Heil stétt sem breytist úr þýðendum í yfirlesara

Kristínu Eiríks­dóttur rithöfundi fannst eftirtektar­vert, hvað bókmennta­árið varðaði, að Storytel ætlaði að láta vélar þýða bækur, og séu jafnvel þegar byrjuð á því. Fyrir henni er starf þýðenda listgrein og þýðingarnar sjálfar lífríki.

Kristín Eiríksdóttir
Kristín Eiríks­dóttir Mynd: Hordur Sveinsson

Kristín Eiríks­dóttir rithöfundur gekk hratt um gólf þegar hún heyrði af því að sænska hljóðbóka­fyrirtækið Storytel ætlaði sér að fá vélar, gervi­greind, til að þýða bæku og að íslenski armur þess tæki vel í hugmyndina. Henni fannst fréttirnar svakalegar og stórar. „Það er heil stétt þarna sem breytist úr þýðendum í yfir­lesara fyrir tölvu,“ sagði Kristín í Jólabóka­boði Heimildarinnar. 

Í júní þessa árs birtust fréttir þess efnis að gervi­greindar­raddir til viðbótar „upplesinna mennskra radda bjóðast viðskipta­vinum Storytel innan skamms,“ eins og það var orðað í frétt Ríkis­útvarpsins. Dan Panas, samskipta­stjóri Storytel, sagði í viðtali við frétta­stofu RÚV að gervi­greindar­raddirnar ættu alls ekki að koma í stað þess að „raun­verulegt fólk lesi upp bækurnar“ en að viðbótin þýddi minni framleiðslu­kostnað á hljóð­bókum.

Hann sagði svo að fólk ætti að hafa val um raddir þegar kæmi að hljóð­bókum, og ef mennsk rödd færi í taugarnar á þeim væri sjálfsagt …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Margrét Jónsdóttir skrifaði
    Að nýta sér þá heibrigðisþjónustu sem í boði er, t.d. með því að þiggja bólusetningu til að vernda viðkvæman, dauðlegan mannslíkamann, gera vélar einmitt ekki. Það gerir skynsamt fólk.
    1
  • SÍF
    Sveinn í Felli skrifaði
    Færeyska orðið "vitlíki" lýsir fyrirbærinu mun betur en hið íslenska "gervigreind". Alvöru gervigreind er allt annað.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár