barinn, The Gastro Truck og Víetnam. Boðið er upp á götu­fæði frá Víetnam og Kóreu, nýja upp­skeru af græn­meti, fisk, kjöt og kaffi og aðra drykki.

„Hver hefur sinn hátt­inn á. Við erum ekk­ert að setja neinar línur eða reglur hvernig lúkkið á að vera. Við viljum frekar að hver komi með sínar hug­myndir sem skilar sér í karni­val-rými,“ segir Franz Gunn­ars­son við­burða­stjóri verk­efn­is­ins. Þannig séu stað­irnir fjöl­breyti­legir.

Franz Gunnarsson viðburðastjóri mathallarinnar.
Franz Gunn­ars­son við­burða­stjóri mat­hall­ar­innar.
Mathöllin opnaði núna um helgina.
Mat­höllin opn­aði núna um helg­ina.

Hugmyndin búin að gerjast lengi

Veit­inga­að­il­arnir sjá um sig og sitt rými en að sögn Franz er mikil sam­vinna á milli þeirra og Sjáv­ar­kla­s­ans. Til að mynda sitji veit­inga­að­il­arnar í mark­aðs­ráði þar sem teknar séu ákvarð­anir um hvernig hlut­unum er háttað o.s.frv. „Hér á ekki bara að vera borðað, heldur á líka að vera líf. Þetta er lítið sam­fé­lag, þar sem allir sitja við sama borð,“ segir Franz.

Hug­myndin er búin að gerj­ast lengi. Aðilar innan Sjáv­ar­kla­s­ans byrj­uðu fyrir 10 árum að stunda mat­hallir víða um Evrópu og ann­ars staðar í heim­inum. Þar sáu þau þessa menn­ingu spretta upp og í fram­hald­inu fædd­ist hug­myndin. Árið 2012 var erindi sent inn til Reykja­vík­ur­borgar varð­andi það að starf­rækja starf­semi sem þessa en að sögn Franz hefur verk­efnið verið í vinnslu síð­ast­liðin fjögur ár. Þannig hafi það verið í gerjum í langan tíma og allt síð­asta ár fram til dags­ins í dag þá hafi verið unnið stað­fast­lega að þessu.

Grandi Mathöll
Grandi Mathöll
Það skipti miklu máli þegar þeir voru valdir, í stað­inn fyrir að opna enn einn ham­borg­ara­stað­inn eða pizzastaðinn sem eru út um allt. Þannig vildum við frekar fá nýja og ferska strauma hérna inn í þetta rými.

Fengnir voru aðilar til að vega og meta umsókn­irnar sem bár­ust. „Leitað var eftir ákveðnu frum­kvæði og nýj­ungum. Og þar sem Sjáv­ar­klas­inn er frum­kvöðla­setur í grunn­inn þá vildum við að stað­irnir myndu rýma við það og þau gildi,“ segir Franz.

Vildu nýja og ferska strauma

Þeir aðilar sem fengu aðstöðu í Granda Mathöll eru að mestu að vinna með íslensk hrá­efni og nýj­ungar í mat­ar­gerð. „Það skipti miklu máli þegar þeir voru valdir, í stað­inn fyrir að opna enn einn ham­borg­ara­stað­inn eða pizzastaðinn sem eru út um allt. Þannig vildum við frekar fá nýja og ferska strauma hérna inn í þetta rými,“ segir hann.

Stað­ur­inn var opn­aður um helg­ina en iðn­að­ar­menn hafa unnið baki brotnu síð­ustu daga og vikur til að klára verkið fyrir opnun. Hátíð hafs­ins er um helg­ina og segir Franz að þau á þessum stað séu svo tengd við hafið að það hafi rímað vel við opn­un­ina.

Nóg var að gera í vikunni við undirbúning.
Nóg var að gera í vik­unni við und­ir­bún­ing.

Ekki bara fiskur

Franz segir að þau hafi verið að leita eftir þess­ari svoköll­uðu „street-food-menn­ingu“. Í því hug­taki liggur að baki mikið frum­kvöðla­starf, að hans sögn. Hann bendir á að lítið hafi verið um slíka menn­ingu hér á landi, þannig að aug­ljós­lega hafi verið vöntun á henni.

Á þró­un­ar­stig­inu komu fram þær hug­myndir að hafa ein­ungis veit­inga­staði með sjáv­ar­fang en svo komust þau að þeirri nið­ur­stöðu að þá væri þetta ekki alvöru mat­höll. „„Street-food-matur“ er þannig að þú ert að fá eitt­hvað út öllum áttum. Við erum auð­vitað með staði sem bjóða upp á fisk­inn en við viljum ekki ein­skorða okkur við það. Við viljum að fleiri komi að borð­inu,“ segir Franz. Til dæmis sé staður hjá þeim sem selur íslenska lamba­kjötið og telur hann að það eigi alveg jafn mikið heima þarna eins og fisk­ur­inn.

„Boðið er upp á góða rétti sem eru samt ekki að kosta af þér hand­legg­inn,“ segir Franz. Hægt er að kíkja við og kaupa nokkra rétti og er mat­höll sem þessi eitt­hvað sem hefur vantað á Íslandi, að hans mati.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár