„Það er mjög ánægjulegt að hafa náð samningum“

Nýir samn­ingar Íslands og Evr­ópu­sam­bands­ins um við­skipti með land­bún­að­ar­vörur náð­ust á samn­inga­fundi sem staðið hefur sl tvo daga í Reykja­vík. Samn­ing­arnir munu stuðla að auknu vöru­úr­vali og lægra vöru­verði á Íslandi til hags­bóta fyrir neyt­endur. Jafn­framt fela samn­ing­arnir í sér veru­leg ný tæki­færi fyrir útflytj­endur. Vonir standa til að samn­ing­arnir geti tekið gildi í árs­lok 2016 eða byrjun árs 2017, að feng­inni stað­fest­ingu stofn­ana ESB og Íslands.

„Það er mjög ánægju­legt að hafa náð samn­ingum um gagn­kvæma nið­ur­fell­ingu tolla sem mun hafa mjög jákvæðar áhrif fyrir neyt­endur og mikil sókn­ar­færi til auk­ins útflutn­ings,“ segir Sigurður Ingi Jóhanns­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra.

[caption id="attachment_39320" align="alignnone" width="546"] Samn­ing­arnir und­ir­rit­aðir.[/caption]

Samn­ing­arnir fela í sér að Ísland fellir niður tolla á yfir 340 nýjum toll­skrár­núm­erum og lækkar tolla á yfir 20 öðrum, að því er segir í til­kynn­ingu. Almennt gerir ESB slíkt hið sama. Nið­ur­staðan felur í sér að allir tollar á unnar land­bún­að­ar­vörur eru felldir niður nema á jógúrt. Sem dæmi munu tollar falla niður á súkkulaði, pizzum, pasta, bök­un­ar­vörum o.fl. Auk þessa eru tollar felldir niður eða lækk­aðir á óunnum land­bún­að­ar­vörum eins og t.d. villi­bráð, frönskum kart­öflum, úti­rækt­uðu græn­meti o.fl.

Jafn­framt er sam­komu­lag um að báðir aðilar auki veru­lega toll­frjálsra inn­flutn­ings­kvóta m.a. fyrir ýmsar kjöt­teg­undir og osta sem munu koma til fram­kvæmda á til­teknum aðlög­un­ar­tíma. Á móti fær Ísland veru­lega hækkun toll­frjálsra inn­flutn­ings­kvóta fyrir skyr, smjör og lamba­kjöt auk nýrra kvóta fyrir ali­fugla- og svína­kjöt og ost.

Samhliða var lokið samn­ingi milli Íslands og ESB um gagn­kvæma við­ur­kenn­ingu á heitum afurða sem vísa til upp­runa. Í meg­in­at­riðum felur samn­ing­ur­inn í sér að íslensk stjórn­völd skuld­binda sig til að vernda á yfir­ráða­svæði sínu heiti afurða sem vísa til upp­runa og njóta verndar innan ESB.

„Þetta er fagn­að­ar­efni fyrir íslenska neyt­endur sem munu sjá þess stað í lækk­uðu mat­vöru­verði og útflytj­endur sem munu vafa­laust nýta sér þá mögu­leika sem í þessum samn­ingum fel­ast,“ segir Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra í til­kynn­ingu.

Form­legar við­ræður hófust árið 2012. Nýjum samn­ingum er ætlað að koma í stað samn­inga frá 2001 um við­skipti með unnar land­bún­að­ar­vörur og 2007 um við­skipti með óunnar land­bún­að­ar­vörur.

Samn­ing­arnir munu nú fara í lög­fræði­lega yfir­ferð og loka­frá­gang og verða lagðir fyrir til form­legs sam­þykkis ESB og íslenskra stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár