Liverpool-aðdáendur eiga erfiðan HM-dag í vændum

Aðdá­endur enska knatt­spyrnu­liðs­ins Liverpool á Íslandi, sem eru miðað við höfða­tölu, lík­lega flestir í heimi, eiga til­finn­inga­lega erf­iðan HM dag fyrir höndum. Leik­menn­irnir Luis Suarez og Mo Salah mæt­ast nú í hádeg­inu og síðar í dag Ronaldo og Ramos.

Aðdá­endur enska knatt­spyrnu­liðs­ins Liverpool á Íslandi, sem eru miðað við höfða­tölu, lík­lega flestir í heimi, eiga til­finn­inga­lega erf­iðan HM dag fyrir höndum.

Í hádeg­inu mæt­ast liðin Úrúgvæ og Egypta­land en þar fara fyrir sínum liðum leik­menn­irnir Luis Suarez, fyrr­ver­andi fram­herji Liverpool frá Úrúgvæ og Egyptinn og núver­andi fram­herji liðs­ins Mohamed (eða Mo) Salah sem skor­aði 32 mörk fyrir Liverpool á síð­asta tíma­bili.

Suarez, sem nú er leik­maður Barcelona á Spáni spil­aði með Liverpool á árunum 2011 til 2014 og skor­aði 69 mörk fyrir liðið. Hann var sér­lega lit­ríkur sókn­ar­maður og leik­maður almennt og naut mik­illar hylli aðdá­enda þar til hann yfir­gaf lið Bítla­borg­ar­innar. Suarez, sem er frá­bær knatt­spyrnu­maður, hefur í að minnsta kosti þrí­gang bitið mótherja sína á vell­inum, sem honum hefur ítrekað verið refsað fyrir, enda ekki gert ráð fyrir því í reglum knatt­spyrn­unnar að fólk bíti frá sér.

Að auki mæt­ast síðan í síð­asta leik dags­ins stór­liðin Spánn og Portúgal. Þar er aug­ljós­lega stjarnan í liði Portúgal, Cristiano Ronaldo, sem er Íslend­ingum vel kunnur frá Evr­ópu­meist­ara­mót­inu, frá því að honum var „pakkað saman“ af Kára Árnasyni varn­ar­manni íslenska liðs­ins í sögu­legu jafn­tefli lið­anna. Ronaldo hefur upp frá því verið í litlu upp­á­haldi hjá íslenskum fót­boltaunn­endum. Í liði Spánar fer hins vegar fyrir sínum mönnum í varn­ar­múr­num leik­maður Real Madrid, Sergio Ramos. Flestir heitir stuðn­ings­menn Liverpool eru Ramos enn mjög reiðir eftir úrslita­leik Meist­ara­deild­ar­innar frá því í maí þar sem Salah meidd­ist illa á öxl­inni eftir að hafa lent harka­lega á henni þegar Ramos tog­aði hann niður. Egyptinn fór grát­andi af velli eftir að hafa farið úr axl­ar­lið og hefur þurft að hafa sig allan við til að koma sér í stand fyrir mótið nú.

Kjarninn ræddi við nokkra eld­heita stuðn­ings­menn Liverpool um leik­ina í dag og með hverjum þau ætla að halda og hvernig þau sjá leik­ina fara.

Dýfur næst verstar í boltanum, á eftir mannáti

Lára Björg Björns­dóttir er upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar og Liverpool-kona. Heima hjá henni hefur nýlega verið reist fána­stöng í garð­inum, í þeim eina til­gangi að hægt sé að draga Liverpoolfána að húni þegar liðið spilar, þó íslenska fán­anum verði reyndar flaggað nú næstu vikur. Valið er auð­velt fyrir Láru.

„Ég var aldrei Suarez mann­eskja, var aldrei að tengja mikið við hann. Suarez, ofan á til­hneig­ingu til mann­áts, á hann það til að dýfa sér sem er það næst ljótasta sem maður sér í fót­bolta, þá er mannát í fyrsta sæti. Annað með hinn vin okkar, Salah. Þar hrær­ast til­finn­ingar og það eru heitar til­finn­ingar. Salah þarf ekki að bíta og láta sig detta, nú eða bein­brjóta menn, hann er bara nógu góður. Punktur,“ segir Lára sem spári Egyptum því sigri í leiknum.

Valið er ekki alveg jafn aug­ljóst í til­felli Láru þegar kemur að leik Spánar gegn Portúgal. „Hvort hatar maður meira Ronaldo eða Ramos?“ En svarið er þó ekki lengi að koma hjá henni. „Það er þetta grimmdar ofbeldi hjá Ramos sem að gerir úts­lagið. Það toppar ein­hvern gelskúlp­t­úrahaus-hatur á Ronaldo,“ segir Lára að lokum og spáir Portú­göl­unum því sigri í síð­asta leik dags­ins.

Ramos „brutal“ leikmaður

Hall­grímur Ind­riða­son frétta­maður á Rík­is­sjón­varp­inu er einnig for­maður Liverpoolklúbbsins á Íslandi. Hann segir það til­hneig­ingu að styðja þá menn sem séu leik­menn Liverpool þá stund­ina. „Plús það að maður hefur alltaf gaman að því þegar „litlu“ liðin gera ein­hverja góða hluti þá hugsa ég að ég haldin nú meira með Egyptum.

Hall­grímur segir úrslit leiks­ins muni algjör­lega ráð­ast af því í hvaða standi Mo Salah er. „Hann er svo mik­ill lyk­il­maður í þessu liði. Ég hef pínu áhyggjur af því að öxlin sé við­kvæm. Viðkvæm öxl er ekk­ert grín. Ef ég á að vera raun­sær þá finnst mér nú séns Egypta vera lít­ill en ég vona að þeir geri eitt­hvað.“

Hall­grímur er hins vegar í svo­lítið meiri til­finn­inga­flækju vegna viður­eignar Spán­verja og Portúgal. „Þessi leikur verður pínu erf­iður út af Ramos. Ég hef alltaf haldið með Spán­verjum á stór­mótum, alltaf verið „svag“ fyrir þeim og fyrir utan það hef ég aldrei getað haldið með Ronaldo. Þó að mér finn­ist Ramos óþol­andi, leið­in­legur og allt að því „bru­tal“ leik­maður þá held ég að ég muni nú halda með Spán­verjum í kvöld. Þessi leikur verður líka ofsa­lega for­vitni­legur út af þeirri drama­tík sem hefur verið í kringum spænska liðið. Ef þeim gengur vel í kvöld þá á þeim held ég bara eftir að ganga vel á þesu móti. Í því ljósi verður mjög athygl­is­vert að sjá hvernig spán­verjar mæta í þennan leik.“

Áhyggjur af öxlinni á Salah fyrir næstu leiktíð

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra er svo heitur stuðn­ings­maður Liverpool grín­ast með það við blaða­mann að hann langi til að færa íslenska sendi­ráðið í Englandi frá London til Liverpool. En þó að það sé engin alvara á bak við það er Guðlaugi ekki skemmt þegar kemur að Sergio Ramos. „Ég mun halda með öllum á móti Ramos. Öllum. Þó hvor­ugur þeirra, Ramos og Ronaldo, sé í ein­hverju upp­á­haldi þá er þetta engin spurn­ing.“ Guð­laugur spáir þeim leik jafn­tefli, marka­lausu jafn­vel eða 1-1.

Guð­laugur segir heldur engan vafa uppi um það með hverjum hann heldur í leik Úrúgvæ og Egypta­lands. „Salah allan dag­inn. Mér er alveg hlýtt til Suarez en hann fór bara eitt­hvað annað og þá er bara þakkað fyrir vel unnin störf. Nú er Salah okkar maður.“ Hann hefur þó svolitlar áhyggjur af öxl­inni á Salah í þessu móti. „Hann má alls ekki skadd­ast eitt­hvað í þess­ari keppni. Hann verður að koma til leiks í ágúst eins og hann var síð­asta vetur,“ segir ráð­herra sem spáir Úrúgvæ sigri í leiknum.

Leikur Úrúgvæ og Egypta­lands hefst klukkan 12.00 en leikur Spán­verja og Portúgal klukkan 18.00 og báðir leik­irnir, eins og allt mótið, sýnt á RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár